Corina skrifaði:
Hello! I would like to knit this 5cm longer (size S), where can I add these extra 5cm? Before the first round of increase or before casting off for armholes? Thank you
01.04.2024 - 15:34DROPS Design svaraði:
Dear Corina, if you only want to change the length, I suggest you add that 5 cm after the ribbing and before the first increase. Happy Knitting!
01.04.2024 - 16:34
Tina skrifaði:
Snowflake
21.01.2024 - 22:46
Emily skrifaði:
Cotton candy
21.01.2024 - 14:07
Laura Deth skrifaði:
Caresse
20.01.2024 - 20:32
Małgorzata skrifaði:
Dandelion
20.01.2024 - 19:36
Małgorzata skrifaði:
Dandelion
20.01.2024 - 19:36
Judith skrifaði:
Marshmallow
20.01.2024 - 09:52
Mariana skrifaði:
Wipped cream
19.01.2024 - 19:58
Irene skrifaði:
Angelica
19.01.2024 - 14:02
Anna skrifaði:
Fluffy
19.01.2024 - 12:39
Swan Grace#swangracesweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með I-cord og ísettum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-11 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. I-CORD AFFELLING (ermi): Í lok umferðar og eftir að síðasta lykkjan í umferð hefur verið prjónuð: Fitjið upp 4 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu, með 1 þræði í hvorri tegund. Lyftið 4 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjóna á með sitji 4 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndist lítill hólkur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 4 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 4 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 4 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á I-cord. I-CORD AFFELLING (kantur í hálsmáli): Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu, með 1 þræði í hvorri tegund. Lyftið 3 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjóna á með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndist lítill hólkur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á I-cord. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 4 ystu lykkjur í umferð. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (handvegur og hálsmál aftan): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig og prjónað er neðan frá og upp. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring og prjónað er ofan frá og niður. Stykkin eru saumuð saman. Lykkjur eru prjónaðar upp í hringinn í hálsmáli, síðan er kantur í hálsmáli prjónaður í I-cord. Öll mál á lengdina eru tekin frá uppfitjunarkanti. BAKSTYKKI: Fitjið upp 66-70-78-84-94-104 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt því sem fækkað er um 8-8-10-10-12-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 58-62-68-74-82-90 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20 cm = 62-66-72-78-86-94 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm, fellið af 3-3-3-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun næstu 2 umferða = 56-60-66-70-76-82 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir á eftir úrtöku fyrir handveg og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 2-3-4-5-7-8 sinnum í hvorri hlið = 52-54-58-60-62-66 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, fellið af miðju 18-20-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA-1 = 16-16-18-19-19-21 lykkjur á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafn margar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 42-44-45-46-47-48 cm. Nú eru miðju 14-16-16-14-16-16 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram, en þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir eftir að lykkjur voru settar á þráð fyrir hálsmáli og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 3-3-3-4-4-4 sinnum – munið eftir ÚRTAKA-1 = 16-16-18-19-19-21 lykkjur á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMAR: Fitjið upp 24-26-26-24-24-22 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt því sem fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3-3-3-4-5-6 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 1 lykkja 0-0-0-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3 sinnum og í lokin 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni = 50-52-56-58-62-64 lykkjur. Ermin mælist ca 7-7-8-9-11-12 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er stykkið sett saman og ermin er síðan prjónuð í hring í sléttprjóni. Setjið 1 merkiþráði í byrjun umferðar (= mitt undir ermi), merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Þegar ermin mælist 9-9-10-11-13-14 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-3. Endurtakið úrtöku þegar ermin mælist 11-11-12-13-15-16 cm = 46-48-52-54-58-60 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 51 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum og fækkið jafnframt um 6-6-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 40-42-44-46-50-52 lykkjur. Fellið af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsaum, saumið innan við 1 lykkju í garðaprjóni. Saumið ermar í innan við 1 lykkju í garðaprjóni meðfram handvegi. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 7 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 50-56-58-58-62-64 lykkjur í kringum hálsmálið (meðtaldar lykkjur af þræði að framan). Fellið síðan af með 1-CORD – lesið útskýringu að ofan. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #swangracesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.