DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Daisy yarn
DROPS Daisy
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Winter Hug Hood

Prjónaður hettuhálsklútur úr DROPS Daisy og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í perluprjóni og i-cord. Stærð S - XL.

Velja stærð:
DROPS 253-61

#winterhughood

DROPS Design: Mynstur da-041
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - L/XL

STÆRÐ:
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm
Hæð: Mælt frá hæsta punkti = ca 41-43 cm
Breidd: Mælt frá hlið að hlið = ca 192-194 cm

GARN:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200 gr litur 09, ísblár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 gr litur 59, ískristall

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: Lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 29 umferðir á hæð með perluprjóni og 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Daisy
DROPS Daisy
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

I-CORD AFFELLING:
Fitjið upp 2 nýjar lykkjur á hægri prjón. Lyftið 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 2 lykkjum inn á vinstri prjón, prjónið þannig:
* Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman, steypið til baka 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð.

I-CORD KANTLYKKJUR (= 2 lykkjur):
Í BYRJUN UMFERÐAR:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HETTUHÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hettuhálsklúturinn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan yfir ennið og aftur á bak.
Síðan eru lykkjur prjónaðar upp í hvorri hlið og prjónað er fram og til baka ofan frá og niður.
Þegar hettan hefur verið prjónuð til loka, setjið lykkjur á þráð. Prjónaður er upp kantur sem felldur er af með i-cord í kringum opið á hettunni við andlitið.
Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsklút sem byrjar fyrir miðju aftan í hnakka. Prjónað er fram og til baka yfir hálsklútinn, jafnframt því sem teknar eru 2 og 2 lykkjur af þræði frá hettunni. Þegar allar lykkjur hafa verið prjónaðar upp frá miðju að aftan og fram í annarri hliðinni (= helmingur af lykkjum frá hettu), prjónið hálsklútinn til loka fram og til baka. Í lokin er hin hliðin á hálsklútnum prjónuð frá miðju að aftan og út á sama hátt. Í lokin er hálsklúturinn saumaður saman fyrir miðju aftan í hnakka.

HETTA:
Fitjið upp 22-28 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Daisy og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Uppfitjunarkantur = miðja af framan yfir enni.
Prjónið fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroffprjón í perluprjóni (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja í garðaprjón) út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroffprjón í perluprjóni (= 2 lykkjur brugðið / 1 lykkja í garðaprjóni) út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 í 19-19 cm – síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn, þetta stykki myndar stykkið fyrir miðju ofan á hettu.

Nú á að prjóna upp lykkjur meðfram báðum hliðum innan við 1 lykkju garðaprjón þannig:
Byrjið frá horni við uppfitjunarkant og prjónið upp 36-36 lykkjur meðfram annarri hliðinni frá réttu (= vinstri hlið), prjónið yfir 22-28 lykkjur í perluprjóni eins og áður frá réttu (= bakhlið á hettu), prjónið síðan upp 36-36 lykkjur meðfram annarri hliðinni (= hægri hlið) = 94-100 lykkjur. Stykkið er síðar mælt frá þessum uppfitjunarkanti.

Prjónið fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): 1 lykkja í garðaprjón, prjónið stroffprjón í perluprjóni (= 2 lykkjur brugðið / 1 lykkja í garðaprjón) út umferðina.
UMFERÐ 2 (= rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroffprjón í perluprjóni (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja í garðaprjóni) út umferðina.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 20-21cm frá uppfitjunarkanti meðfram hlið.

Klippið þráðinn, hettan hefur nú verið prjónuð til loka. Setjið 47-50 fyrstu lykkjur á hjálparprjón, á meðan 47-50 síðustu lykkjur eru settar á annan hjálparprjón (= skipting fyrir miðju að aftan. Þessar lykkjur eru notaðar þegar hálsklúturinn er prjónaður í hvorri hlið. Fyrst er prjónaður i-cord kantur meðfram opi á hettu eins og útskýrt er að neðan.

I-CORD KANTUR:
Prjónið upp kant meðfram opi að framan frá réttu þannig:
Byrjið neðst í hægri hlið á hettunni (þ.e.a.s. hægri hlið séð þegar hettan er á höfði), prjónið upp 34-36 lykkjur innan við 1 lykkju slétt upp að uppfitjunarkanti, meðfram uppfitjunarkanti yfir enni eru prjónaðar upp ca 20-24 lykkjur, haldið áfram að prjóna upp 34-36 lykkjur niður á vinstri hlið á hettu = 88-96 lykkjur meðfram opi á hettu.

Klippið þráðinn og byrjið uppá nýtt frá réttu neðst í hægri hlið og prjónið I-CORD AFFELLING – lesið útskýringu að ofan.

