Ina skrifaði:
How should this be worked? In rounds? The pattern is really confusing!!
02.05.2026 - 14:06DROPS Design svaraði:
Dear Ina, you first work the bottom of piece/body from bottom up to the armholes (starting with right front piece, then working back piece ending with left front piece from the RS), then you will decrease for v-neck on each front piece then divide piece for armhole and finish each piece separately back and forth. sleeves are worked from armhole down. Can this help? Happy knitting!
04.05.2026 - 11:38
Sweet Lime Cardi#sweetlimecardi |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri, v-hálsmáli og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-25 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Á EFTIR KANTI AÐ FRAMAN (lykkja sem fækkað er um snýr til vinstri): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Á UNDAN KANTI AÐ FRAMAN (lykkja sem fækkað er um snýr til hægri): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kanti að framan, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu (kantur að framan = 7 lykkjur): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3. og 4. lykkju frá kanti fyrir miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, haldið síðan áfram með lykkjur frá framstykki eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn brugðið, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm, fellið síðan fyrir næstu hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 7½-13-18½ og 24 cm. S: 8-14-20 og 26 cm. M: 8-14-20 og 26 cm. L: 8½-15-21½ og 28 cm. XL: 8-13-18-23 og 28 cm. XXL: 8½-14-19½-25 og 30 cm. XXXL: 8½-14-19½-25 og 30 cm. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breytið eftir þörfum. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Axlasaumar saumaðir. Lykkjur prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Kantar að framan frá hvor framstykki eru saumaðir saman, saumur = miðja að aftan, síðan eru kantar að framan saumaðir við lykkjur aftan í hnakka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 235-251-267-283-315-347-379 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Cotton Light. Prjónið fyrstu umferð þannig frá réttu: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD - sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið svona þar til stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm og prjónið næstu umferð frá röngu. Í næstu umferð (= ranga) er fækkað um 27-29-31-33-37-41-45 lykkjur þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, * 6 lykkjur brugðið, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* 27-29-31-33-37-41-45 sinnum, prjónið 5 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður = 208-222-236-250-278-306-334 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð 55-58-62-65-72-79-86 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hvorri hlið á fram- og bakstykki – það eru 98-106-112-120-134-148-162 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki). Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fella á af fyrir handveg. Skiptið yfir í hringprjón 4 og prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan og prjónið frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.2 þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu 5 lykkjurnar í A.2 (þannig að mynstrið byrji og endi eins), prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með mynstrið svona. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 25-27-27-29-29-31-31 cm. Nú byrjar úrtakan fyrir v-hálsmáli – þ.e.a.s. það hefur verið prjónaður ca 1 cm eftir síðasta hnappagati í hægri kanti að framan. Eftir hvert hnappagat á einnig að fella af og skipta stykkinu upp við handveg. Lestu því báða kaflana hér að neðan áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð 8-8-8-8-14-14-14 sinnum, fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð 4-4-4-4-5-5-5 sinnum. SKIPTING VIÐ HANDVEG: Jafnframt þegar stykkið mælist 26-28-29-30-31-32-33 cm skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður þar til 2-2-3-4-4-5-6 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merkiþræði (= framstykkið ásamt kanti að framan – munið eftir úrtöku fyrir v-hálsmáli), fellið af næstu 4-5-6-9-9-11-13 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður yfir næstu 94-100-106-110-124-136-148 lykkjur, þ.e.a.s. það eru eftir 2-3-3-5-5-6-7 lykkjur á undan næsta merkiþræði (= bakstykki), fellið af næstu 4-5-6-9-9-11-13 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður yfir síðustu lykkjurnar (= framstykki ásamt kanti að framan – munið eftir úrtöku fyrir v-hálsmáli). Framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram með mynstur og kant að framan fram og til baka eins og áður – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-1-2-2-2-3-5 sinnum og 1 lykkju 1-2-3-5-5-9-11 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 40 lykkjur eftir á prjóni í öllum stærðum. Haldið áfram með kant að framan og mynstur eins og áður, en ystu 3 lykkjur við handveg eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54-56 cm. Í næstu umferð frá röngu, fellið af þannig: Fellið af 33 lykkjur fyrir öxl = 7 kantlykkjur að framan, prjónið út umferðina eins og áður yfir þessar 7 lykkjur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: = 7 lykkjur. Prjónið kant að framan með i-cord fram og til baka eins og áður yfir þessar 7 lykkjur í 9-9-9-9-12-12-12 cm, fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram með mynstur og kant að framan fram og til baka eins og áður – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-1-2-2-2-3-5 sinnum og 1 lykkju 1-2-3-5-5-9-11 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 40 lykkjur eftir á prjóni í öllum stærðum. Haldið áfram með kant að framan og mynstur eins og áður, en ystu 3 lykkjur við handveg eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54-56 cm. Í næstu umferð frá röngu, fellið af þannig: Fellið af 33 lykkjur fyrir öxl = 7 kantlykkjur að framan, prjónið út umferðina eins og áður yfir þessar 7 lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: = 7 lykkjur. Prjónið kant að framan með i-cord fram og til baka eins og áður yfir þessar 7 lykkjur í 9-9-9-9-12-12-12 cm, fellið af. BAKSTYKKI: = 94-100-106-110-124-136-148 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-1-2-2-2-3-5 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 1-2-3-5-5-9-11 í hvorri hlið = 92-92-92-106-106-106 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, en ystu 3 lykkjur í hvorri hlið við handveg eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 41-43-45-47-49-51-53 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 22-22-22-22-36-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 33 lykkjur eftir á öxl í öllum stærðum. Fellið af þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54-56 cm. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasauma. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = miðja ofan á öxl. Notið hringprjón 4 og prjónið upp lykkjur aðeins fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 70-70-72-78-84-88-94 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. ERMAKÚPA: Til að flíkin passi betur er prjónað sléttprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpu, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-8-6-8-6-5 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6-6-8-6-8-6-5 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3-2-2-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 3-2-2-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 16-20-22-28-28-34-42 sinnum (= 8-10-11-14-14-17-21 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, endið umferðina með því að snúa stykkinu við, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðarinnar (= mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, merkiþráðurinn er notaður þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. ERMIN ÁFRAM NIÐUR: Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur = 64-66-70-74-80-86-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 18-19-20-21-18-19-20 cm frá miðju efst á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT og aukið út um 4-6-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 68-72-76-80-88-94-102 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 20-21-22-23-21-22-23 cm frá miðju efst á öxl. FRÁGANGUR-2: Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman – saumur = miðja að aftan, saumið síðan kanta að framan við miðju aftan í hnakka (saumið innan við 1 lykkju). Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetlimecardi eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.