Harvest Dress#harvestdress |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður síður kjóll úr DROPS Belle. Stykkið er heklað ofan frá og niður. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-2 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli / fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðuls í umferð. Síðasti stuðullinni í umferð er heklaður í 3. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar. Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja. Þessi loftlykkja kemur í stað fyrstu fastalykkju í umferð. Síðasta fastalykkjan í umferð er hekluð í 3. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Munið að mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar heklað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. A.1 og A.3 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar þegar heklað er fram og til baka. LEIÐBEININGAR MÆLING: Vegna þyngdar á garninu eru öll mál gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur flíkin til með að verða of síð/löng við mátun. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju, þ.e.a.s. heklið 2 fastalykkjur eða 2 stuðla í sömu lykkju (fer eftir í hvaða umferð í mynsturteikningu auka á út). Útauknar lykkjur eru heklaðar eins og 1 fastalykkja eða 1 stuðull þar til útauknar lykkjur ganga jafnt upp með heila mynstureiningu með A.2 á breiddina. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er heklað fram og til baka hvort fyrir sig og heklað er ofan frá og niður. Stykkið er saumað saman á öxlum og í hliðum – það á að vera klauf í hvorri hlið. Í lokin er heklaður kantur með loftlykkjubogum í hringum hálsmál og í hringum báða handvegina. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: HÆGRI ÖXL: Heklið 12-12-12-12-14-14-14 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Belle. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og MYNSTUR í útskýringu að ofan og heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1 (= hoppið yfir fyrstu 3 loftlykkjurnar í umferð), heklið A.2 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum, heklið A.3 í síðustu lykkjuna = 10-10-10-10-12-12-12 stuðlar. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkjuna, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1 í síðustu lykkjuna. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.1 í fyrstu lykkju, heklið A.2 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum, heklið A.3 í síðustu lykkju = 10-10-10-10-12-12-12 stuðlar. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkju, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1 í síðustu lykkjuna. Heklið UMFERÐ 3 og 4 alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum (þ.e.a.s. heklið umferð 5 og 6 í mynsturteikningu í stærðum XL, XXL og XXXL). Nú hafa verið heklaðar alls 4-4-4-4-6-6-6 umferðir frá uppfitjunarkanti. Síðan er aukið út fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1 í fyrstu lykkjuna og aukið jafnframt út um 1 lykkju í þessa lykkju – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.3 í síðustu lykkjuna = 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkjuna, heklið A.2 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á umferð, heklið næstu lykkju sem 1 stuðul, heklið A.1 í síðustu lykkjuna og aukið jafnframt út um 1 lykkju í þessa lykkju = 12-12-12-12-14-14-14 lykkjur. Klippið þráðinn. Stykkið mælist ca 7-7-7-7-9-9-9 cm frá uppfitjunarkantinum. BAKSTYKKI: VINSTRI ÖXL: Heklið 12-12-12-12-14-14-14 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1 (= hoppið yfir fyrstu 3 loftlykkjurnar í umferðinni), heklið A.2 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum, heklið A.3 í síðustu lykkjuna = 10-10-10-10-12-12-12 stuðlar. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkjuna, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferðinni, heklið A.1 í síðustu lykkjuna. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.1 í fyrstu lykkju, heklið A.2 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum, heklið A.3 í síðustu lykkju = 10-10-10-10-12-12-12 stuðlar. