Good Boy Sweater#goodboysweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað frá hálsi að skotti, ofan frá og niður. Stærð XS - L.
DROPS 245-34 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR (á við um framfætur): Lykkjufjöldinn sem gefinn er upp í kringum op fyrir framfætur verður að vera deilanlegur með 4 til að stroffið gangi upp. Ef þar verður erfitt að prjóna upp réttan fjölda lykkja er hægt að prjóna upp fleiri / færri lykkjur og síðan að auka út / fækka fjölda lykkja í fyrstu umferð í stroffprjóni. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna eða stutta hringprjóna frá hálsmáli að skotti. Eftir hálsmál skiptist stykkið og magastykki / bakstykki er prjónað hvort fyrir sig til að gera op fyrir framfætur. Síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur áður en lykkjur eru felldar af undir magastykki og gerð skáhallandi úrtaka að skotti. Í lokin eru prjónaðar upp lykkjur meðfram opi fyrir framfætur. KANTUR Í HÁLSMÁLI OG BERUSTYKKI: Fitjið upp 32-40-44-52 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 7 með DROPS Snow. Prjónið stroffprjón 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið (byrjið umferð með 2 lykkjur slétt til að mynstri passi áfram í mynstri). Prjónið stroffprjón svona þar til stykkið mælist 5-7-8-10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 9, prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 14-18-22-26 lykkjur stroffprjón (magi), prjónið sléttprjón og aukið út 4 lykkjur jafnt yfir næstu 18-22-22-26 lykkjur (= 22-26-26-30 lykkjur á bakstykki) = 36-44-48-56 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá byrjun á umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur (op fyrir framfætur), prjónið 12-16-20-24 lykkjur í stroffprjóni eins og áður (magi), snúið stykkinu þannig að hægt sé að prjóna frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur (op fyrir framfætur) og prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 10-14-18-22 lykkjur. Snúið stykkinu. Nú er hægt að prjóna fram og til baka yfir síðustu 10-14-18-22 lykkjur (magi), setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð eða á hjálparprjón (bak). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Héðan er nú stykkið mælt! MAGASTYKKI: = 10-14-18-22 lykkjur. Byrjið frá réttu og fellið af 1 lykkju í byrjun á umferð, prjónið stroffprjón eins og áður út umferðina. Endurtakið úrtöku í byrjun á næstu umferð = 8-12-16-20 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni eins og áður (stroffprjónið byrjar og endar með 1 lykkju brugðið frá réttu) þar til stykkið mælist 7-8-9-10 cm frá skiptingu og ca 14-17-19-22 cm frá uppfitjunarkanti mælt meðfram magastykki og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn og geymið stykkið. BAKSTYKKI: Setjið 22-26-26-30 lykkjur á hringprjón 9. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og fellið af 1 lykkju í byrjun á hverri umferð, alls 2 sinnum í hvorri hlið = 18-22-22-26 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 5-6-7-8 cm frá skiptingu (ca 12-15-17-20 cm frá uppfitjunarkanti mælt meðfram bakstykki) og síðasta umferð er prjónuð frá röngu (bakstykkið er aðeins styttra en magastykkið til að peysan passi betur). Nú á að setja saman magastykkið og bakstykkið og fitja upp nýjar lykkjur á milli stykkja. MAGASTYKKI OG BAKSTYKKI: Héðan er nú stykkið mælt! Byrjið frá réttu eftir lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 3 nýjar lykkjur, prjónið 8-12-16-20 lykkjur frá magastykki í stroffprjóni eins og áður, fitjið upp 3 nýjar lykkjur, prjónið sléttprjón fram að 3 fyrstu lykkjum sem fitjaðar voru upp. Það eru 32-40-44-52 lykkjur á prjóni og umferðin byrjar hér. Prjónið stroffprjón eins og áður yfir miðju 10-14-18-22 lykkjur (magi) og þær 22-26-26-30 lykkjur sem eftir eru (bak) eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist ca 7-10-12-13 cm frá þar sem stykkið var sett saman, það eru ca 9-9-13-17 cm að loka máli mælt meðfram bakstykki, mátið e.t.v. flíkina á hundinn og prjónið að óskaðri lengd. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við miðju 4-8-12-16 lykkjum neðan á magastykki. Í næstu umferð er prjónað stroffprjón og sléttprjón eins og áður jafnframt því sem lykkjur á milli prjónamerkja eru felldar af (fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur) og prjónið út umferðina = 28-32-32-36 lykkjur. Nú er stykkið prjónað til loka fram og til baka. UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 lykkju brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið brugðnar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 29-35-33-37 lykkjur. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 30-36-34-38 lykkjur. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið brugðnar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið 4 fyrstu lykkjur eins og áður, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttprjón þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið ystu 4 lykkjur eins og áður = 28-34-32-36 lykkjur. UMFERÐ 5 (ranga). Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Nú heldur mynstrið áfram eins og áður og fækkið um 1 lykkju innan við 4 lykkjur í hvorri hlið frá réttu mismunandi eftir stærðum þannig - lesið ÚRTAKA: STÆRÐ XS og S: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 6-6 sinnum = 18-24 lykkjur. STÆRÐ M: Fækkið lykkjum til skiptis í annarri og 4. hverri umferð alls 6 sinnum = 22 lykkjur. STÆRÐ L: Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð alls 6 sinnum = 26 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman 3-4-3-3 sinnum, prjónið 6-8-10-14 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman 3-4-3-3 sinnum = 12-16-16-20 lykkjur. Fellið af aðeins laus með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 28-34-42-50 cm mælt frá hálsi að baki (mælt meðfram bakstykki). KANTUR Í KRINGUM OP FYRIR FRAMFÓT: Notið sokkaprjón 7 og DROPS Snow, prjónið upp ca 20-24-24-28 lykkjur í kringum opið fyrir öðrum framfætinum (prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 – lesið LEIÐBEININGAR). Prjónið stroffiprjón (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) í ca 5-6-7-8 cm. Fellið laust af. Prjónið kant í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goodboysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.