Ariadna skrifaði:
"Continue as before until the piece measures 85-88-91-94-97-99 cm from top of strap" Hi! Does this mean I have to keep increasing every 5 cm? Thank you!
28.04.2025 - 11:42DROPS Design svaraði:
Dear Ariadna, no increases are done now, just continue working 1 double crochet (UK-English terminology) in each stitch as before without any further increase (keep the 128-140-152-164-184-200 stitches as before) until requested length. Happy crocheting!
28.04.2025 - 13:38
Eva Olesen skrifaði:
Hvor mange meter garn er der i de anbefalede nøgler. Jeg kan ALLERBEDST klare opgaven, når jeg ved hvor mange m opskriften bruger og derfor m pr nøgle. Mange tak 🌷forårshilsen Eva Olesen
19.03.2025 - 18:35DROPS Design svaraði:
Hei Eva. Klikk på GARN & PINDE og GARNGRUPPER. Der har du en fin oversikt over alle våre kvaliteter som viser strikkefasthet, hvor mye 1 nøste veier og hva løpelengden på nøstene er. mvh DROPS Design
24.03.2025 - 11:38
White Harbor#whiteharbordress |
|
![]() |
![]() |
Heklaður kjóll úr DROPS Paris. Stykkið er heklað ofan frá og niður með fastalykkjum. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er fram og til baka er hekluð 1 loftlykkja sem kemur í stað fyrstu fastalykkju í umferð. Síðasta fastalykkja er hekluð í loftlykkju í byrjun fyrri umferðar. Þegar heklað er í hring byrjar umferð með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur í stað fyrstu fastalykkju. Í lok umferðar er hekluð 1 fastalykkja í loftlykkju frá byrjun umferðar, áður en stykkinu er snúið við þannig að umferðin er hekluð til skiptis frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR MÆLING: Öll mál á lengdina eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars verður stykkið of langt þegar það er mátað. 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: 2 fastalykkjur eru heklaðar saman í 1 lykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkju og sækið þráðinn, stingið heklunálinni niður í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kjóllinn er heklaður ofan frá og niður. Fyrst er band á öxl / hlýri heklað og framstykkið fram og til baka að handvegi, síðan er bakstykkið heklað á sama hátt. Síðan er heklað í hring yfir allar lykkjur, heklað er til skiptist frá réttu og frá röngu að loka máli þannig að áferðin verði alveg eins á öllum kjólnum. FRAMSTYKKI: Notið heklunál 5 og DROPS Paris. Lesið LOFTLYKKJUR og HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan og heklið 9-9-10-10-10-11 loftlykkjur. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni (= loftlykkjan kemur í stað 1. fastalykkju), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 7-7-8-8-8-9 loftlykkjum = 9-9-10-10-10-11 fastalykkjur. Heklið fram og til baka með 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til bandið mælist 8-8-9-9-9-9 cm. Klippið þráðinn og geymið stykkið. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Heklið annað band til viðbótar á sama hátt, en þegar bandið mælist 8-8-9-9-9-9 cm er snúið við og heklað er yfir bæði böndin á öxl jafnframt því sem á milli banda eru lykkjur gerðar fyrir framstykki þannig: Heklið yfir 9-9-10-10-10-11 lykkjur eins og áður, heklið 24-26-26-26-28-28 loftlykkjur, heklið yfir hitt bandið eins og áður (passið uppá að áferðin haldi áfram eins og áður) = 42-44-46-46-48-50 lykkjur. Í næstu umferð er hekluð 1 fastalykkja í hverja fastalykkju eins og áður jafnframt því sem hekluð er 1 fastalykkja í hverja af loftlykkjum = 42-44-46-46-48-50 fastalykkjur. Heklið fram og til baka með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til stykkið mælist 14-14-14-14-13-13 cm frá efst á bandi – lesið LEIÐBEININGAR MÆLING. Nú á að auka út í hvorri hlið fyrir handveg með því að hekla 2 fastalykkjur í 1 lykkju í hvorri hlið, heklið þannig: Heklið 1 loftlykkju (= kemur í stað fyrstu fastalykkju), heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, endið með 1 fastalykkju í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri). Heklið fram og til baka og aukið út bæði frá réttu og frá röngu þar til aukið hefur verið út alls 4-5-7-9-12-14 sinnum í hvorri hlið = 50-54-60-64-72-78 fastalykkjur. Nú mælist stykkið ca 16-17-18-19-20-21 cm frá efst á bandi. Klippið þráðinn og geymið stykkið á meðan bakstykkið er heklað. BAKSTYKKI: Heklið bakstykkið á sama hátt og framstykkið – passið uppá að síðasta umferðin á bakstykki líti alveg eins út og síðasta umferð á framstykki. Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú á að hekla yfir framstykkið og bakstykkið – munið eftir að haldið er áfram að hekla til skiptist frá réttu og frá röngu svo að áferðin haldi áfram eins og áður. Heklið þannig: Heklið 3-4-4-5-6-7 loftlykkjur, heklið yfir bakstykkið með 1 fastalykkju í hverja lykkju eins og áður, heklið 6-8-8-10-12-14 loftlykkjur (= í hlið undir handvegi), heklið yfir framstykkið með 1 fastalykkju í hverja lykkju eins og áður, heklið 3-4-4-5-6-7 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í umferð = 112-124-136-148-168-184 lykkjur. Byrjun umferðar er í hlið fyrir miðju undir handveg. Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju / fastalykkju umferðina hringinn – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. Haldið áfram að hekla til skiptis frá réttu og röngu eins og áður þar til stykkið mælist 25-27-29-28-30-32 cm frá efst á bandi. Setjið 1 merki í hvora hlið (= fyrir miðju undir handveg). Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið við hvort merki þannig: Heklið 3 fyrstu lykkjur eins og áður, heklið 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN – lesið leiðbeiningar að ofan, heklið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, heklið saman 2 fastalykkjur, heklið 6 fastalykkjur eins og áður (merkið situr fyrir miðju á þessum 6 lykkjum), heklið saman 2 fastalykkjur, heklið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, heklið saman 2 fastalykkjur, heklið 3 síðustu lykkjur eins og áður (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverjum 4-4-4-5-5-5 cm alls 3 sinnum í öllum stærðum = 100-112-124-136-156-172 fastalykkjur. Heklið eins og áður þar til stykkið mælist 37-39-41-43-45-47 cm frá efst á bandi – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING: Nú á að auka út hvoru megin um sama merki í hvorri hlið, heklið næstu umferð þannig: Heklið fyrstu 3 lykkjur eins og áður, heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið eins og áður þar til 4 lykkjur eru á undan næsta merki, heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið 6 fastalykkjur eins og áður (lykkjur sitja fyrir miðju í þessum 6 lykkjum), heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, heklið 2 fastalykkjur í næstu lykkju, heklið 3 síðustu lykkjur eins og áður (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 5. hverjum cm alls 7 sinnum í öllum stærðum = 128-140-152-164-184-200 fastalykkjur. Heklið eins og áður þar til stykkið mælist 85-88-91-94-97-99 cm frá efst á bandi, mátið e.t.v. stykkið og heklið að óskaðri lengd. FRÁGANGUR: Saumið band á öxl (= yfir öxl). |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whiteharbordress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.