Sabrina skrifaði:
Hallo 🙋🏼♀️ Ich habe für Größe 146/152 88 Ausgangsmaschen auf der Nadel. Ich komme bei dem Setzen der vier Marker für die Raglannähte allerdings nicht auf 88 Maschen insgesamt. Habe ich eine Denkfehler? Bei mir ergeben 2x 15 Maschen für die Ärmel, 1x 27 Maschen, 1x 23 Maschen plus 4 Marker-Maschen keine 88 Maschen. Was muss ich tun? Vielen Dank vorab. Sabrina
29.01.2026 - 13:07DROPS Design svaraði:
Liebe Sabrina, Sie haben Recht, es fehlen rechnerisch 4 Maschen, es ergeben sich nur 84 Maschen, nicht 88. Das wird nun noch mal geprüft, daher haben Sie bitte noch etwas Geduld...
29.01.2026 - 21:23
MARTINE skrifaði:
SUITE DE MON MESSAGE DU 26.01. je me suis débrouillée avec les 84 mailles. Arrivée à 148 mailles, cela se complique beaucoup : augmenter 6 fois (8+4 mailles) = 148+72 mailles = 220 mailles et non 208 ? il y a beaucoup d'erreurs dans ces explications...
28.01.2026 - 23:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Martine, vous devez ensuite augmenter 10 x 4 mailles pour le devant et le dos et 5 x 4 m pour les manches, ainsi, vous aurez bien: 148+40+20=208. Lorsque vous répétez les rangs 1 à 4, vous augmentez 2 fois pour le dos/le devant et 1 seule fois pour les manches, à chaque fois que vous tricotez ces 4 rangs, vous augmentez (2x4)+(1x4)=12 m ; vous tricotez 5 x les tours 1 à 4: 5x12=60 + 148=208. Bon tricot!
29.01.2026 - 09:12
Marleen skrifaði:
Ik brei maat 9-10 j. Ik zet dus 84 st op, en als ik het werk in 4 moet verdelen voor de raglan : 2x15 voor de mouwen, 25 st voor het voorpand en 23 st voor het achterpand. Als ik die optel kom ik aan 78 st. Een verschil van 6 steken. Zie ik het verkeerd?
28.01.2026 - 22:49DROPS Design svaraði:
Dag Marleen,
Je plaatst de markeerders in de steken en niet tussen de steken. Maar dan zie ik dat je nog steeds 2 steken over hebt. Ik vermoed dat er een foutje in staat en dat er op zowel het voorpand als achterpand 25 steken moeten zijn. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling om na te kijken.
29.01.2026 - 20:10
Elvi skrifaði:
Merkkien lisääminen ei onnistu koska laskuissa on virhe. Eli 15s per hiha = 30s, 4 raglan silmukkaa= 34s loput silmukat jaetaan etu ja takakpl. Ei mene laskujen mukaan mitä ohjeessa. Esim pienin koko= luo 72s, merkkaa hihat ja raglanit (34s), etu ja takakpl 17+19, jää ylimääräisiä silmukoita 2.
27.01.2026 - 20:55
MARTINE skrifaði:
Bonsoir, Taille 9/10 ans. Je ne comprends pas la répartition des mailles à la pose des marqueurs ? 15 mailles pour chaque manche, 25 devant, 23 dos (soit 78 mailles) et 84 mailles sur mes aiguilles. ? Merci
21.01.2026 - 21:40
Berry Bramble Sweater#berrybramblesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-15 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR MERKI (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-76-76-80-84-88-88 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 27-28-28-29-30-31-31 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í slétta lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 19-21-21-23-25-27-27 lykkjur (= framstykki), Setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 19-21-21-23-25-27-27 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Nú á að auka út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar jafnframt því sem prjónað er sléttprjón hringinn – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 5-6-5-6-8-9-9 sinnum (= 10-12-10-12-16-18-18 umferðir prjónaðar) = 112-124-116-128-148-160-160 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 5-5-6-6-5-5-6 sinnum (= 20-20-24-24-20-20-24 umferðir prjónaðar = 5-5-6-6-5-5-6 sinnum útaukningar á ermum og 10-10-12-12-10-10-12 sinnum útaukningar á framstykki/bakstykki) = 172-184-188-200-208-220-232 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 15-16-17-18-18-19-21 sinnum á framstykki/bakstykki og 10-11-11-12-13-14-15 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist 13-13-14-15-16-17-18 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu lykkju slétt (tilheyrir bakstykki), setjið næstu 35-37-37-39-41-43-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 51-55-57-61-63-67-71 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 35-37-37-39-41-43-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 50-54-56-60-62-66-70 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 114-122-130-138-142-150-158 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 26-29-33-37-40-42-44 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 14-14-14-14-18-18-18 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 128-136-144-152-160-168-176 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 29-32-36-40-44-46-48 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 33-36-40-44-48-50-52 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 35-37-37-39-41-43-45 lykkjur af þræði frá ermi í annarri hlið á stykki á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 41-43-45-47-49-51-53 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 5-6-6-7-7½-8-9 cm alls 4-4-5-5-5-5-5 sinnum = 33-35-35-37-39-41-43 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 19-24-28-32-34-38-42 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 3-3-3-5-5-5-5 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 36-38-38-42-44-46-48 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 22-27-31-35-38-42-46 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #berrybramblesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.