Þær 2 lykkjur sem eru eftir eru settar á þráð saman með 47-50 hinum lykkjunum á vinstri hlið á hettunni, þær eru síðar prjónaðar inn í hálsklútinn = 49-52 lykkjur á þræði fyrir vinstri hlið.
Takið upp 2 lykkjur þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir i-cord í gagnstæðri hlið, setjið þessar 2 lykkjur á þráð með 47-50 lykkjum í hægri hlið á hettu = 49-52 lykkjur á þræði fyrir hægri hlið.

HÁLSKLÚTUR HÆGRI HLUTI:
Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsklút sem prjónaður er fram og til baka JAFNFRAMT sem 2 og 2 lykkjur frá hettu eru prjónaðar slétt saman með síðustu lykkju í umferð. Byrjið með lykkjur við skiptinguna, fyrir miðju að aftan og prjónið héðan hægri hlið á hettunni.
Prjónið þannig:

Fitjið upp 30-30 lykkjur með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) - þessi uppfitjunarkantur er síðar saumaður saman við uppfitjunarkant á vinstri hluta á hálsklút = miðja að aftan.

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 I-CORD KANTLYKKJUR – lesið útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, prjónið stroffprjón í perluprjóni (= 1 lykkja í garðaprjóni / 2 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju á prjóni eins og prjóna eigi slétt (= síðasta lykkjan í umferð), prjónið 2 lykkjur slétt saman frá hettu, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru 2 lykkjur slétt saman frá hettu = 30-30 lykkjur.

UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið stroffprjón í perluprjóni (= 2 lykkjur brugðið / 1 lykkja í garðaprjóni) þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið, endið með 2 i-cord kantlykkjur.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til til teknar hafa verið upp 46-50 fyrstu lykkjur frá hettu (= 46-50 prjónaðar umferðir). Þar til eftir eru 3-2 lykkjur á þræði frá hettu (ásamt 2 lykkjum sem teknar voru upp í i-cord).

Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
2 i-cord kantlykkjur, 1 lykkja slétt, 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroffprjón í perluprjóni (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja í garðaprjóni) eins og áður út umferðina, prjónið 1-2 lykkjur af þræði slétt, prjónið síðustu lykkjur af þræði 2 lykkjur slétt saman 1-0 sinnum = 32-32 lykkjur.

Prjónið næstu umferð frá röngu þannig:
Prjónið 2 i-cord kantlykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroffprjón í perluprjóni (= 2 lykkjur brugðið / 1 lykkja í garðaprjóni) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið, endið með 2 i-cord kantlykkjur = 31-31 lykkjur.

Prjónið 8 umferðir fram og til baka með stroffprjón í perluprjóni eins og áður og 2 i-cord kantlykkjur + 1 lykkja sléttprjón í hvorri hlið.
Í næstu umferð (= rétta) byrjar úrtaka, fækkað er um 1 lykkju frá réttu þannig:
Prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, endið með 2 i-cord kantlykkjur.
Prjónið síðan fram og til baka eins og áður jafnframt því sem lykkjum er fækkað á sama hátt í 8. hverri umferð (= ca 3. hverjum cm) þar til 7-7 lykkjur eru eftir á prjóni.
Fellið af samtímis sem fyrstu 2 og síðustu 2 lykkjur eru prjónaðar slétt saman.
Hálsklúturinn mælist ca 96-98 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan.

HÁLSKLÚTUR VINSTRI HLUTI:
Prjónað er á sama hátt og hægri hluti á hálsklút, prjónað er fram á við meðfram vinstri hlið á hettu JAFNFRAMT sem 2 og 2 lykkjur frá hettu er prjónaðar slétt saman með fyrstu lykkju á prjóni. Prjónið þannig:

Fitjið upp 30-30 lykkjur með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) = miðja að aftan.

UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 i-cord kantlykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroffprjón í perluprjóni (= 2 lykkjur brugðið / 1 lykkja í garðaprjóni) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur brugðið.

UMFERÐ 2 (= rétta): Setjið 2 lykkjur af þræði frá hettu yfir á vinstri prjón, prjónið 3 lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 2 lykkjur af þræði og 1 lykkju af hálsklút eru prjónaðar slétt saman), 1 lykkja slétt, prjónið stroffprjón í perluprjóni (= 1 lykkja í garðaprjóni / 2 lykkjur slétt) þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, endið með 2 i-cord kantlykkjur = 30-30 lykkjur.

Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til prjónaðar hafa verið upp 46-50 fyrstu lykkjur frá hettu (= 46-50 prjónaðar umferðir). Það eru eftir 3-2 lykkjur á þræði frá hettu (ásamt 2 lykkjum frá i-cord affellingu).

