Judith skrifaði:
To Laura, I just received the wool and I noticed that the Brushed Alpaca Silk feels a bit thinner than the Alpaca bouclé, so I guess the gauge will not be the same with 2 strands of Alpaca Silk. I am just a beginner in knitting though, so I hope someone from Drops wille give you a more definite answer.
09.03.2026 - 20:41DROPS Design svaraði:
Dear Judith, you can substitute 1 strand Brushed Alpaca Silk with 2 strands Kid-Silk but of course, as yarns are different, result will be different, but tension should be then the same. Note that this jumper is worked with 2 strands together: 1 strand Alpaca Bouclé + 1 strand Brushed Alpaca Silk, remember to check your tension, you should have 12 sts and 15 rows stocking stitch = 10 x 10 cm, with needle size 7 mm or the size required to get these measurements. Happy knitting!
10.03.2026 - 09:51
Laura skrifaði:
Is it possible to use two strands of BRushed Alpaca Silk?
23.02.2026 - 13:01DROPS Design svaraði:
Dear Laura, you can use two strands of Brushed Alpaca Silk. Happy knitting!
01.03.2026 - 20:50
Mrs G Clinton skrifaði:
Do drops do any of their sweater patterns, from bottom up. , as I'm not familiar with patterns From top down Or can I just use Any pattern from bottom up with same size or Needles to be suitable for drops wool. Thanks.
28.12.2025 - 15:18
Frost Bloom Sweater#frostbloomsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni ofan frá og niður með laskalínu, blöðruermum og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-23 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. I-CORD AFFELLING: Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftið þessum 3 nýju lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn sem prjónað er með á stykkinu, þannig að það myndast lítill snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið til baka 3 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu. Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kantinum. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 68-68-72-72-78-82-82 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 21-21-22-22-23-24-24 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt jafnframt því sem fækkað er um 10-10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 58-58-62-62-66-70-70 lykkjur. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við þessar laskalykkjur. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 7 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 20-20-22-22-24-26-26 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 7 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 20-20-22-22-24-26-26 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 14-15-17-18-18-18-19 sinnum = 170-178-198-206-210-214-222 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Útaukningu fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 2-3-2-2-3-4-5 sinnum til viðbótar = 178-190-206-214-222-230-242 lykkjur í umferð (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 22-24-25-27-28-30-32 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón (= þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 35-37-41-43-43-43-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 54-58-62-64-68-72-76 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 35-37-41-43-43-43-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 53-57-61-63-67-71-75 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 120-132-140-148-160-172-180 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 6-8-8-10-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm frá merki fyrir miðju að framan. Fellið af með I-CORD AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan. Peysan mælist 53-55-57-59-61-63-65 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 56-58-60-62-64-66-68 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 35-37-41-43-43-43-45 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 7 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 41-45-49-53-55-57-59 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-8-10-12-14-14 lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-6-4-3½-3-4-3 cm alls 3-3-4-4-4-3-3 sinnum = 35-39-41-45-47-51-53 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 18-17-16-15-14-13-12 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð er aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir = 38-42-44-48-50-54-56 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 21-20-19-18-17-16-15 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir = 42-46-48-52-54-58-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-39-38-37-36-35 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð er fækkað um 13-15-15-16-16-16-17 lykkjur jafnt yfir = 29-31-33-36-38-42-43 lykkjur. Fellið af með i-cord affellingu. Ermin mælist ca 42-41-40-39-38-37-36 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostbloomsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.