Sharon Hunt skrifaði:
Thanks for your response. I did exactly that, but because it’s my first time knitting with cotton yarn, I thought minus ease would have been a better choice hence the question. Sorry but I don’t have any garment in cotton to make an informed decision. Hence the question.
21.05.2026 - 15:03DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hunt, these infos might help you choosing size and ease. Happy knitting!
21.05.2026 - 16:54
Sharon Hunt-Edwards skrifaði:
Hi, what size is the model wearing. Correct spi but seems a bit loose so I was wondering if I should have made this a size smaller. I would have preferred negative ease.
21.05.2026 - 12:02DROPS Design svaraði:
Hi, Sharon, you can see all the measurements for this garment in the diagram below the pattern. You can compare these to a garment you have that has your preferred proportions and choose the size closest to this. Happy knitting!
21.05.2026 - 14:52
Sharon Hunt skrifaði:
Starting the edging of the sleeve shortly. Am knitting the XXL. Not sure what the pattern wants me to do when it comes to the increases. For this size it says to increase 0 times but am supposed to have 112 on the needles is the final stitch count. The original stitch count is 114 which I have on the needles. Question 🙋🏻♀️ what does the pattern really wants the knitter to do ✅ here? Thanks for clarifying.
16.05.2026 - 12:48DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, you decrease 2 stitches once; you decrease 1 time and every 0cm, because you won't repeat it anymore. Happy knitting!
18.05.2026 - 01:26
Sharon Hunt skrifaði:
Hi, working the increases for the sleeves. I set up per pattern but looks kind strange/weird. The 14 sts is between the increases.
29.04.2026 - 19:21DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hunt, when increasing for sleeves you will increase on each side of the 14 sts, ie after the stitch with the marker before sleeve and before the next stitch with a marker at the end of sleeve, so that on first increase round you will have: 1 st with marker, 1 st inc, 14 sts, 1 st inc (- 16 sts for sleeve), 1 st with marker - and same for 2nd sleeve. Can this help? Happy knitting!
30.04.2026 - 08:57
Susi skrifaði:
Könnte man dieses Top auch ohne den Volant unten stricken? Einfach mit dem Abschluss wie bei den Ärmeln. Oder passt dann der Schnitt in der Anleitung nicht mehr?
30.03.2026 - 13:21DROPS Design svaraði:
Liebe Susi, das Top würde dann etwas enger unten (also wie in der Maßskizze), so können Sie die Länge bzw die Abnahmen je nach Wunsch anpassen. Viel Spaß beim Stricken!
07.04.2026 - 13:55
Tina skrifaði:
Hvornår lærer I at lave forhøjet nakke i jeres topdown opskrifter. Det er altså ikke særlig svært
10.03.2026 - 10:42
Vanilla Twirl Blouse#vanillatwirlblouse |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, rúllukanti og pífu. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-20 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-116-120-124-130-136-144 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Safran. Prjónið 2 umferðir slétt (= rúllukantur). Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 4 cm í sléttprjóni. Byrjun umferðar er við miðju að aftan. Setjið 1 merki í stykkið fyrir miðju í umferð (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 19-21-22-23-24-26-28 lykkjur (= hálft bakstykki), Setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 39-42-44-46-49-52-56 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 20-21-22-23-25-26-28 lykkjur á eftir síðasta merki (= hálft bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út. Munið að fylgja prjónfestunni. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 28-30-33-36-38-39-42 sinnum (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) = 334-356-384-412-434-448-480 lykkjur. Útaukningu fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 1-1-1-1-3-5-6 sinnum til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) = 338-360-388-416-446-468-504 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 20-21-22-24-26-28-30 cm frá merki við miðju að framan. Skiptið nú berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 48-52-56-60-65-70-76 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki), setjið næstu 72-76-82-88-92-94-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 97-104-112-120-131-140-152 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 72-76-82-88-92-94-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 49-52-56-60-66-70-76 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 210-228-248-268-294-320-348 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 8-10-12-14-16-20-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið fram að fyrsta merkiþræði, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingunni = 202-220-240-260-286-312-340 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 36-38-40-41-43-45-47 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð er fækkað um 2-0-0-2-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 200-220-240-258-282-308-336 lykkjur. Nú á að prjóna pífu, þ.e.a.s. prjónið A.1 alls 40-44-40-43-47-44-48 sinnum umferðina hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 320-352-360-387-423-440-480 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55-57 cm frá merki fyrir miðju að framan. Fellið af með aðra hverja lykkju slétt og brugðið. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 72-76-82-88-92-94-100 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 80-86-94-102-108-114-122 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-16-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT í næstu umferð er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 5-3-1½-1½-1½-0-0 cm millibili, alls 2-3-5-4-3-1-1 sinnum = 76-80-84-94-102-112-120 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 8-8-8-6-5-3-1 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 1 umferð slétt. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 9-9-9-7-6-4-2 cm frá skiptingunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #vanillatwirlblouse eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 37 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.