Prjónið næstu umferð frá röngu þannig:
2 i-cord kantlykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroffprjón í perluprjóni (= 2 lykkjur brugðið / 1 lykkja í garðaprjóni) eins og áður út umferðina, prjónið 1-2 lykkjur af þræði brugðið, prjónið síðustu lykkjur af þræði 2 lykkjur brugðið saman 1-0 sinnum = 32-32 lykkjur.

Prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 2 i-cord kantlykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroffprjón í perluprjóni (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja í garðaprjóni) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt, endið með 2 i-cord kantlykkjur = 31-31 lykkjur.

Prjónið 7 umferðir fram og til baka með stroffprjóni í perluprjóni eins og áður og 2 i-cord kantlykkjur + 1 lykkja sléttprjón í hvorri hlið.
Í næstu umferð (= rétta) byrjar úrtaka, fækkað er um 1 lykkju frá réttu þannig:
Prjónið 2 i-cord kantlykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið eins og áður út umferðina.
Prjónið síðan fram og til baka eins og áður jafnframt því sem lykkjum er fækkað á sama hátt í 8. hverri umferð (= ca í 3. hverjum cm) þar til 7-7 lykkjur eru eftir í umferð.
Fellið af samtímis sem fyrstu 2 og síðustu 2 lykkjur eru prjónaðar slétt saman.
Hálsklúturinn mælist ca 96-98 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan.

FRÁGANGUR:
Saumið uppfitjunarkantinn á hægri og vinstri hluta á hálsklútnum saman fyrir miðju að aftan með lykkjuspori.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.01.2025
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð. Teikning með legndarmáli hefur verið bætt við.
Yfirfarið á vefsvæði: 27.01.2025
Efnismagn hefur verið uppfært. Leiðrétting í upplýsingum um prjónfestu.

Mynstur

prjónstefna = prjónstefna
hettan er fest við hálsklútinn þannig: Lykkjurnar neðst á hettunni eru settar á þráð. Hálsklúturinn er prjónaður frá miðju að aftan og fram. Jafnframt sem hálsklúturinn er prjónaður, þá eru lykjurnar frá hettunni prjónaðar saman við hálsklútinn = hettan er fest við hálsklútinn þannig: Lykkjurnar neðst á hettunni eru settar á þráð. Hálsklúturinn er prjónaður frá miðju að aftan og fram. Jafnframt sem hálsklúturinn er prjónaður, þá eru lykjurnar frá hettunni prjónaðar saman við hálsklútinn
hálsklúturinn er prjónaður frá hlið í 2 hlutum frá miðju að aftan og fram, hálsklúturinn er saumaður saman í miðju að aftan í lokin þegar hvorri hlið hefur verið prjónuð til loka = hálsklúturinn er prjónaður frá hlið í 2 hlutum frá miðju að aftan og fram, hálsklúturinn er saumaður saman í miðju að aftan í lokin þegar hvorri hlið hefur verið prjónuð til loka
Diagram for DROPS 253-61
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 253-61

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Nicole Benedicto skrifaði:

I have started to knit this hug hoed. I have noticed that the pattern does not look the same on my work. I do not understand why. The pattern is 1 point mousse et 2 mailles endroit pour les cotes But on the picture and on the video the stich between the cotes is with kind of holes. Not on my work. What a pity because your hoed looks much nicer. Can you help me understand what I am doing wrong. Many thanks from a fan of Drop Designs

28.05.2025 - 17:23

DROPS Design svaraði:

Hi Nicole, try to block the hood, the pattern will get a nicer look - hand wash at 30ºC, don’t let the garment soak. Move the garment gently back and forth, do not rub or squeeze it. Press carefully the water out of the garment with a dry towel. To dry the garment, shape it and lay it flat - do not hang - ideally on a warm bathroom floor or on top of a drying rack in a room with good air circulation. Kind regards!

09.06.2025 - 08:19

country flag Cristina Gil skrifaði:

Hi, I'm working on knitting up stitches along the sides. It says knit up 36 stitches, but I have more than 36 rows form which to pick up, if that makes sense (I worked the first instructions until I had 19cm, so it's not a fixed number of rows). From the photos I can't really tell if I'm supposed to skip rows to arrive at 36 stitches, or something else. Can you clarify please? Thank you!

21.03.2025 - 20:30

DROPS Design svaraði:

Dear Cristina, yes, you will usually have a few more rows than you need to pick up. So you need to spread evenly the rows to skip (as if they were even decreases) so that you manage to pick up 36 stitches without skipping all the rows in a specific section (like, work 3 rows, skip the next one). You can calculate, according to the number of rows and stitches to pick up, how many rows to skip and how to spread them. Happy knitting!

