Dina skrifaði:
Ik begrijp het steeds niet je hebt 92 lossen als het wer k 5 cm van af de Markeerders moet je 63 stokjes over de toer dit begrijp ik niet
13.03.2025 - 09:17
Dina skrifaði:
Als het negen cm is vanaf demakeerden is meerder 48 St op detoer hoeveel stokjes is dat ik heb maat xl
12.03.2025 - 21:48DROPS Design svaraði:
Dag Dina,
Na het meerderen van 48 steken zit je dan op (154+48=) 202 stokjes. Bovenaan het patroon (bij instructies voor het patroon) vindt je een knop om uit te rekenen hoe je de meerderingen goed kunt verdelen over de toer..
13.04.2025 - 18:00
Dina skrifaði:
Hoe veel stokjes moeten er tussen zitten tussen de meerderiengen
12.03.2025 - 11:54DROPS Design svaraði:
Dag Dina,
'Dat hangt af van de maat die je maakt en dus hoeveel stokjes je op een toer hebt en hoeveel meerderingen je moet maken. Er staat inmiddels een meerder/minder calculator op de pagina, bovenaan het patroon waarmee je dit uit kunt rekenen.
13.04.2025 - 10:59
Dina skrifaði:
Ik heb maat xl ik heb 92 lossen
11.03.2025 - 11:59DROPS Design svaraði:
Dag Dina,
Voor maat XL neem je steeds het 4e getal van de reeks getallen en zet je inderdaad 92 lossenop.
12.03.2025 - 10:04
Dina skrifaði:
Hoe moet ik meerderen
10.03.2025 - 17:00DROPS Design svaraði:
Dag Dina,
Bovenaan bij 'tip voor het meerderen' staat aangegeven hoe je de meerderingen maakt.
12.03.2025 - 10:20
Dina skrifaði:
Moet ik door blijven meerderen of een toermeerderen dan gewoon stokjes dan alsjeblieft eer negen cm is bij maker draad
09.03.2025 - 22:07DROPS Design svaraði:
Dag Dina,
Je vraag is me niet helemaal duidelijk. Waar ben je precies en welke maat ben je aan het breien? Er staat: 'Als het werk 7-9-9-9-9-10 cm meet vanaf de markeerdraad, meerder dan 34-38-42-48-54-58 stokjes verdeeld op de toer = 164-176-188-202-218-230 stokjes.' Afhankelijk van je maat moet je een aantal stokjes verdeeld op de toer meerderen bij 9 cm.
12.03.2025 - 10:46
Ruth skrifaði:
Hebben jullie dit patroon ook als breipatroon of iets gelijkaardigs? Ik ben een beginnende haakster en zie het niet zo zitten om een hele trui te haken. Ik kan wel goed breien en heb al diverse truien en vesten gebreid. Alvast bedankt!
30.01.2025 - 17:03DROPS Design svaraði:
Dag Ruth,
Helaas is dit patroon alleen beschikbaar als haakpatroon. We hebben meer dan , misschien zit hier iets voor je bij.
15.02.2025 - 11:15
Lut Hillewaere skrifaði:
Ik versta niet hoe ik de steken voor de mouw kan opnemen . De draad afhechten met een vaste in de zevende losse onder de mouw , hoe moet ik dat doen ?
19.11.2024 - 20:25
Jean skrifaði:
This is a beautiful sweater and pattern. I would love to crochet this sweater with a rib collar and sleeves. How would I make these changes? Thank you for sharing all your lovely patterns for free.
03.10.2024 - 19:44DROPS Design svaraði:
Dear Jean, depending on the desired effect, you can maybe just work a rib pattern at the bottom of sleeves, body and on neck; you will find some patterns with a rib pattern here to inspire you. Happy crocheting!
04.10.2024 - 07:34
Chels skrifaði:
The UK and USA english patterns are the same, so it is unclear which terminology is being used.
28.09.2024 - 20:50DROPS Design svaraði:
Dear Chels, check language by clicking on the scroll down menu next to the printer icon, and then choose English UK/cm or English US/inch. Happy crocheting!
