Stephanie skrifaði:
Hallo Ich würde es besser finden, wenn Bilder dabei wären. Ich habe eine Tasche mit einem anderen Muster von euch gehäkelt. Es war wirklich sehr schwer. Bilder würden so viel erleichtern. Danke
12.03.2025 - 06:56
Marita Åsenfors skrifaði:
Jag förstår inte varv 2 och varv 4 på beskrivningen till rutan som används till den virkade väskan. Mvh Marita Åsenfors
11.03.2025 - 16:51DROPS Design svaraði:
Hej Marita, menar du varv 2 i A.1? Varv 2 i A.1 består av 1 fm i varje stolpe och 1 lm mellan varje fm varvet runt :)
14.03.2025 - 13:29
Daisy Love Bag#daisylovebag |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð taska með blómum úr DROPS Belle. Stykkið er heklað með hekluðum ferningum / ömmuferningum.
DROPS 256-4 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning A.2, A.3 og A.4 er notuð við frágang. LITIR: Uppfijtun, 1. og 2. umferð er hekluð í litnum fífill. 3. umferð er hekluð í litnum perla. 4. og 5. umferð er hekluð í litnum sandur. HEKLAÐ SAMAN: Leggið 2 ferninga saman kant í kant svo hægt sé að hekla þá saman. Byrjið í miðju á 3 fastalykkjum í horni og heklið þannig: * Stingið heklunálinni frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á öðrum ferningnum, síðan er heklunálinni stungið frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á hinum ferningnum, sækið þráðinn og dragið þráðinn í gegnum báðar lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* þar til þessir 2 ferningar hafa verið heklaðir saman (til og með miðju fastalykkju í næsta horni á ferningnum), heklið 1 loftlykkju og byrjið í miðju fastalykkju í horni á næsta ferningi og heklið síðan frá *-* meðfram næstu 2 ferningum á sama hátt. Heklið svona þar til allir ferningarnir í þessari röð hafa verið heklaðir saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið samanstendur af ferningum sem saumaðir og heklaðir eru saman. Í lokin er heklaður kantur með handfangi efst á töskunni. TASKA: Notið heklunál 3 og DROPS Belle, lesið LITIR í útskýringu að ofan. Heklið 27 ferninga eftir mynsturteikningu A.1. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Nú eru ferningarnir saumaðir saman í 5 hluta þannig: FRÁGANGUR-1(ferningarnir saumaðir saman): Allur frágangur er gerður með litnum sandur. FRAMHLIÐ OG BAKHLIÐ: Leggið 9 ferning þannig að þeir liggi 3 á breiddina og 3 á hæðina og passið að allir ferningarnir liggi með réttuna út. Saumið ferningana fallega saman lykkju fyrir lykkju – saumið þannig að saumurinn verði flatur og sjáist sem minnst. Endurtakið með 9 ferninga til viðbótar, þannig að það verði 2 alveg eins stykki með 9 ferninga í hvoru stykki (= framhlið og bakhlið). HLIÐAR OG BOTN: Leggið 3 ferninga í röð og passið að allir ferningarnir liggi með réttuna út. Saumið ferningana fallega saman lykkju fyrir lykkju – saumið þannig að saumurinn verði flatur og sjáist sem minnst. Endurtakið á sama hátt með 3 ferninga 2 sinnum til viðbótar, þannig að það verða 3 alveg eins stykki með 3 ferninga í hvoru stykki (= 2 hliðar og 1 botn). FRÁGANGUR-2 (stykkin hekluð saman): Allur frágangur er gerður með litnum sandur. Nú á að hekla 2 hliðarnar saman við framhlið og bakhlið á töskunni. Stykkin eru hekluð saman með keðjulykkjum. Sjá mynsturteikningu A.2, heklið hliðarnar saman með keðjulykkjum – lesið HEKLAÐ SAMAN í útskýringu að ofan og heklið í þá stefnu sem örvar vísa. Nú á að hekla botninn niður að neðri hlið á töskunni. Sjá mynsturteikningu A.3 fyrir staðsetningu og heklið botninn niður á sama hátt og hinar hliðarnar, fylgið stefnu sem örin vísar. Nú er neðsti ferningurinn heklaður í hvorri hlið á töskunni niður að ysta ferningi í hvorri hlið á botni, sjá mynsturteikningu A.4, leggið hliðarnar með stjörnum að hvorri annarri og heklið þær saman. Í lokin eru hliðarnar lagðar að hvorri annarri A við A og B við B, heklið þær saman í þá stefnu sem örin vísar á sama hátt og á hinum hliðunum. Nú er frágangi lokið á töskunni. KANTUR MEÐ HANDFANGI: Notið heklunál 3 og litinn sandur. Heklið meðfram ferningunum efst á töskunni, byrjið á undan 3 ferningunum sem eru á framhlið/bakhlið á töskunni og heklið í kringum opið á töskunni þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 umferð með fastalykkjum, passið uppá að heklaðar séu 19 fastalykkjur jafnt yfir hvern ferning umferðina hringinn = 152 fastalykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 12 fastalykkjum, heklið 176 loftlykkju (= handfang), hoppið yfir 33 fastalykkjur meðfram framhlið/bakhlið á töskunni, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 43 fastalykkjum, heklið 176 loftlykkjur (= handfang), hoppið yfir 33 fastalykkjur meðfram bakhlið/framhlið á töskunni, heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 31 fastalykkjum, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 10 fastalykkjum, * yfir næstu 3 lykkjur (= 2 fastalykkjur + 1 loftlykkja) eru heklaðir 3 stuðlar saman til 1 stuðul, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 174 loftlykkjum (það er eftir 1 loftlykkja á handfanginu), yfir næstu 3 lykkjur (= 1 loftlykkja + 2 fastalykkjur) eru heklaðir 3 stuðlar saman til 1 stuðul *, heklið fastalykkjur þar til 2 fastalykkjur eru eftir að næstu loftlykkju, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og heklið fastalykkjur fram að byrjun á umferð, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju = 426 lykkjur. UMFERÐ 5 og 6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 stuðul í hvern stuðul umferðina hringinn. Klippið og festið þráðinn. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #daisylovebag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 256-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.