Cocoa Ridge Vest#cocoaridgevest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti úr DROPS Polaris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, v-hálsmáli, sléttprjóni og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-26 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Á framstykkjum eru lykkjur prjónaðar upp meðfram annarri öxlinni frá bakstykki. Síðan er prjónað niður að handvegi JAFNFRAMT því sem aukið er út við hálsmál og handveg. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 10-10-10-12-12-12-12 lykkjur á hringprjón 12 með DROPS Polaris. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 2 og 3 þar til aukið hefur verið út alls 10-10-12-12-12-14-14 sinnum í hvorri hlið (= 20-20-24-24-24-28-28 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru 30-30-34-36-36-40-40 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan sléttprjón og I-CORD í hvorri hlið (= 2 lykkjur) – lesið leiðbeiningar að ofan. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 13-13-13-12-11-9-8 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er lykkjum aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið i-cord, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 1 lykkja slétt, prjónið i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með i-cord í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-3-3-4-5-6-7 sinnum (= 4-6-6-8-10-12-14 umferðir prjónaðar) = 34-36-40-44-46-52-54 lykkjur í umferð. Endið með 1 umferð frá réttu. Stykkið mælist 17-18-18-19-20-20-21 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið leiðbeiningar að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 10-10-12-12-12-14-14 lykkjur, prjónið síðan upp 1 lykkju í hvora af næstu 2 umferðum niður á bakstykkið = 12-12-14-14-14-16-16 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið með i-cord í hvorri hlið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið i-cord, slétt þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 27-28-30-29-30-32-33 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út fyrir v-hálsmáli, jafnóðum og einnig er aukið út í hlið við handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, lestu því 2 næstu kafla áður en þú prjónar áfram, til að fá betri yfirsýn yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið i-cord, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið i-cord. Aukið hefur verið út um 1 lykkju. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með i-cord í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-5-6-6-6-6 sinnum (= 10-10-10-12-12-12-12 umferðir prjónaðar). ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 33-33-35-34-33-33-32 cm, byrjar útaukning fyrir handveg. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið i-cord, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt og i-cord. Aukið hefur verið út um 1 lykkju. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með i-cord í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-3-3-4-5-6-7 sinnum (= 4-6-6-8-10-12-14 umferðir prjónaðar). Það eru 19-20-22-24-25-28-29 lykkjur í umferð. Endið með 1 umferð frá réttu. Stykkið mælist ca 37-38-40-41-42-44-45 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl frá bakstykki – lesið leiðbeiningar að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið 2 umferðir niður meðfram hlið á bakstykki, prjónið upp 1 lykkju í hvora af 2 umferðum, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 10-10-12-12-12-14-14 lykkjur) = 12-12-14-14-14-16-16 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið með i-cord í hvorri hlið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið i-cord, slétt þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 27-28-30-29-30-32-33 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út fyrir v-hálsmáli, jafnóðum og einnig er aukið út í hlið við handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, lestu því 2 næstu kafla áður en þú prjónar áfram, til að fá betri yfirsýn yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið i-cord, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 1 lykkju slétt og i-cord. Aukið hefur verið út um 1 lykkju. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með i-cord í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-5-6-6-6-6 sinnum (= 10-10-10-12-12-12-12 umferðir prjónaðar). ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 33-33-35-34-33-33-32 cm, byrjar útaukning fyrir handveg. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið i-cord, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið i-cord. Aukið hefur verið út um 1 lykkju. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með i-cord í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-3-3-4-5-6-7 sinnum (= 4-6-6-8-10-12-14 umferðir prjónaðar). Það eru 19-20-22-24-25-28-29 lykkjur í umferð. Endið með 1 umferð frá réttu. Stykkið mælist ca 37-38-40-41-42-44-45 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu – byrjið með lykkjur frá hægra framstykki og prjónið síðan umferðina þannig: Prjónið 19-20-22-24-25-28-29 lykkjur frá hægra framstykki (nú er i-cord kanturinn einungis prjónaður yfir fyrstu 2 lykkjurnar), fitjið upp 2-4-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðan 34-36-40-44-46-52-54 lykkjur frá bakstykki brugðið, fitjið upp 2-4-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 19-20-22-24-25-28-29 lykkjur frá vinstra framstykki (nú er i-cord kanturinn einungis prjónaður yfir síðustu 2 lykkjurnar) = 76-84-96-104-112-124-132 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni og i-cord við miðju að framan. Prjónið þar til stykkið mælist ca 16-17-18-19-20-21-22 cm frá handveg – það eru eftir ca 4 cm að loka máli. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað á framstykkjum þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið i-cord, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið i-cord.+ UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með i-cord í hvorri hlið. Prjónið eins og UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum = 72-80-92-100-108-120-128 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í umferð = 75-79-91-99-107-119-127 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 10 og prjónið i-cord eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og i-cord eins og áður. Prjónið stroff eins og útskýrt er að ofan í 3 cm. Vestið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm, mælt frá innst við hálsmál og ca 48-50-52-54-56-58 cm, yst á öxl. Fellið af. SNÚRA: Klippið 2 þræði DROPS Polaris ca 60 cm, leggið þræðina saman tvöfalt og þræðið í gegnum ystu lykkju í annarri hliðinni á framstykki, þar sem útaukningu fyrir v-hálsmáli lauk. Dragið alla endana á þræðinum að þér. Haldið tveimur þráðunum saman og fléttið þriggja þráða fléttu (1 + 1 + 2 þræðir). Hnýtið hnút neðst á fléttunni og endurtakið á sama hátt á hinu framstykkinu. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cocoaridgevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.