30.09.2024 - 10:28
Oatmeal Sweater#oatmealsweater |
|
![]() |
![]() |
Hekluð peysa úr DROPS Puna og DROPS Kid-Silk eða DROPS Daisy og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og krabbahekli. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-32 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. UPPLÝSINGAR HEKL (stuðlar í spíral): Þegar hekla á í hring í spíral án þess að enda umferðina, setjið 1 merkiþráð eða eitt merki í byrjun umferðar svo auðveldara sé að sjá hvar umferðin byrjar. Umferðin endar ekki á venjulegan máta, heldur er 1. stuðull í byrjun á næstu umferð heklaður í 1. stuðul frá fyrri umferð. Í síðustu umferð er heklað til að koma í veg fyrir hak í skiptingunni þannig: Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, heklið 1 fastalykkju í síðustu lykkju og endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun umferðar. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 3,72. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla til skiptis í 3. og 4. hverja lykkju. KRABBAHEKL: Heklið fastalykkjur, en lykkjurnar eru heklaðar aftur á bak í umferð þ.e.a.s. í öfugri átt frá vinstri til hægri. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um ermar): Þegar heklað er í hring þá kemur umferðin til að færast til jafnóðum og heklað er. Setjið einn merkiþráð mitt undir ermi, á milli 2 lykkja og látið þennan merkiþráð fylgja með lóðrétt mitt undir ermi – það þarf að flytja merkiþráðinn þannig að hann verði allan tímann lóðréttur undir / neðan á erminni. Leggið stykkið flatt nokkrum sinnum á meðan heklað er og passið uppá að merkiþráðurinn sé mitt undir erminni þegar fækka á lykkjum. Lykkjum er fækkað hvoru megin við 2 stuðla við merkiþráðinn þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan merkiþræði, heklið 2 stuðla saman – lesið ÚRTAKA-2, heklið 2 stuðla, heklið 2 stuðla saman (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 lykkjur saman í 1 lykkju þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað í hring frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar og síðan eru stykkin hekluð í hring hvert fyrir sig. Í lokin er heklaður kantur í hálsmáli meðfram hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BERUSTYKKI: Heklið 80-84-88-92-96-100 loftlykkjur – lesið LOFTLYKKJA að ofan, með heklunál 4,5 með 1 þræði DROPS Puna og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir), eða 1 þræði DROPS Daisy og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) og tengið lykkjurnar í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 2 loftlykkjur, heklið 1 hálfan stuðul í hverja af 80-84-88-92-96-100 loftlykkjum í loftlykkjuhringinn, heklið að lokum 2 hálfa stuðla um 2 loftlykkjur frá byrjun umferðar = 82-86-90-94-98-102 hálfir stuðlar. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 27-29-30-31-33-34 stuðla í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Lesið UPPLÝSINGAR HEKL og heklið síðan í hring með stuðlum í spíral. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern hálfan stuðul og aukið út 22-22-24-24-26-26 stuðla jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 104-108-114-118-124-128 stuðlar. Heklið hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Þegar stykkið mælist 4-5-5-5-5-5 cm frá merki, aukið út 26-30-32-36-40-44 stuðla jafnt yfir í umferð = 130-138-146-154-164-172 stuðlar. Þegar stykkið mælist 7-9-9-9-9-10 cm frá merki, aukið út 34-38-42-48-54-58 stuðla jafnt yfir í umferð = 164-176-188-202-218-230 stuðlar. Þegar stykkið mælist 11-13-13-13-13-15 cm frá merki, aukið út 30-34-38-40-44-48 stuðla jafnt yfir í umferð = 194-210-226-242-262-278 stuðlar. Þegar stykkið mælist 15-17-17-17-18-20 cm frá merki, aukið út 16-18-20-22-24-24 stuðla jafnt yfir í umferð = 210-228-246-264-286-302 stuðlar. Þegar stykkið mælist 19-21-21-21-23-25 cm frá merki, aukið