Dancing Darling Top#dancingdarlingtop |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tölum, böndum á öxlum og pífu. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-7 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið 2 lykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið 2 lykkjur þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón en í gagnstæða átt (stingið inni vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið fyrstu 4 lykkjur eins og áður, þ.e.a.s. uppslátturinn er prjónaður slétt. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu eftir 1 cm. Fellið síðan af fyrir 4-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 7-6-6½-7-6-6 cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli fram- og bakstykki og pífu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru prjónuð 4 bönd á öxl / hlýrar. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað hvort fyrir sig fram og til baka og prjónað er ofan frá og niður. Framstykkið og bakstykkið er sett saman fyrir fram- og bakstykki, síðan er fram- og bakstykkið prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BÖND / HLÝRAR: Prjónuð eru 4 bönd á öxl / hlýrar (= 2 bönd fyrir framstykki og 2 bönd fyrir bakstykki). Prjónið band / hlýra þannig: Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjón 5 með DROPS Paris. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til bandið mælist ca 30 cm. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. BAKSTYKKI: Nú á að fitja upp lykkjur fyrir bakstykki á milli 2 af böndum, notið hringprjón 5 og prjónið þannig: Prjónið slétt frá réttu yfir 4 lykkjur frá einu af böndum, fitjið upp 40-42-43-45-49-52 nýjar lykkjur í umferð, endið með að prjóna sléttar lykkjur frá réttu yfir 4 lykkjur af einu af hinu bandinu = 48-50-51-53-57-60 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju í 40-42-43-45-49-52 nýjar lykkjur í umferð, stykkið er nú mælt frá þessu merki. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 2 lykkjur i-cord. Nú er prjónað fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 2 lykkjur i-cord í hvorri hlið jafnframt því sem aukið er út fyrir handveg. Aukið út 1 lykkju í hvorri hlið innan við 4 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, aukið út frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 11-12-13-15-16-17 sinnum = 70-74-77-83-89-94 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 10-11-12-14-15-16 cm frá merki. Klippið þráðinn og geymið stykkið á meðan hægra framstykkið er prjónað. HÆGRA FRAMSTYKKI: Notið hringprjón 5 og prjónið þannig: Prjónið yfir 4 lykkjur frá einu af böndum frá réttu, fitjið upp 20-21-22-23-25-26 nýjar lykkjur í umferð = 24-25-26-27-29-30 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju í 20-21-22-23-25-26 nýjar lykkjur í umferð, stykkið er nú mælt frá þessu merki. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 2 lykkjur i-cord. Nú er prjónað fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 2 lykkjur i-cord í annarri hliðinni JAFNFRAMT því sem fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan og aukið er út fyrir handveg. Aukið út 1 lykkju í annarri hliðinni innan við 4 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, aukið út frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur slétt (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 11-12-13-15-16-17 sinnum = 35-37-39-42-45-47 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 10-11-12-14-15-16 cm frá merki. Klippið þráðinn og geymið stykkið á meðan vinstra framstykkið er prjónað. VINSTRA FRAMSTYKKI: Notið hringprjón 5 og prjónið þannig: Fitjið upp 20-21-22-23-25-26 nýjar lykkjur í umferð, endið með að prjóna yfir 4 lykkjur frá bandi / hlýra frá réttu = 24-25-26-27-29-30 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju í 20-21-22-23-25-26 nýjar lykkjur í umferð, stykkið er nú mælt frá þessu merki. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur i-cord, 1 lykkja slétt, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur brugðið. Nú er prjónað fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 2 lykkjur i-cord í annarri hliðinni JAFNFRAMT er aukið út fyrir handveg. Aukið út 1 lykkju í annarri hliðinni innan við 4 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, aukið út frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið og 2 lykkjur i-cord (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 11-12-13-15-16-17 sinnum = 35-37-39-42-45-47 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 10-11-12-14-15-16 cm frá merki. Ekki klippa þráðinn, nú eru framstykkin og bakstykkið prjónað saman fyrir fram- og bakstykki slétt, fitjið upp 4-8-12-14-16-20 nýjar lykkjur í umferð, prjónið 70-74-77-83-89-94 lykkjur frá bakstykki slétt frá réttu, fitjið upp 4-8-12-14-16-20 nýjar lykkjur í umferð, prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá hægra framstykki frá réttu þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur slétt = 148-164-179-195-211-228 lykkjur í umferð. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-164-179-195-211-228 lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 29-31-33-35-36-38 cm frá miðju að aftan. Prjónið 1 umferð frá röngu þar sem fækkað er um 2-0-3-1-5-4 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir ystu 4 lykkjur í hvorri hlið) = 146-164-176-194-206-224 lykkjur. Nú á að auka út fyrir pífu, prjónið frá réttu þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið A.1 alls 23-26-28-31-33-36 sinnum, endið með 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 215-242-260-287-305-332 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm frá merki – pífan mælist ca 9-9-9-9-10-10 cm. Fellið af aðeins laust með aðra hverja lykkju slétt og brugðið. Toppurinn mælist 38-40-42-44-46-48 cm frá merki fyrir miðju að aftan – hnýtið bandið yfir axlirnar ca 6 cm frá framstykki eða í óskaða hæð. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dancingdarlingtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.