Caramel Haze Cardigan#caramelhazecardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki, tvöföldum kanti í hálsmáli og i-cord. Stærð XS - XXL.
DROPS 262-22 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6 Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 125 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d.16 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 6,4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjurnar eru prjónaðar upp í miðjunni undir erminni getur myndast lítið gat í opinu milli lykkjunnar frá fram- og bakstykki og erminni. Þú getur lokað þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli lykkjanna tveggja - þráðurinn er snúinn saman við fyrstu lykkjuna á milli fram- og bakstykkis og ermarinnar, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7½-7½-6½-7-7 cm á milli hverra hnappagata. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 125-129-135-139-145-151 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky eða DROPS Daisy. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 8 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með strott þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-4-5-5-5 cm. Setjið eitt merki að innanverðu við kant að framan í annarri hliðinni á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 109-113-119-123-129-135 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 17-25-27-23-25-31 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kantlykkjur að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan = 142-154-162-162-170-182 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 2-3-3-3½-3½-3½ cm frá merki, aukið út lykkjur með því að prjóna MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: A.1: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.1 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum á berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður = 172-187-197-232-244-262 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.2: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.2 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum á berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður = 202-220-232-267-281-302 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.3: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.3 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum á berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður = 232-253-267-302-318-342 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.4: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.4 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum á berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður = 262-286-302-337-355-382 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.5: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.5 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum á berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður = 292-319-337-372-392-422 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.6: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.6 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum á berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður = 322-352-372-407-429-462 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan þar til stykkið mælist 21-23-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan – JAFNFRAMT sem í fyrstu umferð er aukið út um 6-4-8-9-11-14 lykkjur jafnt yfir (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 328-356-380-416-440-476 lykkjur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 56-61-64-69-74-81 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 96-106-112-122-132-146 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 56-61-64-69-74-81 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 224-244-260-280-304-332 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-46-47-49-51 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 45-45-49-55-61-63 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 269-289-309-335-365-395 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 60-64-70-78-80-84 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-5-3½-2½-2½-2 cm alls 6-7-10-12-13-14 sinnum = 56-58-60-64-66-68 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-39-41-39-37-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-12-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 68-70-72-78-80-82 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-43-45-44-42-41 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #caramelhazecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.