Bouabdallah skrifaði:
Bonjour quel est le diamètre du bouton ? Merci.
05.05.2025 - 15:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bouabdallah, le bouton mesure environ 25 mm de diamètre, retrouvez-le ici. Bon crochet!
06.05.2025 - 09:22
Bouabdallah skrifaði:
Je vous remercie pour votre réponse, et le petit carré. Comme je crochète serré, j'utilise un crochet numéro 4.
03.05.2025 - 07:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bouabdallah, peu importe la taille de votre crochet, pour que le sac ait les bonnes dimensions finales, vous devez avoir le bon échantillon, soit 18 brides x 10,5 rangs = 10 x 10 cm ou bien 18 mailles serrées x 21 rangs = 10 x 10 cm; et ainsi, votre carré fera environ 24 x 24 cm et le sac environ 34 x 34 cm. Bon crochet!
05.05.2025 - 07:25
Bouabdallah skrifaði:
Je vous remercie pour votre réponse, et le petit carré. Comme je crochète serré, j'utilise un crochet numéro 4.
02.05.2025 - 16:13
Bouabdallah skrifaði:
Bonjour, quelles sont les dimensions des granny. Merci
02.05.2025 - 15:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bouabdallah, 1 grand carré mesure environ 24 x 24 cm - retrouvez toutes ces infos, y compris l'échantillon et les quantités requises en haut de page sous l'onglet "Explications". Bon crochet!
02.05.2025 - 15:58
Claudia skrifaði:
Habe diese Tasche nachgehäkelt. Schnell gemacht, schaut super aus. Ich hatte nur das Gefühl, dass das beigefarbene Garn 1-2 Stränge dünner ist als das blaue. Das habe ich so gelöst, dass ich das blaue etwas enger gehäkelt habe, sonst hätte es sich unschön gewellt. Bin mit dem Ergebnis aber super zufrieden. Danke an das Team für diese tolle Anleitung.
02.05.2025 - 13:49
Elena skrifaði:
Non riesco a capire come posso avere la stessa larghezza del campione con un numero di punti diverso fra punto alto e punto basso.....
02.04.2025 - 18:47DROPS Design svaraði:
Buonasera Elena, le misure del campione sono corrette. Buon lavoro!
12.04.2025 - 17:45
Coastal Letter Bag#coastalletterbag |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Hekluð taska með ömmuferningum úr DROPS Bomull-Lin.
DROPS 256-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. LITIR: Heklað er þannig: * 2 umferðir í litnum dökk blár, 2 umferðir í litnum beige *, heklið frá *-* þar til heklaðar hafa verið alls 12 umferðir. Síðasta umferðin er hekluð í litnum beige. LITASKIPTI: Til að fá falleg litaskipti þegar skipt er um lit, heklið keðjulykkju í lok umferðar með nýja litnum sem skipta á yfir í. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning A.2 til A.4 er notuð fyrir frágang. HEKLAÐ SAMAN: Leggið 2 stóra ferninga saman kant í kant svo hægt sé að hekla þá saman. Byrjið fyrir miðju í horni og heklið þannig: * Stingið heklunálinni niður frá réttu og í gegnum aftari lykkjubogann á öðrum ferningnum, stingið síðan heklunálinni niður frá réttu og í gegnum aftari lykkjubogann á hinum ferningnum, sækið þráðinn og dragið þráðinn í gegnum báðar lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* þar til ferningarnir hafa verið heklaðir saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Taskan samanstendur af 3 stórum ferningum og 1 litlum ferningi. Stóru 3 ferningarnir eru heklaðir saman. Litli ferningurinn er saumaður niður á bakhlið á töskuna, þessi ferningur er með lykkju / hneslu sem er hneppt á framhlið á töskunni. Í lokin er hekluð axlaról. STÓR FERNINGUR: Notið heklunál 3,5 og DROPS Bomull-Lin í litnum dökk blár. