Ribs and Roses Cardigan#ribsandrosescardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með útaukningu fyrir axlarsæti, i-cord og klukkuprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-4 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar lykkjur eru taldar, er uppslátturinn ekki talin sem eigin lykkja. KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka - á við um berustykki og fram- og bakstykki): UMFERÐ 1 (= ranga): * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppslátturinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með að slá 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. UMFERÐ 3 (= ranga): * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 uppsláttur er eftir og 1 lykkja, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman. EFTIR UMFERÐ 3: Endurtakið síðan umferð 2 og 3. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 2 lykkjur í slétta lykkju og uppslátt með því að prjóna 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppslættinum af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri). Nú er lykkjum lyft af vinstri prjóni. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í klukkuprjóni, en útauknar lykkjur eru ekki með uppslátt í næstu umferð og því eru lykkjurnar prjónaðar stakar í fyrsta skipti sem prjónað er. Alltaf er aukið út í sléttu lykkjuna sem er næst merki. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur að framan mælist 8-9-9-8-8-8½-9 cm. Síðan er fellt af fyrir 4-4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 8-9-9-8-8-8½-9 cm milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli klukkuprjóns og stroffs, neðst á fram- og bakstykki. Fellt er af fyrir síðustu 2 hnappagötunum þegar kantur í hálsmáli er prjónaður, fellið af fyrir fyrra hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu í kanti í hálsmáli, fellið af fyrir seinna hnappagati þegar kantur í hálsmáli mælist 8-8-8-8-9-9-9 cm. KLUKKUPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermar): UMFERÐ 1: Haldið áfram frá þar sem 5-7-7-9-9-9-13 lykkjur voru prjónaðar upp undir ermi og prjónið yfir lykkjur frá berustykki þannig: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina að lykkju fyrir miðju undir ermi. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar undir ermi í klukkuprjóni, en athugið að nýjar lykkjur eru ekki með uppslátt í fyrsta skipti sem þær eru prjónaðar. UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Endurtakið UMFERÐ 3: Endurtakið síðan umferð 2 og 3. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hálsmáli og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. BERUSTYKKI: Fitjið upp 53-53-53-53-55-55-55 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð í KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan (= ranga). Nú eru sett 4 merki í stykkið, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þetta er gert án þess að prjóna umferðina þannig: Teljið 3 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merki á undan næstu lykkju, teljið 13 lykkjur (= útaukning fyrir axlarsæti), setjið 1 merki á undan næstu lykkju, teljið 21-21-21-21-23-23-23 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki á undan næstu lykkju, teljið 13 lykkjur (= útaukning fyrir axlarsæti), setjið 1 merki á undan næstu lykkju, teljið 3 lykkjur (= hægra framstykki), setjið 1 merki á undan næstu lykkju. Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og haldið áfram að prjóna fram og til baka frá 2. umferð í klukkuprjóni og með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt því sem aukið er út fyrir bæði ÚTAUKNING AXLARSÆTI og ÚTAUKNING HÁLSMÁL eins og útskýrt er að neðan – lestu því næstu 2 kafla áður en þú prjónar áfram. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. ÚTAUKNING AXLARSÆTI: Þegar prjónaðar hafa verið alls 3 umferðir fram og til baka í klukkuprjóni (= næsta umferð er prjónuð frá réttu), aukið út 2 lykkjur í sléttu lykkjuna og uppsláttinn hvoru megin við 13 útaukningslykkjur fyrir axlarsæti – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 8 nýjar lykkjur í hverri útaukningsumferð). Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð með sýnilegum klukkuprjónslykkjum á hæðina) alls 4 sinnum á hæðina. ATH! Í hvert skipti sem aukið er út verða fleiri og fleiri lykkjur á framstykkjum og á bakstykki – það eiga alltaf að vera 13 lykkjur í hverri útaukningu fyrir axlarsæti, lykkjufjöldinn á framstykkjum og bakstykki eykst. Það á alltaf að auka út í nýju sléttu lykkjuna sem er næst merki. ÚTAUKNING HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar auka á út fyrir útaukningu fyrir axlarsæti í 2. skipti á hæðina, byrjar útaukning fyrir hálsmáli að framan þannig: Aukið út 2 lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. 2 á hvoru framstykki). Útaukningin er gerð í klukkuprjónslykkju (= slétt lykkja + uppsláttur) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 lykkjur brugðið við miðju að framan – þannig að það verður 1 lykkja brugðið á milli útaukningu í hálsmáli og kantlykkju við miðju að framan. Aukið út fyrir hálsmáli í 8. