Juliet Blushes#julietblushes |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur / vesti úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni, i-cord og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-30 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (í hliðum á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (í hliðum á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum 6 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum á sama hátt við hinn merkiþráðinn. 2 KANTLYKKJUR: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT (ofan frá og niður): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar prjónaður hefur verið ca 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 4 næstu hnappagötum með ca 5-5-5½-5½-6-6 cm bili á milli hverra hnappagata. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í umferð, ofan frá og niður. Það er prjónað í sléttprjóni með 2 kantlykkjum í i-cord í hvorri hlið. Byrjað er að fitjað upp lykkjur fyrir band á öxl / hlýra á hægra framstykki og prjónað er niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki fyrir handveg og v-hálsmáli. Þegar handvegur og v-hálsmál hefur verið prjónað til loka, er hægra framstykkið látið bíða á meðan prjónuð eru 3 stykki fyrir vinstra framstykki og hægra og vinstra bakstykki. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Í lokin eru bönd á öxlum saumuð saman á öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 7-7-9-9-11-11 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Cotton Light og prjónið sléttprjón með 2 KANTLYKKJUR í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til band á öxl / hlýri mælist 5-5-6-6-6-6 cm, endið eftir umferð frá röngu. Nú er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Haldið áfram með kantlykkjur og sléttprjón, aukið út 1 lykkju í hvorri hlið, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 kantlykkjur í hvorri hlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Haldið áfram með kantlykkjur og sléttprjón og aukið út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 5-5-6-7-7-8 sinnum = 17-17-21-23-25-27 lykkjur í umferð. Haldið áfram með kantlykkjur og sléttprjón, en nú er einungis aukið út í 4. hverri umferð að hlið (byrjun umferðar frá réttu) og í annarri hverri umferð við miðju að framan (= byrjun umferðar frá réttu). Aukið út með þessum hætti þar til aukið hefur verið út 8 sinnum við miðju að framan og 4 sinnum við miðju að hlið = 29-29-33-35-37-39 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og kantlykkjur, nú er aukið út í hvorri hlið í annarri hverri umferð. Aukið út með þessum hætti 5-6-6-7-8-9 sinnum, nú hefur verið aukið út 18-19-20-22-23-25 sinnum við miðju að framan og 14-15-16-18-19-21 sinnum að hlið = 39-41-45-49-53-57 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-19-20-22-22-24 cm frá efst á bandi á öxl / hlýra, endið með umferð frá réttu (án útaukninga). Klippið þráðinn. Prjónið 1 stykki til viðbótar á sama hátt (= vinstra bakstykki). VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 7-7-9-9-11-11 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Cotton Light og prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjur í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til band á öxl / hlýri mælist 5-5-6-6-6-6 cm, endið eftir umferð frá röngu. Nú er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Haldið áfram með kantlykkjur og sléttprjón, aukið út 1 lykkju í hvorri hlið, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 kantlykkjur í hvorri hlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Haldið áfram með kantlykkjur og sléttprjón og aukið út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 5-5-6-7-7-8 sinnum = 17-17-21-23-25-27 lykkjur í umferð. Haldið áfram með kantlykkjur og sléttprjón, en nú er einungis aukið út í 4. hverri umferð að hlið (lok umferðar frá réttu) og í annarri hverri umferð við miðju að framan (= byrjun umferðar frá réttu). Aukið út með þessum hætti þar til aukið hefur verið út 8 sinnum við miðju að framan og 4 sinnum við miðju að hlið = 29-29-33-35-37-39 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og kantlykkjur, nú er aukið út í hvorri hlið í annarri hverri umferð. Aukið út með þessum hætti 5-6-6-7-8-9 sinnum, nú hefur verið aukið út 18-19-20-22-23-25 sinnum við miðju að framan og 14-15-16-18-19-21 sinnum að hlið = 39-41-45-49-53-57 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-19-20-22-22-24 cm frá efst á bandi á öxl / hlýra, endið með umferð frá réttu (án útaukninga). Klippið þráðinn. Prjónið 1 stykki til viðbótar á sama hátt (= hægra bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú á að setja stykkin saman, það er gert frá röngu þannig: Prjónið 39-41-45-49-53-57 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 14-16-16-18-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 39-41-45-49-53-57 lykkjur frá hægra bakstykki, prjónið 39-41-45-49-53-57 lykkjur frá vinstra bakstykki, fitjið upp 14-16-16-18-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 39-41-45-49-53-57 frá vinstra framstykki = 184-196-212-232-256-280 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 14-16-16-18-22-26 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Látið síðan merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur eins og áður og aukið út 1 lykkju, prjónið 35-37-41-45-49-53 lykkjur slétt, prjónið GARÐAPRJÓN yfir næstu 18-20-20-22-26-30 lykkjur – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið slétt yfir næstu 35-37-41-45-49-53 lykkjur, setjið næstu 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt (= fyrstu 2 lykkjur frá næsta stykki), prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt, prjónið slétt yfir næstu 35-37-41-45-49-53 lykkjur, prjónið garðaprjón yfir næstu 18-20-20-22-26-30 lykkjur, prjónið slétt yfir næstu 35-37-41-45-49-53 lykkjur, aukið út 1 lykkju og prjónið 2 kantlykkjur eins og áður. Prjónið síðan sléttprjón með 2 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður og garðaprjón yfir 18-20-20-22-26-30 lykkjur í hvorri hlið þar til prjónaðar hafa verið alls 4 umferðir garðaprjón á hæðina yfir þessar lykkjur. Útaukning við miðju að framan heldur áfram þar til aukið hefur verið út 3 sinnum við miðju að framan (eftir að stykkin voru sett saman) = 190-202-218-238-262-286 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður – fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægra framstykki – lesið leiðbeiningar að ofan. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 13-13-14-14-15-15 cm frá þar sem stykkin voru sett saman = 182-194-210-230-254-278 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-19-20-21-22-22 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri) = 186-198-214-234-258-282 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 24-25-26-25-27-27 cm frá þar sem stykkin voru sett saman. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff jafnframt því sem aukið er út um 17-19-19-21-23-27 lykkjur jafnt yfir í umferð = 203-217-233-255-281-309 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið 2 kantlykkjur eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 kantlykkjur eins og áður. Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3 cm, fellið af. Stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman bönd á öxlum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #julietblushes eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.