Suzy skrifaði:
Bonjour pour le diagramme du point ajouré on commence par 5 mailles et on fini par 8 mailles doit on faire une augmentation à chaque rang. Modèle très difficile merci
28.04.2024 - 22:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Suzy, je ne comprends pas votre question, je suis désolée; vous tricotez le point ajouré ainsi: A.1 (= 5 m), A.2 (= 8 m) et A.3 (= 4 m), vous augmentez au début 1 maille avant A.1 + 1 maille après A.3 tous les 2 rangs, dès le 1er rang, vous avez donc dès le 2ème rang: A.1 = 6 m, A.2= 8 m et A.3 = 5 m. Tricotez ainsi comme le diagramme l'indique, les augmentations sont pour le raglan à faire au début tous les 2 tours puis tous les 4 tours, tricotez ensuite les augmentations en jersey et continuez le point ajouré. Bon tricot!
29.04.2024 - 10:02
Suzy skrifaði:
NOTE! À chaque fois que A.1 à A.3 ont été tricotés en hauteur, on a suffisamment de mailles pour tricoter 1 motif de plus de A.2 en largeur entre A.1 et A.3. Tricoter 12-12-12-12-12-12 mailles endroit, augmenter 1 maille pour le RAGLAN – voir -dessus, bonjour 2eme question merci de m’expliquer pour le motif en plus faut ‘il reprendre le motif A1 A2 A2 A3 merci
27.04.2024 - 09:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Suzy, lorsque vous avez tricoté les 8 rangs de A.1/A.3 et que vous avez augmenté 4 mailles (tous les 2 rangs), vous reprenez les diagrammes au 1er rang ainsi: A.1 au-dessus des 5 premières mailles de A.1, A.2 au-dessus des 4 dernières m de A.1 + au-dessus des 4 premières m du premier A.2, puis vous répétez A.2 et vous tricotez le dernier A.2 au-dessus des 4 dernières m du A.2 précédent + les 4 premières m de A.3 et vous terminez par A.3 au-dessus des 4 dernières mailles du A.3 précédent. Quand vous augmentez tous les 4 rangs, les augmentations seront décalées et il vous faudra davantage de rangs pour avoir suffisamment de mailles pour A.2 entre A.1 et A.3. Bon tricot!
29.04.2024 - 08:55
Suzy skrifaði:
Seulement pour le devant et le dos (on augmente 4 mailles), autrement dit, on va augmenter tous les 2 tours pour le devant et le dos et tous les 4 tours pour les manches. Augmenter ainsi 10-12-16-14-16-18 fois pour le devant et le dos (soit 5-6-8-7-8-9 fois pour les manches). PENSER À BIEN Bonjour je ne comprend pas bien l’explication pouvez-vous m’aider merci
27.04.2024 - 09:30DROPS Design svaraði:
Bonjour, après que vous ayez augmenté 7, 78 ou 9 fois 8 mailles (cf taille) tous les 2 tours pour le raglan, vous allez augmenter cette fois à un rythme différent pour le dos/le devant et les manches, autrement dit: toujours tous les 2 tours pour le dos et le devant mais tous les 4 tours pour les manches, vous augmenterez donc alternativement 4 mailles (dos/devant seulement) et 8 m (dos, devant et manches). Bon tricot!
29.04.2024 - 08:51
Johanna skrifaði:
Knitting this for my daughter and it's looking great. However, the required amount of yarn stated cannot be correct. I'm knitting a combination of sizes 2 and 3/4 and 150 grams is not enough. I'm following size 2 for the width and size 3/4 for the length (daughter is tall and skinny), both state 150 grams needed, but my third ball ran out before the body was even finished. Luckily, I always buy an extra ball, so I'll be fine. If you are considering this pattern, buy an extra ball (or two)!!
17.04.2024 - 13:00
Daisy Fields Top#daisyfieldstop |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum / toppur fyrir börn úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri á ermum. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 48-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjum í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma: Merkiþræðirnir sitja á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-80-88-88-88 lykkjur á sokkaprjóna eða hringprjóna 3 með DROPS Cotton Light. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt, jafnframt því sem 4 merkiþræðir eru settir í stykkið og aukið út þannig: Prjónið 13-13-13-13-13-13 lykkjur (ca hálft bakstykki), setjið 1 merkiþráð, 16 lykkjur slétt og aukið út 3 lykkjur jafnt yfir (ermi), setið 1 merkiþráð, 24-24-24-28-28-28 lykkjur (framstykki), setjið 1 merkiþráð, 16 lykkjur slétt og aukið út 3 lykkjur jafnt yfir (ermi), setjið 1 merkiþráð, 11-11-11-15-15-15 lykkjur slétt (ca hálft bakstykki) = 86-86-86-94-94-94 lykkjur. Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir laskalínu og mynstur A.1 til A.3 er prjónað yfir lykkjur á ermum. ATH! Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 1 mynstureiningu fleiri af A.2 á breiddina á milli A.1 og A.3. Prjónið 12-12-12-12-12-12 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, A.2, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 22-22-22-26-26-26 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, A.2, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, 10-10-10-14-14-14 lykkjur slétt. Haldið áfram í sléttprjóni á framstykki / bakstykki, gatamynstri á ermum og útaukningu fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina, í annarri hverri umferð alls 9-9-7-8-8-7 sinnum (ásamt fyrstu útaukningu) = 158-158-142-158-158-150 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 10-12-16-14-16-18 sinnum á framstykki/bakstykki (5-6-8-7-8-9 sinnum á ermum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! A.4 sýnir 1 mynstureiningu af mynstri á hæðina, passið uppá að A.4 passi yfir mynstur sem nú þegar hefur verið prjónað. Eftir síðustu útaukningu eru 218-230-238-242-254-258 lykkjur í umferð, það hefur verið aukið út 19-21-23-22-24-25 sinnum á framstykki / bakstykki og 14-15-15-15-16-16 sinnum á ermum. Haldið áfram í sléttprjóni á framstykki / bakstykki og gatamynstri á ermum, án útaukningar þar til stykkið mælist 15-16-17-17-18-19 cm, mælt eftir stroffi mitt að framan. A.4 sýnir 1 mynstureiningu af mynstri á hæðina, passið uppá að mynstið passi yfir mynstur sem nú þegar hefur verið prjónað. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 32-34-36-35-37-38 lykkjur eins og áður (ca hálft bakstykki), setjið næstu 47-49-49-49-51-51 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), 62-66-70-72-76-78 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 47-49-49-49-51-51 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 30-32-34-37-39-40 lykkjur eins og áður (ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-144-152-160-168-176 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11-13-16-20-23-24 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist fyrir ermar, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-16-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 152-160-168-176-184-196 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 33-36-40-44-48-50 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 47-49-49-49-51-51 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 53-55-55-57-59-61 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu – það á að nota hann síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í A.4, þær lykkjur sem ekki ganga upp í heilt gatamynstur í hvorri hlið, eru prjónaðar í sléttprjóni. Stillið af að mynstur A.4 passi síðan yfir gatamynstur frá A.1 til A.3. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1-1-3-3-3-4 cm millibili alls 3-3-2-2-2-2 sinnum = 47-49-51-53-55-57 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 5-5-6-6-7-9 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki eða að óskaðri lengd og það eru ca 3 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-7-5-7-5-7 lykkjur jafnt yfir = 52-56-56-60-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls 8-8-9-9-10-12 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #daisyfieldstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 48-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.