Amalie skrifaði:
Hi! I'm knitting this sweater in size xs and has had to recalculate all the yoke increases because the stitch count doesn't add up. For the 2 stockinette then an increase all the way down to the 6 stockinette then an increase, it's one more stockinette stitch before the increase for the stitch count to match. Just thought I'd let you guys know that if you do it completely as the pattern says, you'll have WAY too many stitches by the end of the yoke and the arms will sit weird.
17.02.2026 - 06:54DROPS Design svaraði:
Hi Amalie, In your size you have 81 stitches after the first even increase. Then you increase 27 stitches = 108, increase 27 stitches = 135, increase 27 stitches = 162, increase 27 stitches = 189 and finally increase 27 stitches = 216 stitches. Each time you increase you work 1 extra stitch between each increased stitch so there are always 27 increased stitches on the round. Hope this helps, Regards, Drops Team.
18.02.2026 - 07:06
Rikke skrifaði:
Tak for svaret. Det er netop det, der undrer mig. Uanset om jeg går op eller ned i pindestørrelse, kan jeg ikke få strikkeprøven til at blive 10 cm i bredden. Jeg har prøvet både væsentligt tyndere og tykkere pinde end anbefalet, men bredden ændrer sig ikke tilsvarende. Har I et bud på, hvad det kan skyldes?
06.02.2026 - 14:08DROPS Design svaraði:
Hei Rikke. Man burde få strikkefastheten med å bytte pinner. Har du prøv å bytte til andre kvaliteter i pinner? Bambus eller plast, istedenfor stål? mvh DROPS Design
09.02.2026 - 14:36
Rikke skrifaði:
Ja, jeg strikker i DROPS Melody, men desværre kan jeg ikke få strikkefastheden til at passe i bredden. Har I et tip til, hvordan jeg bedst kan få den til at stemme?
05.02.2026 - 12:33DROPS Design svaraði:
Hej Rikke, hvis du har for mange masker på 10 cm, så skal du prøve med en tykkere pind :)
06.02.2026 - 13:43
Rikke skrifaði:
Hej Jeg har udfordringer med at få strikkeprøven til at passe og kan ikke ramme den angivne strikkefasthed, uanset om jeg går op eller ned i pindestørrelse. Jeg har prøvet både tyndere og markant tykkere pinde end anbefalet. Har I et bud på, hvad det kan skyldes? Eller kan der evt. være en fejl i den oplyste strikkefasthed i opskriften?
05.02.2026 - 10:36DROPS Design svaraði:
Hej Rikke, strikker du i DROPS Melody? Hvis ja så kan du se til at strikkefastheden stemmer i bredden, og så følger du målene i højden ifølge opskriften :)
05.02.2026 - 11:38
Kafy skrifaði:
Hallo :) Ich stricke den Sweater in Größe L und weiß bei der zweiten Zunahme für die Passe nicht weiter. Ich soll 35x *2re, 1M in der nächsten M zunehmen*. Allerdings reichen diese 35 Mal nicht für die gesamten 105 Maschen auf der Nadel aus. Heißt, ab einer gewissen Maschenanzahl sind die 35 Zunahmen vorbei. Wie soll der Rest der Maschen gestrickt werden? Glatt rechts? Kommt es dann nicht zu einer unsymmetrischen Passe?
28.10.2025 - 10:52DROPS Design svaraði:
Liebe Kafy, doch, das geht auf. Sie haben 105 Maschen und nehmen in jeder 3. Masche zu. D.h. 2 Maschen stricken, 1 Masche in der nächsten Masche zunehmen, 2 Maschen stricken, 1 Masche in der nächsten Masche zunehmen usw. Das geht 35 x, denn 105 Maschen durch 35 = 3 Maschen (also 2 gestrickte Maschen, 1 Masche, in der zugenommen wird). Es bedeutet also z.B. nicht, dass Sie nach jeder 2. Masche einen Umschlag machen, Sie müssen die Zunahme IN einer Masche wie im Zunahmetipp beschrieben arbeiten. Viel Spaß beim Weiterstricken!
28.10.2025 - 23:45
Tide Song Sweater#tidesongsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-24 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þessi samhverfa útaukning gefur 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1-4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið fyrstu lykkju af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni inn aftan í lyftu lykkjuna og síðan inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Sláið 1 sinni uppá prjóninn með þráðinn utan um hægri prjón og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndist 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppið fremri lykkjuboga af vinstri prjóni og prjónið síðan 1 lykkju slétt í fremri hluta á hinum lykkjuboganum. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 74-76-80-84-88-90-94 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Melody. Prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Setjið 1 merki eftir ca 25-26-27-28-30-30-32 lykkjur (= ca fyrir miðju að framan), merkin eru notuð til að mæla frá. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 7-14-16-21-20-24-29 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 81-90-96-105-108-114-123 lykkjur. Prjónið 2-2-2-2-2-2-2 cm sléttprjón. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið næstu umferð þannig: * 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING *, prjónið frá *-* alls 27-30-32-35-36-38-41 sinnum = 108-120-128-140-144-152-164 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3½-4 cm sléttprjón. Prjónið næstu umferð þannig: * 3 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 27-30-32-35-36-38-41 sinnum = 135-150-160-175-180-190-205 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3-4 cm sléttprjón. Prjónið næstu umferð þannig: * 4 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 27-30-32-35-36-38-41 sinnum = 162-180-192-210-216-228-246 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3-4 cm sléttprjón. Prjónið næstu umferð þannig: * 5 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 27-30-32-35-36-38-41 sinnum = 189-210-224-245-252-266-287 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3-4 cm sléttprjón. Prjónið næstu umferð þannig: * 6 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 27-30-32-35-36-38-41 sinnum = 216-240-256-280-288-304-328 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni án þess að auka út þar til berustykkið mælist 19-20-23-23-23-25-26 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 42-48-52-56-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 66-72-76-84-88-94-102 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 42-48-52-56-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 66-72-76-84-88-94-102 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-156-168-184-196-212-228 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 45-47-49-50-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 22-22-24-26-24-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 166-178-192-210-220-240-260 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm er fellt af. Peysan mælist 47-49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 42-48-52-56-56-58-62 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 48-54-60-64-66-70-74 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 15-11-5-4½-4-3½-3 cm alls 3-4-7-8-9-10-11 sinnum = 42-46-46-48-48-50-52 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 46-45-43-44-43-42-41 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-6-6-6-6-8-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-52-52-54-54-58-58 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm fellið af. Ermin mælist ca 48-47-45-46-46-45-44 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tidesongsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.