Spring Rings Top#springringstop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri í röndum á berustykki. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-32 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN: Til að gera peysuna aðeins hærri aftan í hnakkanum þegar prjónað er í kringum berustykkið, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er hér að neðan. Sleppið þessum kafla ef þið viljið ekki upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= miðja að aftan), lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið næstu 6 umferðir fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 13-14-15-16-17-18-19 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði í byrjun umferðar (= miðja að aftan), snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga):Prjónið 26-28-30-32-34-36-38 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 39-42-45-48-51-54-57 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 52-56-60-64-68-72-76 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 65-70-75-80-85-90-95 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 78-84-90-96-102-108-114 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. Prjónið slétt til baka að merkiþræði fyrir miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í mynstri. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 128 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 12,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 13. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 10 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ef prjónuð er upphækkun aftan í hnakka á eftir kanti í hálsmáli, er upphækkunin prjónuð fram og til baka áður en stykkið er prjónað í hring. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 128-132-136-144-148-156-164 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Nord. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 2-2-2½-2½-3-3-3 cm. Byrjun umferðar er fyrir miðju að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 43-44-45-48-49-52-54 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 10-10-12-12-14-14-16 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1= 138-142-148-156-162-170-180 lykkjur. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan, prjónið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, prjónið eins og útskýrt er að neðan. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið A.1 berustykkið hringinn. Haldið svona áfram með mynstur. Munið að fylgja prjónfestunni. Jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1 á að auka út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Ör-1: Aukið út um 28-30-32-36-38-38-40 lykkjur jafnt yfir = 166-172-180-192-200-208-220 lykkjur. Ör-2: Aukið út um 36-40-42-50-54-52-54 lykkjur jafnt yfir = 202-212-222-242-254-260-274 lykkjur. Ör-3: Aukið út um 36-40-44-50-56-52-56 lykkjur jafnt yfir = 238-252-266-292-310-312-330 lykkjur. Ör-4: Aukið út um 36-40-44-50-56-52-56 lykkjur jafnt yfir = 274-292-310-342-366-364-386 lykkjur. Ör-5: Aukið út um 36-40-44-50-56-52-56 lykkjur jafnt yfir = 310-332-354-392-422-416-442 lykkjur. Ör-6: Aukið út um 0-0-0-0-0-52-56 lykkjur jafnt yfir = 310-332-354-392-422-468-498 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist berustykkið ca 13-13-13-15-15-18½-18½ cm frá merki. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar berustykkið mælist 15-15-16-18-18-21-22 cm frá merki, aukið út um 34-40-42-48-54-52-54 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 344-372-396-440-476-520-552 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 18-18-19-20-21-23-25 cm frá merki við miðju að framan, skiptist stykkið í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 48-53-57-63-68-76-83 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 76-80-84-94-102-108-110 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 96-106-114-126-136-152-166 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 76-80-84-94-102-108-110 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 48-53-57-63-68-76-83 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 208-228-248-272-296-328-360 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 8-8-10-10-12-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 6-6-6-6-8-8-8 cm frá skiptingunni, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6-6-6-6-8-8-8 cm millibili alls 3-3-3-3-4-4-4 sinnum = 220-240-260-284-312-344-376 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 39-41-43-44-45-47-49 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 12-16-20-24-24-24-24 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 232-256-280-308-336-368-400 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Peysan mælist 41-43-45-46-48-50-52 cm frá merki við miðju að framan og ca 46-48-50-52-54-56-58 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 76-80-84-94-102-108-110 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 84-88-94-104-114-120-124 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-8-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-2-1-0 sinnum með 3-3-3-3-3-2-0 cm millibili = 80-84-90-100-110-118-124 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 6-7-7-7-6-4-2 cm frá skiptingunn. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur í garðaprjóni) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-4-6-4-6-6-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 84-88-96-104-116-124-132 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 8-9-9-9-9-7-5 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springringstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.