DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 4 tegundum af ullargarni!
Product image DROPS Nord yarn
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 880.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Winter Meringue Sweater

Prjónuð oversize / stór peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með skáhallandi öxl, háum kraga og i-cord. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 262-2

#wintermeringuesweater

DROPS Design: Mynstur no-100
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S – M – L – XL – XXL – XXXL

GARN:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-400-450-500-550-600 litur 01, Natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-175-200-200-225-250 gr litur 01, Natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 4,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 880.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

I-CORD AFFELLING:
Notið hringprjón 4,5 og fitjið upp 3 lykkjur á hægri prjón með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Lyftið þessum 3 nýju lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni.
UMFERÐ 1 (rétta):
Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu 3 lykkjur snúnar slétt saman (þ.e.a.s.1 lykkja frá framstykki og 1 lykkja frá bakstykki er felld af). Lyftið 3 lykkjum af hægri prjóni til baka yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu (þegar prjónað er þá herðist á þræðinum sem prjónað er með, þannig að það myndast snúrukantur).
Endurtakið UMFERÐ 1 þar til einungis 3 lykkjur eru eftir. Fellið af og festið þræðina.

LEIÐBEININGAR PRJÓN:
Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig:
Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum).
Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breytið eftir þörfum.
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka, fram og til baka.
Axlalykkjurnar frá framstykki og bakstykki eru felldar af saman með i-cord. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 280-302-332-354-380-406-436 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Nord og DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 12-12-12-12-13-13-13 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 86-94-102-110-118-126-134 lykkjur jafnt yfir = 194-208-230-244-262-280-302 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 35-36-36-37-38-38-39 cm. Munið að fylgja prjónfestunni. Nú er lykkjum fækkað við handveg og stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki.

SKIPTING VIÐ HANDVEG:
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki, prjónið þannig:
Fellið af fyrstu 4-4-6-8-10-12-14 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 93-100-109-114-121-128-137 næstu lykkjur, fellið af næstu 4-4-6-8-10-12-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðustu 93-100-109-114-121-128-137 lykkjur.
Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka hvort fyrir sig fram og til baka.

BAKSTYKKI:
= 93-100-109-114-121-128-137 lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka jafnframt því sem lykkjum er fækkað við handveg í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu þannig:
Prjónið 3 lykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur saman, prjónið 3 lykkjur (= 2 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 2-3-6-7-8-10-13 sinnum = 89-94-97-100-105-108-111 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 55-57-58-60-62-63-65 cm, er prjónað þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 5 (= rétta):
Prjónið 22-24-25-26-28-29-30 lykkjur, fellið af næstu 29-30-31-32-33-34-35 lykkjur, prjónið þar til 12 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið og prjónið síðan vinstri öxl bakstykki (lykkjurnar fyrir hægri öxl hvíla á prjóninum).

VINSTRI ÖXL BAKSTYKKI:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 2 (= rétta): Fellið af fyrstu 2 lykkjurnar, prjónið þar til 16 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 4 (= rétta): Fellið af fyrstu lykkjuna, prjónið þar til 20 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina.

UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 6 og 7 alls 1-1-2-2-2-3-3 sinnum.

Látið allar 27-29-30-31-33-34-35 lykkjurnar frá vinstri öxl bakstykki hvíla á hjálparprjóni, það á fella þær af síðar saman með lykkjum frá vinstri öxl framstykki.

HÆGRI ÖXL BAKSTYKKI:
Byrjið frá röngu og prjónið yfir lykkjurnar frá hægri öxl bakstykki þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 12 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 3 (= ranga): Fellið af fyrstu 2 lykkjurnar, prjónið brugðið þar til 12 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 5 (= ranga): Fellið af fyrstu lykkjuna, prjónið brugðið þar til 20 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina.

UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir áður en snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 8 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 7 og 8 alls 1-1-2-2-2-3-3 sinnum.

Látið allar 27-29-30-31-33-34-35 lykkjurnar frá hægri öxl bakstykki hvíla á hjálparprjóni, það á fella þær af síðar saman með lykkjum frá hægri öxl framstykki.

FRAMSTYKKI:
= 93-100-109-114-121-128-137 lykkjur.
Prjónið á sama hátt og á bakstykki þar til stykkið mælist 55-57-58-60-62-63-65 cm = 89-94-97-100-105-108-111 lykkjur. Síðasta umferðin er prjónuð frá röngu jafnframt því sem 17-18-19-20-21-22-23 miðjulykkjurnar eru felldar af. Ekki klippa þráðinn, haldið áfram að prjóna yfir vinstri öxl á framstykki eins og útskýrt er að neðan (lykkjurnar fyrir hægri öxl hvíla á prjóninum).