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkju, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1 í síðustu lykkju. Heklið UMFERÐ 3 og 4 alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum (þ.e.a.s. heklið umferð 5 og 6 í mynsturteikningu í stærðum XL, XXL og XXXL). Nú hafa verið heklaðar samtals 4-4-4-4-6-6-6 umferðir frá uppfitjunarkanti. Síðan er aukið út fyrir hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1 í fyrstu lykkjuna, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir á umferð, heklið A.3 í síðustu lykkjuna og aukið jafnframt út um 1 lykkju í þessa lykkju – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkjuna og aukið jafnframt út um 1 lykkju í þessa lykkju, heklið næstu lykkju sem 1 stuðul, heklið A.2 eins og áður þar til 1 lykkja er eftir á umferð, heklið A.1 í síðustu lykkjuna = 12-12-12-12-14-14-14 lykkjur. Klippið ekki þráðinn, heklið nú vinstri og hægri öxl saman til að mynda bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI (vinstri og hægri öxl saman): Nú er vinstri og hægri öxl sett saman til að mynda bakstykkið, haldið áfram frá réttu yfir lykkjurnar frá vinstri öxl og heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1 í fyrstu lykkju, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, heklið A.3 í síðustu lykkju, heklið 22-26-30-30-30-30-36 loftlykkjur fyrir hálsmál, heklið A.1 í fyrstu lykkju frá réttu á hægri öxl, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, heklið A.3 í síðustu lykkju = 46-50-54-54-58-58-64 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-11-12-11-12-11-12 cm frá uppfitjunarkanti á öxl og næsta umferð á að vera hekluð frá röngu, aukið út í hvorri hlið fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan – sjá LEIÐBEININGAR MÆLING. Munið að fylgja heklfestunni. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Heklið fyrstu umferð þannig - frá röngu: Heklið A.3 í fyrstu lykkjuna og aukið jafnframt út um 1-1-1-1-0-0-0 lykkjur í þessa lykkju, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, heklið A.1 í síðustu lykkjuna og aukið jafnframt út um 1-1-1-1-0-0-0 lykkjur í þessa lykkju (= 2-2-2-2-0-0-0 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverri umferð alls 2-1-1-2-0-0-0 sinnum. Síðan er aukið út á sama hátt, en nú er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið, þ.e.a.s. heklið 2 lykkjur í hverja af 2 ystu lykkjunum í hvorri hlið. Aukið svona út í hverri umferð alls 3-4-4-5-7-9-9 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 62-68-72-78-86-94-100 lykkjur í umferð, síðasta umferðin hefur verið hekluð frá röngu og stykkið mælist ca 17-17-18-19-20-21-22 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Nú á að fitja upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg – það er mikilvægt að næstu 2 umferðir séu umferðir með stuðlum og að næsta umferð sé hekluð frá réttu – ef þörf krefur, haldið áfram að hekla þannig að næsta umferð byrji frá réttu: Heklið 5-6-7-8-9-10-12 loftlykkjur, snúið stykkinu, heklið A.1 (= hoppið yfir fyrstu 3 loftlykkjurnar), heklið A.2 þar til 0-1-0-1-0-1-1 lykkja er komin, heklið 1 stuðul í síðustu lykkjuna (á við um stærðir S, L, XXL og XXXL), heklið síðan 5-6-7-8-9-10-12 loftlykkjur í lok umferðarinnar, snúið stykkinu, heklið A.1 (= hoppið yfir fyrstu 3 loftlykkjurnar), heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferðinni, heklið A.3 í síðustu lykkjuna = 68-76-82-90-100-110-120 lykkjur. BAKSTYKKI (heklað niður á við): Heklið mynstur eins og áður – fyrsta umferð er hekluð frá röngu og heklað þannig: Heklið A.3 í fyrstu lykkjuna, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, heklið A.1 í síðustu lykkjuna. Þegar stykkið mælist 29-32-34-36-38-40-42 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, byrjið að auka út í hvorri hlið – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING. Setjið 1 merkiþráð innan við ystu 17-17-19-19-21-23-25 lykkjur í hvorri hlið. Heklið mynstur fram og til baka eins og áður – JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju innan við merkiþráðinn í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og stillið af þannig að aukið sé út í 5., 6. eða 7. umferð í A.2 (útauknar lykkjurnar eru heklaðar inn í mynstrið, en heklaðar eins og 1 stuðull/fastalykkja þar til næg útaukning er fyrir heila mynstureiningu af A.2 á breiddina), alltaf er aukið út innan við ystu 17-17-19-19-21-23-25 lykkjur í hvorri hlið. Aukið svona út með 3-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 7-7-8-8-9-9-9 sinnum, síðan aukið út með 4-4-4-4½-4½-4½ cm millibili alls 10 sinnum = 102-110-118-126-138-148-158 lykkjur. Heklið þar til stykkið mælist ca 120-123-126-129-132-135-137 cm frá uppfitjunarkanti á öxl – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING og stillið af þannig að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Heklið svona frá réttu: Heklið A.4a í fyrstu lykkjuna, heklið A.4b út umferðina. Klippið frá og festið þráðinn. FRAMSTYKKI: VINSTRI ÖXL: Heklið 12-12-12-12-14-14-14 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1 (= hoppið yfir fyrstu 3 loftlykkjurnar í umferðinni), heklið A.2 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum, heklið A.3 í síðustu lykkjuna = 10-10-10-10-12-12-12 stuðlar. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkjuna, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferðinni, heklið A.1 í síðustu lykkjuna. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.1 í fyrstu lykkju, heklið A.2 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum, heklið A.3 í síðustu lykkju = 10-10-10-10-12-12-12 stuðlar. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkju, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1 í síðustu lykkju. Heklið UMFERÐ 3 og 4 alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum (þ.e.a.s. heklið umferð 5 og 6 í mynsturteikningu í stærðum XL, XXL og XXXL). Nú hafa verið heklaðar 4-4-4-4-6-6-6 umferðir frá uppfitjunarkanti. Síðan er aukið út fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1 í fyrstu lykkjuna og aukið jafnframt út um 1 lykkju í þessa lykkju - lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.3 í síðustu lykkjuna = 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkju, heklið A.2 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, heklið næstu lykkju sem 1 stuðul, heklið A.1 í síðustu lykkju og aukið jafnframt út um 1 lykkju í þessari lykkju = 12-12-12-12-14-14-14 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið mynstur eins og áður og aukið jafnframt út um 2 lykkjur í byrjun umferðar með því að hekla 2 lykkjur í hverja af fyrstu 2 lykkjur í umferð, heklið eins og áður út umferðina = 14-14-14-14-16-16-16 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út um 2 lykkjur með því að hekla 2 lykkjur í hverja af síðustu 2 lykkjur í umferð = 16-16-16-16-18-18-18 lykkjur. Klippið þráðinn. Stykkið mælist ca 9-9-9-9-11-11-11 cm frá uppfitjunarkanti. FRAMSTYKKI: HÆGRI ÖXL: Heklið 12-12-12-12-14-14-14 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1 (= hoppið yfir fyrstu 3 loftlykkjurnar í umferðinni), heklið A.2 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum, heklið A.3 í síðustu lykkjuna = 10-10-10-10-12-12-12 stuðlar. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkjuna, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferðinni, heklið A.1 í síðustu lykkjuna. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.1 í fyrstu lykkju, heklið A.2 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum, heklið A.3 í síðustu lykkju = 10-10-10-10-12-12-12 stuðlar. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkju, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1 í síðustu lykkju. Heklið UMFERÐ 3 og 4 alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum (þ.e.a.s. heklið umferð 5 og 6 í mynsturteikningu í stærðum XL, XXL og XXXL). Nú hafa verið heklaðar 4-4-4-4-6-6-6 umferðir frá uppfitjunarkanti. Síðan er aukið út fyrir hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1 í fyrstu lykkjuna, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir á umferð, heklið A.3 í síðustu lykkjuna og aukið jafnframt út um 1 lykkju í þessa lykkju – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3 í fyrstu lykkjuna og aukið jafnframt út um 1 lykkju í þessa lykkju, heklið næstu lykkju sem 1 stuðul, heklið A.2 eins og áður þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.1 í síðustu lykkjuna = 12-12-12-12-14-14-14 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út um 2 lykkjur með því að hekla 2 lykkjur í hverja af síðustu 2 lykkjum í umferð = 14-14-14-14-16-16-16 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið mynstur eins og áður og aukið jafnframt út um 2 lykkjur í byrjun umferðar með því að hekla 2 lykkjur í hverja af fyrstu 2 lykkjum í umferð, heklið eins og áður eins og áður út umferðina = 16-16-16-16-18-18-18 lykkjur. Klippið ekki þráðinn, heklið nú hægri öxl og vinstri öxl saman til að mynda framstykki eins og útskýrt er hér að neðan. FRAMSTYKKI (hægri og vinstri öxl saman): Nú er hægri og vinstri öxl sett saman til að mynda framstykkið, haldið áfram frá réttu yfir lykkjurnar frá hægri öxl og heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1 í fyrstu lykkju, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, heklið A.3 í síðustu lykkjuna, heklið 14-18-22-22-22-22-28 loftlykkjur fyrir hálsmál, heklið A.1 í fyrstu lykkjuna frá réttu á vinstri öxl, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, heklið A.3 í síðustu lykkjuna = 46-50-54-54-58-58-64 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-11-12-11-12-11-12 cm frá uppfitjunarkanti á öxl og næsta umferð á að vera hekluð frá röngu, aukið út í hvorri hlið fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan – sjá LEIÐBEININGAR MÆLING. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Heklið fyrstu umferð þannig - frá röngu: Heklið A.3 í fyrstu lykkjuna og aukið jafnframt út um 1-1-1-1-0-0-0 lykkjur í þessa lykkju, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, heklið A.1 í síðustu lykkjuna og aukið jafnframt út um 1-1-1-1-0-0-0 lykkjur í þessa lykkju (= 2-2-2-2-0-0-0 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverri umferð alls 2-1-1-2-0-0-0 sinnum. Síðan er aukið út á sama hátt, en nú er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið, þ.e.a.s. heklið 2 lykkjur í hverja af 2 ystu lykkjunum í hvorri hlið. Aukið svona út í hverri umferð alls 3-4-4-5-7-9-9 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 62-68-72-78-86-94-100 lykkjur í umferð, síðasta umferðin hefur verið hekluð frá röngu og stykkið mælist ca 17-17-18-19-20-21-22 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Nú eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg – það er mikilvægt að næstu 2 umferðir séu umferðir með stuðlum og að næsta umferð sé hekluð frá réttu – ef þörf krefur, haldið áfram að hekla þannig að næsta umferð geti byrjað frá réttu: Heklið 5-6-7-8-9-10-12 loftlykkjur, snúið stykkinu, heklið A.1 (= hoppið yfir fyrstu 3 loftlykkjurnar), heklið A.2 þar til 0-1-0-1-0-1-1 lykkja eru eftir á umferð, heklið 1 stuðul í síðustu lykkjuna (á við um stærðir S, L, XXL og XXXL), heklið síðan 5-6-7-8-9-10-12 loftlykkjur í lok umferðarinnar, snúið stykkinu, heklið A.1 (= hoppið yfir fyrstu 3 loftlykkjurnar), heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir á umferð, heklið A.3 í síðustu lykkjuna = 68-76-82-90-100-110-120 lykkjur. FRAMSTYKKI (áfram niður): Heklið mynstur eins og áður – fyrsta umferð er hekluð frá röngu og heklað þannig: Heklið A.3 í fyrstu lykkjuna, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir, heklið A.1 í síðustu lykkjuna. Þegar stykkið mælist 29-32-34-36-38-40-42 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, byrjið að auka út í hvorri hlið – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING. Setjið 1 merkiþráð innan við ystu 17-17-19-19-21-23-25 lykkjur í hvorri hlið. Heklið mynstur fram og til baka eins og áður - JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju innan við merkiþráðinn í hvorri hlið - lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og stillið af þannig að aukið sé út í 5., 6. eða 7. umferð í A.2 (útauknar lykkjur eru heklaðar inn í mynstrið, en heklaðar eins og 1 fastalykkja/stuðull þar til nægilega margar útaukningar eru fyrir heila mynstureiningu af A.2 á breiddina), aukið alltaf út innan við ystu 17-17-19-19-21-23-25 lykkjur í hvorri hlið. Aukið svona út með 3-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 7-7-8-8-9-9-9 sinnum, síðan er aukið út með 4-4-4-4½-4½-4½ cm millibili alls 10 sinnum = 102-110-118-126-138-148-158 lykkjur. Heklið þar til stykkið mælist ca 120-123-126-129-132-135-137 cm frá uppfitjunarkanti á öxl – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING og stillið af þannig að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Heklið svona frá réttu: Heklið A.4a í fyrstu lykkjuna, heklið A.4b út umferðina. Klippið frá og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana – saumið kant í kant með fínum, litlum sporum. Saumið hliðarsaumana kant í kant – byrjið við handveg og saumið þar til ca 30-30-30-32-32-32 cm eru eftir neðst í hvorri hlið (= klauf). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasaumann, heklið kant með loftlykkjubogum í kringum hálsmálið með heklunál 4 þannig: Heklið A.5a í fyrstu lykkjuna, heklið A.5b þar til ca 1 cm er eftir í umferð, heklið A.5c. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið neðst í handveginum við hliðarsauminn, heklið kant með loftlykkjubogum í kringum handveginn með heklunál 4 þannig: Heklið A.5a í fyrstu lykkjuna, heklið A.5b þar til ca 1 cm er eftir í umferð, heklið A.5c. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #harvestdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.