Elena skrifaði:
C'è un errore, credo nella spiegazione degli aumenti nel dietro: "lavorare a diritto fino a quando rimangono 4 maglie, 1 maglia diritto, 1 maglia rovescio e finire con 2 maglie ad I-cord (= 2 maglie aumentate)" manca l'aumento alla fine del ferro
30.05.2025 - 00:40DROPS Design svaraði:
Buongiorno Elena, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
01.06.2025 - 14:26
Elisa Soster skrifaði:
There's a mistake in the pattern: I-CORD: END OF ROW: Work 2 stitches as follows: Work until 2 stitches remain on needle, slip 1 stitch purlwise with strand in front of piece, knit 1. SHOULD BE : Work until 2 stitches remain on needle, knit 1, slip 1 stitch purlwise with strand in front of piece.
21.04.2025 - 12:53DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Soster, I-Cord edge is correct, that's how it is supposed to be worked, see also in this video how to work these 2 -cord edge both at the beg and at the end of a row. Happy knitting!
23.04.2025 - 08:33
Gudrun skrifaði:
Er det mulig å hekle denne? I såfall, hvordan?
18.04.2025 - 20:36DROPS Design svaraði:
Hei Gudrun, Akkurat denne toppen har vi ikke hekle oppskrift til. Men du finner våre heklet topper hvis du skriver "heklet topp" i søkeboksen. God fornøyelse!
23.04.2025 - 06:52
Dancing Darling Top#dancingdarlingtop |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með böndum á öxlum, i-cord og pífu. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-8 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið 2 lykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið 2 lykkjur þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón en í gagnstæða átt (stingið inni vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru prjónuð 4 bönd á öxl / hlýrar. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað hvort fyrir sig fram og til baka og prjónað er ofan frá og niður. Framstykkið og bakstykkið er sett saman fyrir fram- og bakstykki, síðan er fram- og bakstykkið prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BÖND / HLÝRAR: Prjónuð eru 4 bönd á öxl / hlýrar (= 2 bönd fyrir framstykki og 2 bönd fyrir bakstykki). Prjónið band / hlýra þannig: Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjón 5 með DROPS Paris. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til bandið mælist ca 30 cm. Síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Böndin eru geymd á hjálparprjóni, síðan er prjónað yfir lykkjurnar þegar fitjaðar eru upp lykkjur fyrir bakstykki og framstykki. BAKSTYKKI: Nú á að fitja upp lykkjur fyrir bakstykki á milli 2 af böndum, notið hringprjón 5 og prjónið þannig: Prjónið slétt frá réttu yfir 4 lykkjur frá einu af böndum, fitjið upp 40-42-43-45-49-52 nýjar lykkjur í umferð, endið með að prjóna sléttar lykkjur frá réttu yfir 4 lykkjur af einu af hinu bandinu = 48-50-51-53-57-60 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju í 40-42-43-45-49-52 nýjar lykkjur í umferð, stykkið er nú mælt frá þessu merki. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 2 lykkjur I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 2 lykkjur i-cord. Nú er prjónað fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 2 lykkjur i-cord í hvorri hlið jafnframt því sem aukið er út fyrir handveg. Aukið út 1 lykkju í hvorri hlið innan við 4 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, aukið út frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 11-12-13-15-16-17 sinnum = 70-74-77-83-89-94 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 10-11-12-14-15-16 cm frá merki, síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn og geymið stykkið á meðan framstykkið er prjónað. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar framstykkið hefur verið prjónað til loka og það er orðið jafn langt og bakstykki, setjið stykkin saman fyrir fram- og bakstykki. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið slétt yfir 70-74-77-83-89-94 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-8-12-14-16-20 nýjar lykkjur í umferð, prjónið slétt frá réttu yfir 70-74-77-83-89-94 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 4-8-12-14-16-20 nýjar lykkjur í umferð = 148-164-178-194-210-228 lykkjur í umferð. Prjónið síðan fram- og bakstykki hringinn í sléttprjóni eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-164-178-194-210-228 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 4-8-12-14-16-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið þar til stykkið mælist 29-31-33-35-36-38 cm frá merki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-2-4-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 144-162-174-192-210-228 lykkjur. Nú á að auka út fyrir pífu, prjónið þannig: Prjónið A.1 alls 24-27-29-32-35-38 sinnum umferðina hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 216-243-261-288-315-342 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm frá merki – pífan mælist ca 9-9-9-9-10-10 cm. Fellið af aðeins laust með aðra hverja lykkju slétt og brugðið. Toppurinn mælist 38-40-42-44-46-48 cm frá merki fyrir miðju að framan – hnýtið bandið yfir axlirnar ca 6 cm frá framstykki eða í óskaða hæð. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dancingdarlingtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.