Sand Walk Sweater#sandwalksweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Bomjull-Lin. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með bátahálsmáli og skáhallandi öxl. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-27 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU (= ný lykkja snýr til vinstri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU (= ný lykkja snýr til hægri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur efst á framstykki. Síðan er framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem prjónaðar eru stuttar umferðir til að forma smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er framstykkið látið bíða á meðan bakstykkið er prjónað. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá framstykki, lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmál og lykkjur prjónaðar upp meðfram hinni öxlinni frá framstykki. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við JAFNFRAMT sem prjónaðar eru stuttar umferðir til að forma smá skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi – bakstykkið er prjónað aðeins lengra en framstykkið. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 77-81-87-93-101-107-113 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Bomull-Lin. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 15-16-19-21-24-26-28 lykkjur brugðið, prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 46-48-48-50-52-54-56 lykkjur, 1 lykkja slétt og 15-16-19-21-24-26-28 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 15-16-19-21-24-26-28 lykkjur slétt, prjónið stroff (1 lykkja brugðin, 1 lykkja slétt) yfir næstu 46-48-48-50-52-54-56 lykkjur, prjónið 1 lykkju brugðið og 15-16-19-21-24-26-28 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 15-16-19-21-24-26-28 lykkjur brugðið, prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 46-48-48-50-52-54-56 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 15-16-19-21-24-26-28 lykkjur brugðið. Hálsmálið er nú tilbúið. Skiptið yfir í hringprjón 5 og prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir eins og útskýrt er að neðan. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 3 cm frá merki, prjónið nú 2 stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 16-16-16-20-20-24-24 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við og lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 16-16-16-20-20-24-24 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 7 cm frá merki, prjónið nú 2 stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 12-12-12-15-15-18-18 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 12-12-12-15-15-18-18 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 11 cm frá merki, prjónið nú 2 stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 15 cm frá merki, prjónið nú 2 stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 4-4-4-5-5-6-6 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 4-4-4-5-5-6-6 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. Stuttu umferðirnar hafa nú verið prjónaðar til loka, stykkið mælist ca 16 cm frá merki (og ca 20 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan), framstykkið er með örlítið hallandi öxl í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 16-16-16-17-18-17-16 cm frá merki. Aukið nú út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-3-3-3-3-5-7 sinnum (= 2-6-6-6-6-10-14 umferðir prjónaðar) = 79-87-93-99-107-117-127 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 17-19-19-20-21-22-23 cm, mælið frá merki yst meðfram handveg, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, prjónið nú bakstykkið eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Leggið framstykkið flatt með réttuna upp, leggið framstykkið þannig að lykkjurnar á þræðinum/hjálparprjóninum snúi að ykkur, hægri hlið stykkisins = vinstri öxl á framstykki/bakstykki séð þegar flíkin er mátuð. Prjónið nú upp lykkjur meðfram framstykkis skáhallandi öxl í hægri hlið á stykki- notið hringprjón 3,5, byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju innan við uppfitjunarkantinn þar til 17-18-21-23-26-28-30 lykkjur eru eftir í umferð (síðustu 2 lykkjurnar = 2 ystu lykkjurnar með stroffi frá framstykki), klippið ekki þráðinn, en fitjið upp 43-45-45-47-49-51-53 lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli, hoppið yfir 43-45-45-47-49-51-53 lykkjur á framstykki og prjónið upp 1 lykkju í hverja af síðustu 17-18-21-23-26-28-30 lykkjum meðfram framstykkis skáhallandi öxl í vinstri hlið á stykki (fyrstu 2 lykkjurnar = 2 ystu lykkjur með stroffi frá hinni hliðinni á framstykki) = 77-81-87-93-101-107-113 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina - allar lengdarmælingar á bakstykki eru gerðar frá þessu merki. