Forest Cub Balaclava#forestcubbalaclava |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð húfa / balaklava / lambhúshetta fyrir börn úr DROPS Lima og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með eyrum. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-1 |
||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. ÚRTAKA FYRIR EYRA: Það eru 25 lykkjur fyrir eyra, nú á að prjóna 2 og 2 lykkjur slétt saman frá hvorri hlið þar til 1 lykkja er eftir (= 24 lykkjur færri). Prjónið þannig: Setjið 12 lykkjur af vinstri prjóni yfir á hægri prjón (án þess að prjóna þær) eins og prjóna eigi þær brugðið, losið um þráðinn ca 5 cm að aftan á stykkinu svo að hann herði ekki síðar á eyranu, prjónið 1 lykkju slétt (= miðjulykkjan á eyra) og setjið þessa lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, * færið 1 lykkju af hægri prjóni yfir á vinstri prjón og prjónið 2 lykkjur slétt saman, setjið þessa nýju lykkju á kaðlaprjóninn, lyftið annarri lykkju af kaðlaprjóni yfir nýju lykkjuna (= þ.e. það er aðeins 1 lykkja á kaðlaprjóninum) *, prjónið frá *-* þar til allar 25 eyrnalykkjurnar eru orðnar aðeins 1 lykkja á kaðlaprjóninum, setjið þessa síðustu lykkju af kaðlaprjóni aftur á hægri prjóninn, herðið vel á þræðinum. Í næstu umferð er hægt að loka gatinu eftir eyrnalykkjunni með því að taka upp þráðinn á milli eyrnalykkju og næstu lykkju og prjóna snúið saman með næstu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BALAKLAVA / LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Hettan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og yfir enni og aftur á bak. Lykkjur eru auknar út og fækkað fyrir eyru. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp í hvorri hlið og prjónað er fram og til baka ofan frá og niður. Þegar hettan hefur verið prjónuð til loka, eru lykkjur fitjaðar upp undir opnun hettunnar og síðan er hálsmálið prjónað í hring á prjóninum. Að lokum er prjónaður kantur í kringum opnun andlitsins. EFRA STYKKI / TOPPSTYKKI: Fitjið upp 21-21-21-23-23-23-23 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Lima og DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Uppfitjunarkantur = miðja að framan á enni. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 4-4-4-4-4-5-5 cm – síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Munið að fylgja prjónfestunni. Nú eru lykkjur auknar út fyrir eyru, aukið út 4 lykkjur (= 2 lykkjur fyrir hvort eyra) bæði frá réttu og frá röngu. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Prjónið 5-5-5-6-6-6-6 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja fyrir eyra), aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 9 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja fyrir eyra), aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 5-5-5-6-6-6-6 lykkjur slétt = 25-25-25-27-27-27-27 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Prjónið 5-5-5-6-6-6-6 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið (= lykkjur fyrir eyra), aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 9 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið (= lykkjur fyrir eyra), aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 5-5-5-6-6-6-6 lykkjur brugðið = 29-29-29-31-31-31-31 lykkjur. Aukið síðan út á sama hátt, en aukið alltaf út að utanverðu við útauknu lykkjurnar fyrir eyrað. Það eru alltaf 5-5-5-6-6-6-6 lykkjur hvoru megin við efra stykkið / toppstykki fyrir útaukningu fyrir eyraða og 9 lykkjur á milli útaukninga fyrir eyrað í miðjunni ofan á efra stykki / toppstykki. Prjónið alls 12 umferðir með útaukningum fyrir eyrað, þannig að það eru 25 lykkjur fyrir hvort eyra = 69-69-69-71-71-71-71 lykkjur. Nú eru 25 lykkjur fyrir hvort eyra í hvorri hlið, þessar 25 lykkjur verða nú að 1 lykkju. Prjónið þannig: Prjónið 5-5-5-6-6-6-6 lykkjur slétt, prjónið ÚRTAKA FYRIR EYRA – lesið leiðbeiningar að ofan (= 25 lykkjur verða nú að 1 lykkju), prjónið 9 lykkjur slétt, prjónið úrtöku fyrir seinna eyra á sama hátt og á fyrri eyra (= 25 lykkjur verða að 1 lykkju), prjónið 5-5-5-6-6-6-6 lykkjur slétt = 21-21-21-23-23-23-23 lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka í sléttprjóni þar til stykkið mælist 12-13-14-14-15-15-15 cm. Klippið þráðinn, þetta stykki myndar toppinn fyrir miðju ofan á húfu. HETTA: Nú á að prjóna upp lykkjur meðfram báðum hliðum á efra stykki / toppstykki innan við ystu lykkju þannig: Byrjið frá horni við uppfitjunarkantinn á efra stykki / toppstykki og prjónið upp 21-22-24-24-26-26-26 lykkjur meðfram annarri hliðinni frá réttu (= hægri hlið frá réttu þegar uppfitjunarkanturinn snýr að þér), prjónið slétt yfir 21-21-21-23-23-23-23 lykkjur frá efra stykki / toppstykki, prjónið síðan upp 21-22-24-24-26-26-26 lykkjur meðfram hinni hliðinni (= vinstri hlið frá réttu þegar uppfitjunarkanturinn snýr að þér) = 63-65-69-71-75-75-75 lykkjur. Síðar er stykkið mælt frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur færri). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 55-57-61-63-67-67-67 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 12-13-14-15-16-17-17 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp meðfram hliðinni. Setjið 1 merki í miðjulykkju í umferð, þannig að það eru 27-28-30-31-33-33-33 lykkjur hvoru megin við lykkju með merki. Nú á að auka út í hvorri hlið jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir miðju að aftan hvoru megin við merki. Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (merkið situr í miðju af þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri, endið með 2 lykkjur slétt (= 2 lykkjur fleiri og 2 lykkjur færri) = 55-57-61-63-67-67-67 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 55-57-61-63-67-67-67 lykkjur. Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig: Prjónið slétt yfir allar lykkjur, í lok umferðar eru fitjaðar upp 7-9-9-11-9-11-13 nýjar lykkjur í umferð = 62-66-70-74-76-78-80 lykkjur. Stykkið mælist ca 16-17-18-19-20-21-21 cm frá kanti þar sem lykkjur voru fitjaðar upp. Setjið 1 merki í stykkið, stykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið hálsmál í hring í stroffprjóni eins og útskýrt er að neðan. HÁLSMÁL: Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 2 cm frá merki. Nú er aukið út í stroffi (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) með því að prjóna næstu umferð þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina = 93-99-105-111-114-117-120 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 5-5-6-6-6-6-6 cm frá merki. Nú er aukið út í stroffi (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) með því að prjóna næstu umferð þannig: * Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina = 124-132-140-148-152-156-160 lykkjur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 11-11-12-12-13-13-14 cm frá merki. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR: Nú á að prjóna kant í kringum op fyrir andlit. Notið hringprjón 4 og 1 þráð í hvorri tegund, byrjið fyrir miðju í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan. Prjónið upp ca 84-88-92-96-100-104-106 lykkjur í kringum opið frá réttu – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Haldið áfram hringinn frá réttu í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 4-4-4½-4½-5-5-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið affellingarkantinn inn og saumið affellinguna að uppfitjunarkanti (saumið í aðra hverja lykkju) – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestcubbalaclava eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.