út 14-16-18-20-22-22 stuðla jafnt yfir í umferð = 224-244-264-284-308-324 stuðlar. Heklið síðan í hring með stuðlum í spíral. Þegar berustykkið mælist 21-23-23-24-26-28 cm frá merki mitt að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er hekluð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Gerið 10-10-12-14-14-16 nýjar loftlykkjur (= í hlið mitt undir ermi), hoppið yfir fyrstu 42-46-52-56-58-58 stuðla í umferð (= fyrir ermi), heklið 1 stuðul í hvern af 70-76-80-86-96-104 næstu stuðlum, gerið 10-10-12-14-14-16 nýjar loftlykkjur (= í hlið mitt undir ermi), hoppið yfir næstu 42-46-52-56-58-58 stuðla (= fyrir ermi) og heklið 1 stuðul í hvern af 70-76-80-86-96-104 síðustu stuðlum í umferð (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið síðan í hring í spíral með 1 stuðul í hvern stuðul, í umferð 1 er einnig heklaður 1 stuðull í hverja af 10-10-12-14-14-16 nýju loftlykkjum undir hvorri ermi = 160-172-184-200-220-240 stuðlar. Heklið stuðla hringinn þar til stykkið mælist 46-48-49-51-53-55 cm frá merki mitt að framan – munið eftir UPPLÝSINGAR HEKL þegar enda á síðustu umferðina. Heklið 1 umferð með KRABBAHEKL – lesið útskýringu að ofan. Peysan mælist 47-49-50-52-54-56 cm frá merki mitt að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Nú er heklað í 42-46-52-56-58-58 lykkjurnar sem hoppað var yfir fyrir ermi í annarri hlið á stykkinu þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í 6-6-7-8-8-9 loftlykkjum af 10-10-12-14-14-16 loftlykkjum sem heklaðar voru mitt undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-3-4-5-5-6 loftlykkjum, heklið síðan 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul í síðustu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar á sama hátt um stuðulinn í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (þetta er gert til að það verði minnsta mögulega op í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma), heklið 1 stuðul í hvern af 42-46-52-56-58-58 stuðlum frá berustykki fram að loftlykkjum í hinni hliðinni á erminni, heklið 2 stuðla saman á sama hátt í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi, í lokin er heklaður 1 stuðull í hverja af síðustu 4-4-5-6-6-7 loftlykkjum undir ermi = 52-56-64-70-72-74 lykkjur. Það á að hekla stuðla í spíral án þess að enda umferðina á sama hátt og á fram- og bakstykki, byrjið næstu umferð með því að hekla 1. stuðul í 1. fastalykkju frá fyrri umferð. Heklið hringinn með 1 stuðul í hvern stuðul – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 stuðla í hverjum 0-0-5-4-3-4 cm alls 0-0-2-3-4-3 sinnum = 52-56-60-64-64-68 stuðlar. Heklið síðan þar til ermin mælist 42-41-42-42-40-38 cm frá skiptingunni. Heklið 1 umferð þannig: * 1 stuðull í fyrsta/næsta stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul, heklið 2 stuðla saman – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 * alls 12-13-14-15-15-16 sinnum þar til 4 stuðlar eru eftir í umferð, heklið 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum, heklið 1 hálfan stuðul í næsta stuðul, heklið 1 fastalykkju í síðasta stuðul = 41-44-47-50-50-53 lykkjur og endið umferðina með að hekla 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun umferðar. Heklið 1 umferð KRABBAHEKL. Ermin mælist ca 44-43-44-44-42-40 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið heklunál 4,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið á að hekla 1 fastalykkju frá réttu mitt að aftan og heklið 1 stuðul á milli hverra hálfra stuðla frá umferð 1 = 82-86-90-94-98-102 lykkjur í kringum hálsmál. Heklið spíral með 1 stuðul í hverja lykkju þar til stykkið mælist 3-3-3-4-4-4 cm – munið eftir UPPLÝSINGAR HEKL þegar síðasta umferðin endar. Heklið 1 umferð KRABBAHEKL. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oatmealsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.