Hanin Mousleh skrifaði:
När det står virka diagram A,1A. Menas då att man ska virka en luftmask och sen ett helt varv fasta maskor eller betyder det att man ska virka två luftmaskor. Jag förstår inte helt hur man ska följa diagrammen.
04.04.2025 - 23:06DROPS Design svaraði:
Hei Hanin. A.1A hekles kun over 1 maske. 1. omgang av A.1A består kun av 1 luftmaske, deretter hekles det etter diagram A.1B hele omgangen rundt (følg beskrivelsen i oppskriften). 2. omgang av A.1A består også av bare 1 maske. Les gjerne mer her: Tips & Hjälp - LEKTIONER - Läs ett mönster - Hur man läser virkdiagram. mvh DROPS Design
07.04.2025 - 14:12
Boho Breeze Bag#bohobreezebag |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Hekluð taska úr DROPS Bomull Lin. Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp.
DROPS 256-12 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur): Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út í annarri hverri umferð þannig: Byrjið við merkiþráðinn sem situr í byrjun umferðar. Heklið 2 fastalykkjur í fyrstu lykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan hinum merkiþræðinum, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkjur (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykku þar til 1 fastalykkja er eftir, heklið 2 fastalykkjur í síðustu lykkju (= 4 fastalykkjur fleiri). 3 STUÐLAR HEKLAÐIR Í 1 STUÐUL: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul til viðbótar á sama hátt í hvora af næstu 2 lykkjum, en dragið uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp. Í lokin er botninn heklaður saman. TASKA: Heklið 120 loftlykkjur með heklunál 4,5 með DROPS Bomull Lin og tengið þær í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð – lesið HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan. Heklið mynsturteikningu A.1A, heklið A.1B umferðina hringinn = 120 fastalykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 60 fastalykkjur (= hliðar á stykki) – látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Þegar öll mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina er síðasta umferðin í mynsturteikningu endurtekin jafnframt því sem aukið er út í annarri hverri umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, aukið svona út alls 4 sinnum = 136 lykkjur (68 lykkjur hvoru megin við hvorn merkiþráð), heklaðar hafa verið 9 umferðir með fastalykkjum. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Heklið 1 umferð A.1 eins og áður, JAFNFRAMT sem aukið er út um 4 fastalykkjur jafnt yfir á milli merkiþráða í hvorri hlið á töskunni (= 8 lykkjur fleiri í umferð) = 144 fastalykkjur, það eru 72 lykkjur á milli merkiþráða. Haldið áfram með A.1 eins og áður þar til stykkið mælist 14 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er heklað eftir mynsturteikningu A.2 þannig: Heklið A.2A, heklið A.2B umferðina hringinn. Þegar öll mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina er síðasta umferðin endurtekin í mynsturteikningu þar til stykkið mælist 32 cm frá uppfitjunarkanti. KANTUR OG AXLARÓL: Nú er heklað eftir mynsturteikningu A.3 þannig: Heklið A.3A, heklið A.3B umferðina hringinn. Það eru heklaðar 3 umferðir með fastalykkjum. Nú er axlarólin hekluð þannig: UMFERÐ 1: Heklið A.1A, heklið A.1B yfir næstu 19 fastalykkjur, * heklið 88 loftlykkjur (= axlaról) – passið uppá að loftlykkjurnar séu ekki heklaðar of fast (loftlykkjuröðin á að mælast ca 55 cm), hoppið yfir næstu 32 fastalykkjur *, heklið A.1B yfir næstu 40 fastalykkjur *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og heklið A.1B yfir síðustu 20 fastalykkjur = 256 lykkjur. UMFERÐ 2: Heklið A.1A, heklið A.1B yfir næstu 17 lykkjur, * heklið 3 STUÐLAR HEKLAÐIR Í 1 STUÐUL – lesið leiðbeiningar að ofan, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 86 loftlykkjur (það er eftir 1 loftlykkja á undan næstu fastalykkju), heklið 3 stuðla í 1 stuðul *, heklið A.1B yfir næstu 36 fastalykkjur, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og heklið A.1B yfir síðustu 18 fastalykkjur = 248 lykkjur. UMFERÐ 3: Heklið A.1A, * heklið A.1B fram að 3 stuðlum sem heklaðir voru saman á undan axlaról, heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir þar sem heklað var saman, heklið 1 stuðul í hvern stuðul að þar sem 3 stuðlar voru heklaðir saman í lok axlarólar, heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir þar sem heklað var saman *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og heklið A.1B út umferðina. UMFERÐ 4: Hekli A.1A, * heklið A.1B fram að loftlykkju, heklið 1 stuðul um loftlykkju, heklið 1 stuðul í hvern stuðul fram að næstu loftlykkju, heklið 1 stuðul um loftlykkju *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og heklið A.1B út umferðina. Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Snúið töskunni við þannig að hægt sé að hekla botninn á töskunni saman frá röngu. Byrjið í hlið og heklið í gegnum bæði lögin, heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju meðfram öllum botninum á töskunni. Klippið og festið þráðinn. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bohobreezebag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 256-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.