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR , LITIR og LITASKIPTI í útskýringu að ofan og heklið MYNSTUR A.1. 4 fyrstu umferðirnar hafa verið teiknaðar inn í A.1, síðan er heklað áfram á sama hátt þar til heklaðar hafa verið alls 12 umferðir með stuðlum = 144 stuðlar og 4 loftlykkjubogar. Nú er hekluð 1 umferð með fastalykkjum í litnum beige þannig: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul umferðina hringinn, um hvern loftlykkjuboga í horni eru heklaðar 5 fastalykkjur = 164 fastalykkjur. Klippið og festið þráðinn. Heklið 3 alveg eins ferninga. LÍTILL FERNINGUR: Fitjið upp og heklið eins og stór ferningur, en stoppið þegar heklaðar hafa verið 2 umferðir í litnum dökk blár og 1 umferð í litnum beige. Nú á að hekla 1 umferð til viðbótar með litnum beige, jafnframt því sem gerð er ein lykkja / hnesla fyrir tölu. Heklið A.1 eins og áður þar til 1 horn er eftir á ferningnum, heklið 3 stuðla, 9 loftlykkjur (= lykkja / hnesla fyrir tölu) og 3 stuðlar um hornið, heklið eins og áður út umferðina. Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Mynsturteikning A.2 og A.3 sýnir töskuna séð frá framhlið og bakhlið. Þegar ferningarnir hafa verið heklaðir saman er heklað til skiptis frá framhlið og bakhlið án þess að klippa þráðinn. Takið fram 3 stóru ferningana, brjótið þá saman þannig að þeir myndi þríhyrninga og passið uppá að þeir liggi með sömu hlið upp. Leggið þá eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2. Notið heklunál 3,5 og litinn beige, byrjið við ör með töluna 1. Heklið saman fyrstu 2 ferningana í stefnu eins og örvar sýna – lesið HEKLAÐ SAMAN í útskýringu að ofan. Þegar heklað hefur verið fram að horni er stykkinu snúið við. Sjá mynsturteikningu A.3 og heklið frá ör með töluna 2. Heklið ferningana saman að næsta horni, ekki snúa stykkinu. Nú hafa fyrstu 2 ferningarnir verið heklaðir saman og nú er síðasti ferningurinn heklaður niður. Heklið 1 loftlykkju og heklið síðan frá ör með töluna 3. Þegar heklað hefur verið fram að horni eru stykkinu aftur snúið. Sjá mynsturteikningu A.2 og heklið frá ör með töluna 4. Þegar heklað hefur verið fram að byrjun á umferð endar umferðin með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Klippið og festið þráðinn. Nú á að festa litla ferninginn niður við stóru ferningana, sjá mynsturteikningu A.4 sem útskýrir hvar festa á ferninginn. Saumið ferninginn niður meðfram bakhlið á töskunni, saumið lykkju við lykkju og passið uppá að lykkjan / hneslan snúi upp. Saumið töluna á framhlið á töskuna eins og útskýrt er í teikningu og hneppið lykkjunni / hneslunni í töluna. AXLARÓL: Notið heklunál 3,5 og litinn beige. Heklið loftlykkjur þar til loftlykkjuröðin mælist ca 145 cm – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið 2 fastalykkjur í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju þar til 1 loftlykkja er eftir í umferð, heklið 3 loftlykkjur í síðustu loftlykkju, snúið stykkinu þannig að hægt sé að hekla frá gagnstæðri hlið við loftlykkjur í loftlykkjuröð. Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju út umferðina, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Klippið og festið þráðinn. Þræðið axlarólinni í gegnum hornið á annarri hlið á töskunni, þræðið síðan út í gegnum hornið á hinni hliðinni á töskunni. Hnýtið endana saman á axlarólinni. Þegar taskan er notuð þá verður axlarólin tvöföld. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #coastalletterbag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 256-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.