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð með sýnilegum klukkuprjónslykkjum á hæðina) alls 2 sinnum. Það á alltaf að auka út í sléttu lykkjuna þannig að það verður 1 lykkja brugðið + 1 kantlykkja við miðju að framan. Nú hefur verið aukið út 4 sinnum fyrir útaukningu fyrir axlarsæti og 2 sinnum í hvorri hlið fyrir hálsmáli. Endið með eina umferð frá röngu, í lok þessarar umferðar eru fitjaðar upp 12 nýjar lykkjur. Snúið stykkinu, prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið klukkuprjón eins og áður og fitjið upp 12 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar = 117-117-117-117-119-119 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið, útaukning fyrir útaukning fyrir axlarsæti heldur áfram eins og áður. Haldið áfram í klukkuprjóni og með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið og aukið út eins og áður þar til aukið hefur verið út alls 9-10-11-11-12-12-13 sinnum fyrir útaukning fyrir axlarsæti, þ.e.a.s. auknar eru út 8 lykkjur í 4. hverri umferð. ATH! Jafnframt þegar kantur að framan mælist 8-9-9-8-8-8½-9 cm byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Nú eru 157-165-173-173-183-183-191 lykkjur í umferð, 37-39-41-41-43-43-45 lykkjur á hvoru framstykki, 57-61-65-65-71-71-75 lykkjur á bakstykki og 13 lykkjur á hvorri útaukningu fyrir axlarsæti. ÚTAUKNING ERMAR: Nú á einungis að auka út á ermum. Aukið er út í sömu sléttu lykkju + uppslátt og áður, en nýjar lykkjur eiga nú að koma á ermum, ekki á fram- og bakstykki. Færið merkin sem sitja í stykki í hina hliðina á sléttu lykkjunni sem aukið er út í. Það á alltaf að auka út í nýju sléttu lykkjuna sem er næst merki. Haldið áfram í klukkuprjóni og kanta að framan eins og áður, aukið út 2 lykkjur í sléttu lykkjuna og uppsláttinn hvoru megin við 13 útaukningslykkjur fyrir axlarsæti – í hvert skipti sem aukið er út verða fleiri og fleiri lykkjur á ermi (lykkjur fyrir útaukningu fyrir axlarsæti), lykkjufjöldinn á framstykkjum og bakstykki verður óbreyttur. Aukið svona út í 8. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð með sýnilegum klukkuprjónslykkjum á hæðina) alls 6-7-8-8-9-10-10 sinnum á hæðina = 205-221-237-237-255-263-271 lykkjur. Útaukning-ermi mælist ca 13-16-18-18-20-22-22 cm. ÚTAUKNING FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú á einungis að auka út á framstykkjum/bakstykki. Aukið er út í sömu sléttu lykkju + uppslátt eins og áður, en nýjar lykkjur eiga núna að koma á fram- og bakstykki, ekki á ermum. Færið merkin sem sitja í stykki í hina hliðina á sléttu lykkjuna sem auka á út í . Það á alltaf að auka út í nýju sléttu lykkjuna sem er næst merki. Haldið áfram í klukkuprjóni eins og áður, aukið út 2 lykkjur í slétta lykkju hvoru megin við framstykkin/bakstykki – í hvert skipti sem aukið er út verða fleiri og fleiri lykkju á framstykkjum/bakstykki, útaukning á ermi er lokið. Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð með sýnilegum klukkuprjónslykkjum á hæðina) alls 1-1-1-2-2-3-4 sinnum á hæðina = 213-229-245-253-271-287-303 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 19-22-24-25-27-30-31 cm mælt yst á ermi þegar stykkið liggur samanbrotið við öxl (mælt ásamt útaukningu fyrir axlarsæti = hálf útaukning fyrir axlarsæti er ca 5 cm + ca 14-17-19-20-22-25-26 cm niður á við á fram- og bakstykki meðfram handveg). Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað áfram í klukkuprjóni án útaukninga að réttu máli. Síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 39-41-43-45-47-49-53 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 37-41-45-45-49-53-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-7-7-9-9-9-13 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 61-65-69-73-79-83-91 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 37-41-45-45-49-53-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-7-7-9-9-9-13 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 39-41-43-45-47-49-53 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 149-161-169-181-191-199-223 lykkjur. Prjónið klukkuprjóni og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-55-57-59-61-63 cm frá efsta punkti á öxl (inn að hálsmáli). Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig. Prjónið kant að framan eins og áður * prjónið brugðna lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið kant að framan eins og áður = 217-235-247-265-280-292-328 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu: Prjónið kant að framan eins og áður, * prjónið 1 lykkju slétt, prjónið uppsláttinn slétt, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið uppsláttinn slétt, endið með kant að framan eins og áður. Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 1 lykkju slétt) með kant að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-5-5-5 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 56-58-60-62-64-66-68 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 37-41-45-45-49-53-53 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5. Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju í hverja af 5-7-7-9-9-9-13 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-48-52-54-58-62-66 lykkjur. Til að klukkuprjónslykkjurnar komi til með að ná fallega yfir á ermarnar er fyrsta umferðin prjónuð í hring þannig: Haldið áfram frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp 5-7-7-9-9-9-13 lykkjur undir ermi, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina – athugið vel að nýjar lykkjur eru ekki með uppslætti í fyrsta skipti sem þær eru prjónaðar. Prjónið síðan í KLUKKUPRJÓN (prjónað í hring) – lesið leiðbeiningar að ofan, þar til ermin mælist 35-32-28-29-26-25-24 cm frá skiptingunni – stillið af að síðasta umferðin sem er prjónuð, sé þar sem uppslátturinn er prjónaður brugðið saman. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið umferð 1 þannig: * Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 39-36-33-34-31-30-29 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 113 til 121 lykkjur (verður að vera oddatala) í kringum hálsmál á hringprjón 4 – passið uppá að prjónuð sé upp 1 lykkja í hverja lykkju frá kanti að framan. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt), prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið stroff (1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) með kant að framan í hvorri hlið – munið eftir síðustu 2 hnappagötunum. Þegar stroffið mælist 16-16-16-16-17-17-17 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ribsandrosescardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.