Basil skrifaði:
What size are the models wearing? Thanks!
03.11.2024 - 21:46DROPS Design svaraði:
Dear Basil, the models usually wears an M size. Happy knitting!
03.11.2024 - 22:28
Alexandra skrifaði:
Bonjour on nous dit de faire 60 fois A1 alors qu il y a que 42 rang sur A1?
11.05.2024 - 08:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Alexandra, les 60 fois se reportent au nombre de fois que l'on doit répéter le diagramme en largeur tout le tour, autrement dit, en taille M vous avez 180 mailles, le diagramme A.1 se tricote au tout début sur 3 mailles, vous allez donc répéter 60 fois les 3 mailles de A.1. Au tour avec la flèche, vous augmentez 40 m = 220 m, et vous tricotez ensuite 22 fois les 10 mailles de A.1. et ainsi de suite, augmentez à chaque flèche et répétez le motif tout le tour. Bon tricot!
13.05.2024 - 07:21
Alexandra Boisset skrifaði:
Bonjour je n arrive vraiment pas à comprendre le point fantaisie. Je dois tricoter jusqu'à la flèche 1 plusieurs fois? Et après faire un peu de point jusqu'à la flèche 2?
10.05.2024 - 20:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Boisset, on doit répéter le diagramme tout le tour, et, en même temps, augmenter à chacun des rangs avec une flèche. le diagramme se répète sur un nombre différent de mailles en fonction du motif, autrement dit, jusqu'à la flèche 1, on le répète sur 3 m, puis sur 10 m, après la flèche 2 de nouveau sur 3 m, puis après la flèche 3 sur 8 m. Les motifs ne vont pas être alignés directement les uns au-dessus des autres comme dans le diagramme mais comme sur la photo. Bon tricot!
13.05.2024 - 07:17
Lynda Kuit skrifaði:
Dance around the park
19.01.2024 - 09:57
Sand Notes#sandnotessweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-31 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING (á við um berustykki): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 3,6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og er prjónað ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður í hring á hringprjóna. Kantur í hálsmáli er brotin tvöfalt að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-114-118-122-126-134 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Muskat. Skiptið yfir á hringprjón 3 (lykkjur eru fitjaðar upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegri). Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli saman þannig að hann verði tvöfaldur og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 merki í umferð. Berustykkið er núna mælt frá þessu merki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 30-32-36-40-42-44 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 140-146-154-162-168-178 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar berustykkið mælist 3-3-4-4-5-6 cm frá prjónamerki, aukið út 31-34-38-42-45-50 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 171-180-192-204-213-228 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 4-4-5-5-6-7 cm frá prjónamerki. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. A.1 er prjónað alls 57-60-64-68-71-76 sinnum hringinn á berustykki. Haldið svona áfram með mynstur. Jafnframt í hverri umferð merktri með ör í A.1, eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING. Ör-1: Aukið út 39-40-48-56-57-62 lykkjur jafnt yfir = 210-220-240-260-270-290 lykkjur. Ör-2: Aukið út 42-47-51-55-66-70 lykkjur jafnt yfir = 252-267-291-315-336-360 lykkjur. Ör-3: Aukið út 44-53-53-61-64-72 lykkjur jafnt yfir = 296-320-344-376-400-432 lykkjur. Ör-4: Aukið út 4-8-8-12-12-16 lykkjur jafnt yfir = 300-328-352-388-412-448 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist berustykkið ca 18-18-19-19-22-23 cm frá merki. Prjónið síðan sléttprjón þar til berustykkið mælist 19-20-22-23-25-27 cm frá merki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 46-51-54-59-64-71 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 92-102-108-118-128-142 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 46-51-54-59-64-71 lykkjur í sléttprjóni (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er núna stykkið mælt frá! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-220-236-256-280-308 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi. Byrjið umferð við merki og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 26-27-27-28-28-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 42-44-48-52-60-62 lykkjur jafnt yfir = 242-264-284-308-340-370 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 58-62-68-76-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-70-78-86-90-94 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3-3-2-1½-1½-1½ hverjum cm alls 5-6-9-12-13-13 sinnum = 56-58-60-62-64-68 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 43-42-41-40-39-37 cm frá skiptingu. Það eru eftir 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-12-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 68-70-72-76-78-82 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 47-46-45-44-43-41 cm frá skiptingu. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í köntum að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sandnotessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.