VINSTRI ÖXL FRAMSTYKKI:
= 36-38-39-40-42-43-44 lykkjur.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Fellið af fyrstu 3 lykkjurnar, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 4 (= ranga): Fellið af fyrstu 2 lykkjurnar, prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 6 (= ranga): Fellið af fyrstu 2 lykkjurnar, prjónið þar til 12 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 8 (= ranga): Fellið af fyrstu lykkjuna, prjónið þar til 16 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 10 (= ranga): Fellið af fyrstu lykkjuna, prjónið þar til 20 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 11 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina.

UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 13 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 12 og 13 alls 1-1-2-2-2-3-3 sinnum.

Látið allar 27-29-30-31-33-34-35 lykkjurnar frá vinstri öxl framstykki hvíla á hjálparprjóni, það á fella þær af síðar saman með lykkjum frá vinstri öxl bakstykki.

HÆGRI ÖXL:
= 36-38-39-40-42-43-44 lykkjur.
Byrjið frá réttu og prjónið yfir lykkjurnar frá hægri öxl framstykki þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Fellið af fyrstu 3 lykkjurnar, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 3 (= rétta): Fellið af fyrstu 2 lykkjurnar, prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 5 (= rétta): Fellið af fyrstu 2 lykkjurnar, prjónið þar til 12 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 7 (= rétta): Fellið af fyrstu lykkjuna, prjónið þar til 16 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina.
UMFERÐ 9 (= rétta): Fellið af fyrstu lykkjuna, prjónið þar til 20 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. 4 lykkjum áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti), snúið stykkinu.
UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina.

UMFERÐ 11 (= rétta): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir áður en þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið brugðið út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 11 og 12 alls 1-1-2-2-2-3-3 sinnum.

Látið allar 27-29-30-31-33-34-35 lykkjurnar frá hægri öxl framstykki hvíla á hjálparprjóni, það á fella þær af síðar saman með lykkjum frá hægri öxl bakstykki.

FRÁGANGUR:
Axlalykkjurnar eru felldar af með lykkjum bæði frá framstykki og bakstykki. Fyrst eru allar lykkjur frá hægri öxl framstykki og hægri öxl bakstykki settar á sama prjón þannig að önnur hver lykkja í umferðinni tilheyrir framstykki og bakstykki = 54-58-60-62-66-68-70 lykkjur. Fellt er af frá réttu séð frá framstykki með I-CORD AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan.

Fellið af með i-cord affellingu á sama hátt á vinstri öxl.

ERMAR:
Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við.
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = miðja ofan á öxl.
Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 3,5 og byrjið fyrir miðju í lykkjum sem felldar voru af undir ermi – prjónið upp 68-72-80-88-94-100-106 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merkið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna til að ermin fái betra form og passi betur, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4.
Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 16-16-18-20-22-24-28 sinnum (= 8-8-9-10-11-12-14 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðina er frá röngu).

Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ:
Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu að byrjun umferðar (miðja undir ermi).
Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota merkiþráðinn þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu.
Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig:
Þegar ermin mælist 1 cm mælt fyrir miðju undir ermi fækkið um 2 lykkjur 2-2-3-4-5-6-7 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 12-8-5-3½-3-2½-2 cm alls 2-3-5-7-7-8-9 sinnum = 60-62-64-66-70-72-74 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-40-40-39-39-39 cm frá miðju ofan á öxl – ermin mælist ca 33-33-32-32-30-29-27 cm frá miðju undir ermi.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 26-26-30-30-32-32-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 86-88-94-96-102-104-106 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 12-12-12-12-13-13-13 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 52-52-52-52-52-52-52 cm frá miðju ofan á öxl.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir), prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig:
Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 124-128-140-140-146-152-156 lykkjur – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2.
Prjónið 2 umferðir slétt.
Í næstu umferð er hver lykkja prjónuð þannig:
Finnið lykkjuna sem liggur 2 umferðum beint fyrir neðan næstu lykkju í umferð, takið upp þessa lykkju í efri lykkjubogann frá röngu og lyftið lykkjuboganum upp á vinstri prjón. Prjónið lykkjubogann og fyrstu lykkjuna slétt saman. Endurtakið umferðina hringinn.
Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 16-16-16-16-17-17-17 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og brjótið kant í hálsmáli að réttu.

Mynstur

Diagram for DROPS 262-2

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintermeringuesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (2)

country flag Elie skrifaði:

Merci pour votre réponse. Il serait bien d'ajouter un filtre de difficulté à vos modèles. Je suis débutante et j'aimerais pouvoir trier les modèles que vous proposez afin de connaître ceux que je suis capable de tricoter. Merci :)

17.10.2025 - 15:28

country flag Elie skrifaði:

Quelles sont les mensurations du modèle en photo et la taille tricotée du pull porté s'il vous plaît ?

15.10.2025 - 23:05

DROPS Design svaraði:

Bonjour Elie, le pull en photo a la taille S ou M. Comment choisir votre taille, vous trouverez ICI. Bon tricot!

16.10.2025 - 09:02