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 15-16-19-21-24-26-28 lykkjur brugðið, prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 46-48-48-50-52-54-56 lykkjur, 1 lykkja slétt og 15-16-19-21-24-26-28 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 15-16-19-21-24-26-28 lykkjur slétt, prjónið stroff (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) yfir næstu 46-48-48-50-52-54-56 lykkjur, 1 lykkja brugðið og 15-16-19-21-24-26-28 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 15-16-19-21-24-26-28 lykkjur brugðið, prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 46-48-48-50-52-54-56 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 15-16-19-21-24-26-28 lykkjur brugðið. Hálsmálið er nú tilbúið. Skiptið yfir í hringprjón 5 og prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem prjónaðar eru stuttar umferðir eins og útskýrt er hér að neðan. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 9 cm frá merki, prjónið nú 2 stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 16-16-16-20-20-24-24 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við og lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 16-16-16-20-20-24-24 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 13 cm frá merki, prjónið nú 2 stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 12-12-12-15-15-18-18 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 12-12-12-15-15-18-18 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17 cm frá merki, prjónið nú 2 stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 21 cm frá merki, prjónið nú 2 stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 4-4-4-5-5-6-6 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 4-4-4-5-5-6-6 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu við. Stuttu umferðirnar eru nú tilbúnar, stykkið mælist ca 22 cm frá merki (og ca 26 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan), bakstykkið er með örlítið hallandi öxl í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 22-22-22-23-24-23-22 cm frá merki. Aukið nú út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-3-3-3-3-5-7 sinnum (= 2-6-6-6-6-10-14 umferðir prjónaðar) = 79-87-93-99-107-117-127 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 23-25-25-26-27-28-29 cm, mælið frá merki yst meðfram handveg, endið með umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 79-87-93-99-107-117-127 lykkjur frá bakstykki eins og áður, fitjið upp 2-2-2-4-4-4-4 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 79-87-93-99-107-117-127 lykkjur frá framstykki eins og áður, fitjið upp 2-2-2-4-4-4-4 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 162-178-190-206-222-242-262 lykkjur í umferð. Prjónið nú í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 25-25-27-28-28-29-30 cm frá þar sem stykkið var sett saman (stykkið mælist ca 49-51-53-55-54-58-60 cm frá toppi á öxl þegar stykkið liggur flatt, 3 cm frá bakstykki liggur yfir framstykkið þannig að kanturinn þar sem lykkjur voru fitjaðar upp liggur 3 cm yfir á framstykki). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 30-30-34-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 192-208-224-240-260-284-308 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handvegi og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveginn = miðjan efst á öxl - ATH! Miðjan efst á öxl er ekki á sama stað og lykkjurnar sem prjónaðar voru upp fyrir bakstykkið, heldur nokkra cm niður á bakstykkið. Notið hringprjón 5 og prjónið upp lykkjur aðeins fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni - prjónið upp 66-74-74-78-82-84-88 lykkjur - stillið af þannig að jafnmargar lykkjur séu prjónaðar upp hvoru megin við merkið. ERMAKÚPA: Til að flíkin passi betur er prjónað sléttprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpuna, umferðir byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7-7-7-7-8-8-8 lykkjur fram hjá merki efst á öxlinni, snúið stykkinu við - munið eftir LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 7-7-7-7-8-8-8 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 5-5-5-4-4-4-4 lykkjur fram hjá þar sem stykkið var snúið við síðast, snúið stykkinu við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 5-5-5-4-4-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðast, snúið stykkinu við. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við 8-8-10-10-12-14-16 sinnum (= 4-4-5-5-6-7-8 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, endið umferðina með því að snúa stykkinu við, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðarinnar (= miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, merkiþráðurinn verður notaður þegar lykkjum er fækkað undir erminni. Látið merkiþráðinn fylgja með áfram í stykkinu. Prjónið nú í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur 3-3-3-4-4-4-4 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 6-8-8-8-8-7-8 sinnum með 3-2-2-1½-1½-2-1½ cm millibili = 48-52-52-54-58-62-64 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-45-45-45-44-44-44 cm frá miðju efst á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-60-60-64-68-72-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48 cm frá miðju efst á öxl í öllum stærðum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sandwalksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 42 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.