Ellen Tellefsen skrifaði:
Har det noen betydning om man dropper hullmønsteret? Hvor mye ekstra garn trenger man for full lengde på ermene?
02.02.2025 - 23:49DROPS Design svaraði:
Hei Ellen. Hull mønstret trekker maskene litt sammen, men hvor mye kan vi ikke svare på. Du kan ta en titt på den oppgitte strikkefastheten og målsissen og så regne ut hva målet vil bli i den størrelsen du strikker. Siden vi ikke har strikket denne med lange ermer kan vi ikke gi et nøyaktig svar ang. garnmengden , men sammelignet med lignende modeller, trenger du 1(kanskje 2) nøster (avhengig av hvilken størrelse du strikker). mvh DROPS Design
10.02.2025 - 14:37
Karin skrifaði:
Hej! Borde d inte gå att sticka längre ärmar? Typ 3/4.. Mvh Karin
09.09.2024 - 15:06DROPS Design svaraði:
Hej Karin, jo da, ærmerne strikkes oppefra og ned, så det er bare at fortsætte så langt du vil have ærmerne :)
11.09.2024 - 07:45
Hanna skrifaði:
Czy trzeba dodać nitkę innej włóczki do nitki mord, aby nie rozciągała się robótka po praniu
09.05.2024 - 12:48DROPS Design svaraði:
Witaj Haniu, niekoniecznie. Włóczka DROPS Nord sama w sobie jest dosyć stabilna. Wiele klientek dodaje do niej DROPS Kid-Silk, ale to nie ze względu na stabilność, a raczej na efekt puszystości. Poza tym obie te włóczki są cienkie, więc dzianina nie wychodzi zbyt gorąca. Pozdrawiamy!
09.05.2024 - 14:38
Nonne skrifaði:
Aurora
21.01.2024 - 13:33
Diann Egeland skrifaði:
Petal soft
20.01.2024 - 16:33
Doris skrifaði:
Den Pullover würde ich lieber mit Drops Belle stricken.
19.01.2024 - 16:47
Spring Mist#springmistsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-27 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 6,8. Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 7. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og er prjónað ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-108-112-120 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff í hring (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Nú er sett 1 merki mitt að aftan, berustykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið sléttprjón, jafnframt í fyrstu umferð er aukið út um 15-13-13-15-15-13 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 111-113-117-123-127-133 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá merki, aukið út 57-63-67-77-81-91 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 168-176-184-200-208-224 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Nú er prjónað í hring með MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 alls 21-22-23-25-26-28 sinnum hringinn á berustykki. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 7-7-8-9-9-9 cm frá merki, aukið út 56-64-64-80-88-96 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1= 224-240-248-280-296-320 lykkjur. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið A.1 alls 28-30-31-35-37-40 sinnum hringinn á berustykki. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 14-14-15-16-16-16 cm frá merki, aukið út 24-32-40-40-48-48 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 248-272-288-320-344-368 lykkjur. Prjónið 1 umferð í sléttprjóni. Prjónið A.1 alls 31-34-36-40-43-46 sinnum hringinn á berustykki. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 21-22-22-23-25-27 cm frá merki, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið fyrstu 35-39-41-45-50-55 lykkjur í sléttprjóni (hálft bakstykki), setjið næstu 54-58-62-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 70-78-82-90-100-110 lykkjur í sléttprjóni (framstykki), setjið næstu 54-58-62-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 35-39-41-45-50-55 lykkjur í sléttprjóni (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað áfram hvert fyrir sig. Héðan er stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-172-184-200-224-244 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, það á að nota þá síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingunni, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í hverjum 5-5-5½-5½-5½-5½ cm alls 4 sinnum = 172-188-200-216-240-260 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 20-21-23-23-23-23 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 28-32-36-36-36-40 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 200-220-236-252-276-304 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 54-58-62-70-72-74 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 62-66-72-80-84-86 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi. Merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 3-3-3-3-4½-7 cm alls 4-4-4-4-2-2 sinnum = 54-58-64-72-80-82 lykkjur. Þegar ermin mælist 16-15-16-16-15-12 cm frá skiptingunni og eftir eru ca 4 cm að loka máli, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 10-10-12-12-12-14 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 64-68-76-84-92-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 20-19-20-20-19-16 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springmistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.