Susanne skrifaði:
Er det kortet, at der er mindre antal masker i xxxl(192m)end xl (208m) har, inden afsnittet, hvor man tager ud på for og bagstykke??
14.04.2025 - 15:31DROPS Design svaraði:
Hei Susanne. Det stemmer. Ved neste avsnitt økes det flere ganger i str. xxxl og da skal xxxl ha 324 masker, mens str. xxl har 312 masker. mvh DROPS Design
28.04.2025 - 09:16
Inge Bernth skrifaði:
Hvor finder jeg diagrammet A1
06.03.2025 - 15:34DROPS Design svaraði:
Hej Inge. Du finner det längst ner, till höger om måttskissen. Mvh DROPS Design
07.03.2025 - 07:55
Jeanne skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas le diagramme pour faire le volant. Il se fait sur combien de tour? Merci pour votre aide
05.03.2025 - 03:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Jeanne, le diagramme A.1 se tricote de bas en haut et se lit de droite à gauche, autrement dit, au 1er tour, tricotez (1 m end, 1 jeté, 2 m end, 1 jeté, 1 m end) et répétez de (à) tout le tour (vous augmentez 2 mailles dans chaque A.1 en largeur). Au 2ème et au 3ème tour, tricotez toutes les mailles à l'endroit (au 2ème tour, les jetés torse à l'endroit). Au 4ème tour, tricotez (2 m end, 1 jeté, 4 m end), répétez de (à), vous augmentez 1 maille dans chaque A.1 tout le tour. Au dernier tour, tricotez comme au 2ème tour. Bon tricot!
05.03.2025 - 08:32
Carrole Carrole Lebel skrifaði:
Bonjour. Ma question concerne les augmentations à faire pour le raglan. Au premier rang, le patron indique de faire un jeté de part et d'autre de chacun des 4 marqueurs. Ainsi, il y a la maille contenant le marqueur et 2 mailles de plus. Mais comment se font les augmentations raglan au 3e rang?Comme au rang 1 (de part et d'autre de chacun des marqueurs) ou de part et d'autre des 3 mailles obtenues? Merci beauccoup.
03.03.2025 - 20:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lebel, les augmentations suivantes se font toujours de la même façon: de chaque côté de la maille avec un marqueur, autrement dit, le nombre de mailles entre les mailles avec un marqueur va augmenter, mais vous augmentez toujours de la même façon. Bon tricot!
04.03.2025 - 09:17
Freshwater Bay#freshwaterbaysweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og pífu. Stærð S – XXXL.
DROPS 259-36 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 170 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 5,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3½-3½-3½ cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 32-33-34-35-36-37 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5. Nú er sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 29-31-33-35-37-39 lykkjur (= framstykki), Setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 29-31-33-35-37-39 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið leiðbeiningar að ofan – þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja lykkju með merki (= 8 lykkjur fleiri). – ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-8-10-13-12-10 sinnum (= 14-16-20-26-24-20 umferðir prjónaðar) = 148-160-180-208-204-192 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu! Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja lykkju með merki (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 8-8-8-7-9-11 sinnum (= 32-32-32-28-36-44 umferðir prjónaðar = 8-8-8-7-9-11 sinnum útaukning á ermum og 16-16-16-14-18-22 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 244-256-276-292-312-324 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 23-24-26-27-30-32 sinnum á framstykki / bakstykki 15-16-18-20-21-21 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-22-24-25-27-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 47-49-53-57-59-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 75-79-85-89-97-103 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 47-49-53-57-59-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 75-79-85-89-97-103 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 170-182-198-210-230-250 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 10-12-14-16-18-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 43-45-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 30-34-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 200-216-232-248-272-296 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm er fellt af aðeins laust. Peysan mælist 47-49-51-53-55-57 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 47-49-53-57-59-59 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 57-61-67-73-77-81 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-12-14-16-18-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið 2 lykkjur í hverjum 3½-3½-2½-2½-2-1½ cm alls 10-10-13-14-16-18 sinnum = 37-41-41-45-45-45 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-37-35-35-33-32 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 32-36-36-40-40-40 lykkjur. Nú er aukið út fyrir pífu, prjónið þannig: Prjónið A.1 alls 8-9-9-10-10-10 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 56-63-63-70-70-70 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 45-45-43-43-41-40 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið aðeins laust af. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #freshwaterbaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.