Waterline Sweater#waterlinesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með útaukningu í axlarsæti, sléttprjóni og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-7 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (frá réttu): AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (frá röngu): AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL TIL HÆGRI Á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykkið er fyrst prjónað fram og til baka til að forma hálsmálið, síðan er berustykkið prjónað til loka í hring áður en því er skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BERUSTYKKI: Fitjið upp 66-68-70-70-72-72-74 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að lykkjurnar séu prjónaðar. Þessi merki eru notuð þegar auka á út lykkjur fyrir axlarsæti, ermar og berustykki. 1. merki: Byrjið að framan, teljið 2 lykkjur (= framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju. 2. merki: Teljið 18 lykkjur frá 1. merki, setjið 2. merki á undan næstu lykkju (= ermi). 3. merki: Teljið 26-28-30-30-32-32-34 lykkjur frá 2. merki (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju. 4. merki: Teljið 18 lykkjur frá 3. merki, setjið 4. merki á undan næstu lykkju (= ermi). Það eru 2 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta merki. Prjónið sléttprjón fram og til baka svona jafnframt því sem aukið er út fyrir axlarsæti og fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar. Lykkjur eru einungis auknar út á bakstykki og framstykkjum, lykkjufjöldinn á ermum verðu sá sami. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: * Prjónið slétt fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 72-74-76-76-78-78-80 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: * Prjónið brugðið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 78-80-82-82-84-84-86 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 84-86-88-88-90-90-92 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 90-92-94-94-96-96-98 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð = 97-99-101-101-103-103-105 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð = 104-106-108-108-110-110-112 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 8-10-12-12-14-14-16 nýjar lykkjur í umferð fyrir hálsmáli = 116-120-124-124-128-128-132 lykkjur. Það eru 18 lykkjur á hvorri ermi og 40-42-44-44-46-46-48 lykkjur á framstykki/bakstykki. Aukið hefur verið út alls 7 sinnum fyrir útaukningu á axlarsæti. Prjónið síðan hringinn yfir allar lykkjur, útaukning fyrir axlarsæti heldur áfram eins og útskýrt er að neðan. Byrjun umferðar er á vinstri hluta á framstykki, eftir hálsmál. ÚTAUKNING AXLARSÆTI: Prjónið sléttprjón hringinn jafnframt því sem aukið er út fyrir axlarsæti – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING -1. Lykkjur eru einungis auknar út á framstykki/bakstykki, fjöldi lykkja á ermum verður sá sami. Aukið er út um 4 lykkjur í hverri umferð, þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). Prjónið þessa umferð alls 11 sinnum (aukið hefur verið út alls 18 sinnum fyrir útaukningu fyrir axlarsæti) = 160-164-168-168-172-172-176 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Það eru 18 lykkjur á hvorri ermi og 62-64-66-66-68-68-70 lykkjur á bakstykki / framstykki. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING ERMAR: Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á bakstykki og framstykki verður sá sami. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur í annarri hverri umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-10-10-10-8-5-3 sinnum (= 20-20-20-20-16-10-6 umferðir prjónaðar) = 200-204-208-208-204-192-188 lykkjur. Það eru 38-38-38-38-34-28-24 lykkjur á hvorri ermi og 62-64-66-66-68-68-70 lykkjur á bakstykki / framstykki. Aukið síðan út bæði á fram- og bakstykki og á ermum eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Nú er aukið út bæði á ermum og á bakstykki og framstykki. Prjónið sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkjur í annarri hverri umferð, aukið er út á undan og á eftir hverju merki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrsta merki, aukið út til hægri, prjónið 1 lykkju, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar, prjónið út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-8-10-12-15-20-23 sinnum (= 12-16-20-24-30-40-46 umferðir prjónaðar) = 248-268-288-304-324-352-372 lykkjur. Það eru 50-54-58-62-64-68-70 lykkjur á hvorri ermi og 74-80-86-90-98-108-116 lykkjur á bakstykki / framstykki. Stykkið mælist ca 20-21-23-25-26-28-29 cm frá yst á öxl og niður (= 5 cm dýpt á útaukningu fyrir axlarsæti og 15-16-18-20-21-23-24 cm útaukning á ermum). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fram að lykkjum á ermi, setjið næstu 50-54-58-62-64-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið yfir næstu 74-80-86-90-98-108-116 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-54-58-62-64-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-6-6-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 74-80-86-90-98-108-116 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-172-184-196-216-236-256 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 46-48-50-52-53-55-57 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-28-30-34-34-38-42 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 184-200-236-230-250-274-298 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. ERMAR: Setjið til baka 50-54-58-62-64-68-70 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-6-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 54-60-64-70-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-6-6-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 1-3-4-6-7-8-9 sinnum í hverjum 4-4-4-3½-3-3-2 cm = 48-50-52-54-56-58-60 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 35-35-34-33-31-30-30 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-56-58-60-62-64-66 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 39-39-38-37-36-35-35 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu við miðju að framan og prjónið upp ca 100 til 120 lykkjur í kringum hálsmál, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-2-2-2½-2½-2½ cm. Prjónið 3 umferðir slétt (= rúllukantur) og fellið af með hringprjón 5. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #waterlinesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 39 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.