23.03.2025 - 19:30

country flag Linda skrifaði:

Please delete comments/Questions I posted on 10.03.2025 - 00:46 and 10.03.2025 - 00:24. It was a question, but I figured it out. I don't want to confuse the users. Thank you very much! I appreciate it.

16.03.2025 - 14:37

country flag Linda skrifaði:

I think my question should have been what do you do to the face opening row after completing "with the last row from the wrong side. Cut the strand and slip stitches on another needle; this piece is top front of hood." After slip stitches to another needle, then what do you do to this piece the top front of the hood? Thank you.

10.03.2025 - 00:46

country flag Linda skrifaði:

Instructions: "You now knit up stitches along both sides, inside the 1 garter stitch: From the right side, start from the corner by the cast-on edge and knit up 36-36 stitches along one side (left side of piece), work across the 22-28 stitches with pearl rib as before (back of hood)" Is work across 22-28 stitches where it's around the face opening of the hood? Or the cast on end? Thank you.

10.03.2025 - 00:24

country flag MW skrifaði:

This is to thank Angela Long for her comment posted on 31.01.2025 on how to stitch the hood rows: 'Row 1 ...knit. Row 2... knit 1 pearl 2.' I couldn't figure it out because it just didn't look like the picture until I saw your comment. Hooray!

01.03.2025 - 03:55

country flag Stine Jensen skrifaði:

Hej! I sidste paragraf på højre side af tørklædet står der “Strik 8 pinde frem og tilbage med perlerib som før og 2 i-cord kantmasker + 1 maske glatstrik i hver side.” Men umiddelbart på hjælpevideoerne ligner det at der kun bliver strikket 2 i-cord masker. Er det rigtigt? Skal jeg strikke fra start retside: 1 maske glatstrik, tage næste maske fra venstre pind over på højre med garnet foran arbejdet, en maske ret?

26.02.2025 - 10:30

DROPS Design svaraði:

Hei Stine. I videoen, tid 14:34 strikkes det etter forklaringen: I-CORD KANTMASKER (= 2 masker): STARTEN AV PINNEN: Ta 1 maske løst av pinnen som om den skulle strikkes vrang med tråden foran arbeidet, strikk 1 maske rett. Ved tiden 14:45 strikkes det 1 rett + 1 rille, men her er det et lite hak i videoen, kanskje det er det som gjøre det litt uklart? Så strikkes det videre med perleribb. mvh DROPS Design

10.03.2025 - 08:19

country flag Lara skrifaði:

Ich stehe gerade bei der Hin Reihe der linken Seite. Ich stricke am Ende der Reihe 2 links zusammen, danach wenden, 2 von rechts auf links und 3 rechts zusammen. Aber dann gibt es eine sichtbare Abnahme anstelle einer geraden Reihe wie der rechten Seite. Könnten Sie mir da erklären, was ich falsch mache?

23.02.2025 - 11:15

DROPS Design svaraði:

Liebe Lara, bei der 1. Hinreihe der linken Seite legen Sie 2 von den stillgelegten Maschen auf der linke Nadel und diese 2 Maschen stricken Sie mit der 1. Maschen von der linken Seiten rechts zusammen (- 3 rechts zusammen), so haben Sie 2 M von der Kapuze zusammen mit der ersten Masche vom Schal gestrickt. Man wird nicht bei der 1. Reihe (Rückreihe) abnehmen sondern am Anfang der 2. Reihe (Hinreihe). Viel Spaß beim Stricken!

24.02.2025 - 09:05

country flag Lotti skrifaði:

Hallo, Ich bin gerade dabei den rechten Schal zu stricken und er rollt sich immer mehr von den Seiten ein. Gibt es einen Weg das zu verhindern?

21.02.2025 - 10:34

DROPS Design svaraði:

Liebe Lotti, versuchen Sie vielleicht die Maschen dieser Seite nicht zu eng zu stricken - siehe Video - es sollte sich nicht einrollen. Sonnst können Sie vielleicht auch am Ende die Arbeit mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen. Viel Spaß beim Stricken!

21.02.2025 - 14:08

country flag Isabelle skrifaði:

Jag förstår verkligen inte starten av halsduken. Har läst och läst och läst, ska man sticka över den 30 upplagda? Nä jag tror det här mönstret skulle kunna skrivas om på enklare språk..

15.02.2025 - 20:42

DROPS Design svaraði:

Hej Isabelle, har du set videoen vi har lavet til denne opskrift :)

18.02.2025 - 11:26