Luise Mueller skrifaði:
Gibt es ein Video, wo man sieht, wie die stillgelegten Maschen an das obere Kopfteil genäht werden? Ich weiß nicht, wie ich das machen soll 😔
25.10.2026 - 14:39DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Mueller, für diese Naht lassen Sie sich bei diesem Video inspirieren, wir zeigen damit, wie man die angeschlagene/abgekettete Kante an der Seite genäht wird. Viel Spaß beim Fertigstellen!
26.10.2026 - 10:49
Giulia skrifaði:
La descrizione delle prime diminuzioni del collo è sbagliata, non si ottengono le maglie finali descritte. Bisognerebbe scrivere *lavorare 4 maglie come si presentano, lavorare qui a e sesta maglia insieme* Nel giro 15 *2 maglie dritto, 2 he non 4 come riportato nel modello) maglie rovescio, 2 maglie insieme a rovescio*
11.02.2026 - 23:17DROPS Design svaraði:
Buonasera Giulia, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
26.04.2026 - 14:21
Monika skrifaði:
Dzień dobry, czy to nie powinno być tak, że zostawiamy po 21 oczek z obu części kominiarki i wtedy kaptur górna część przerabiamy na środku a potem zszywamy 2 szwami z tymi oczkami na nitkach 2x21? Nie rozumiem jak mam zszyć kominiarkę o co z tymi 2 oczkami?
25.01.2026 - 11:37DROPS Design svaraði:
Witaj Moniko, wykonuj tak jak w opisie. Tylko ja by, te oczka na bokach, które są zdjęte na nitki, zamknęła, a nie zostawiała na nitkach. Wtedy łatwiej będzie Ci zszyć kominiarkę. Pozdrawiamy!
28.01.2026 - 09:18
Crystal Chill Balaclava#crystalchillbalaclava |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð húfa / balaklava / lambhúshetta fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í stroffprjóni. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-18 |
||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BALAKLAVA / LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring neðan frá og upp, síðan eru lykkjur felldar af í kringum opnun andlitsins og hettan prjónuð fram og til baka. Síðan eru lykkjurnar settar á þráð í hvorri hlið og prjónað er fram og til baka yfir efra stykkið / toppstykkið. Lykkjurnar á þræði eru saumaðar að hliðum á efra stykki / toppstykki. Í lokin er prjónaður upp kantur í kringum opnun andlitsins. HÁLSMÁL: Fitjið upp 312-324-336-348-360-372-384 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Baby Merino. Prjónið 4-4-6-6-6-8-8 umferðir stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið). Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 260-270-280-290-300-310-320 lykkjur. UMFERÐ 1 og 2: Prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 8 lykkjur brugðið). UMFERÐ 3: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 6 lykkjur brugðið, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* út umferðina = 234-243-252-261-270-279-288 lykkjur. UMFERÐ 4 og 5: Prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 7 lykkjur brugðið). UMFERÐ 6: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið saman, 5 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina = 208-216-224-232-240-248-256 lykkjur. UMFERÐ 7 og 8: Prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 6 lykkjur brugðið). UMFERÐ 9: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* út umferðina = 182-189-196-203-210-217-224 lykkjur. UMFERÐ 10 og 11: Prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 5 lykkjur brugðið). UMFERÐ 12: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið saman, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina = 156-162-168-174-180-186-192 lykkjur. UMFERÐ 13 og 14: Prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 4 lykkjur brugðið). UMFERÐ 15: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina = 130-135-140-145-150-155-160 lykkjur. UMFERÐ 16 og 17: Prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið). UMFERÐ 18: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina = 104-108-112-116-120-124-128 lykkjur. Prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 10-10-10-11-11-12-12 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið með því að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjóna þráðinn snúið brugðið = 130-135-140-145-150-155-160 lykkjur. Prjónið 2 umferðir stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið). Í næstu umferð eru felldar af 12-12-12-12-12-17-17 fyrstu lykkjurnar fyrir opi fyrir andlit = 118-123-128-133-138-138-143 lykkjur. Setjið 1 merki í stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. HETTA: Stykkið er núna prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna. Prjónið stroffprjón eins og áður jafnframt því sem felld er af 1 lykkja í byrjun hverrar umferðar 7 sinnum í hvorri hlið (= 14 umferðir prjónaðar og 14 lykkjur færri) = 104-109-114-119-124-124-129 lykkjur. Haldið áfram með stroffprjón eins og áður með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, í hvorri hlið í ca 17-18-19-20-20-21-21 cm frá merki, síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn, héðan er núna stykkið mælt frá. Setjið fyrstu og síðustu 40-40-40-45-45-45-50 lykkjur á þráð = 24-29-34-29-34-34-29 lykkjur fyrir miðju í umferð (= efra stykki / toppstykki). Haldið áfram að prjóna yfir efra stykki / toppstykki eins og útskýrt er að neðan. EFRA STYKKI / TOPPSTYKKI: Byrjið frá réttu og prjónið fram og til baka í stroffprjóni eins og áður yfir 24-29-34-29-34-34-29 lykkjur í umferð – prjónið þar til efra stykki / toppstykki mælist ca 12-12-12-13½-13½-13½-15 cm. Síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Efra stykkið / toppstykkið á að vera aðeins lengra en 40-40-40-45-45-45-50 lykkjurnar í hliðunum, þannig að lykkjurnar á þráðum í hvorri hlið teygjast aðeins á breiddina þegar þær eru saumaðar að hliðunum á efra stykkinu / toppstykkinu (þetta er gert svona þar sem stroffprjónið teygist út við notkun). Látið 24-29-34-29-34-34-29 lykkjurnar hvíla á hjálparprjóni – ekki klippa þráðinn, það á að prjóna áfram héðan eftir frágang á hettunni. FRÁGANGUR: Saumið lykkjur af þráðum í hvorri hlið við hliðar á efra stykki / toppstykki, saumið innan við ystu lykkju á efra stykki / toppstykki – notið e.t.v. lykkjuspor. KANTUR: Nú á að prjóna kant í kringum op fyrir andlit. Byrjið frá réttu og prjónið stroffprjón eins og áður yfir 24-29-34-29-34-34-29 lykkjur á efra stykki / toppstykki JAFNFRAMT sem fækkað er um 1 lykkju brugðið í hverri brugðinni einingu (= 4-5-6-5-6-6-5 lykkjur færri – stroffprjónið á að ganga upp með 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið = 20-24-28-24-28-28-24 lykkjur), prjónið upp 100-104-108-116-116-120-124 lykkjur innan við 1 kantlykkju í kringum restina af andlitsopinu = 120-128-136-140-144-148-148 lykkjur – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið síðan stroffprjón (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 5-5-5½-5½-5½-6-6 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið tvöfalt að röngu og saumið niður í uppfitjunarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crystalchillbalaclava eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.