FIEYRE Sylvette skrifaði:
Sujet : quantité de laine nécessaire pour le modèle DROP 243-16 en changeant 1 laine. Pour ce modèle, il est conseillé 450gr DROPS AIR (XXL) + 325 gr KID SILK . Si je préfère utiliser FLORA à la place de AIR, la quantité de laine requise sera un peu moins importante ? Merci de me confirmer la quantité de FLORA nécessaire. Merci d'avance!
05.10.2023 - 12:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Fieyre, vous pouvez utiliser 2 fils Flora pour remplacer 1 fil DROPS Air, utilisez notre convertisseur pour avoir la quantité requise correspondant à votre taille et tricotez ainsi avec 2 fils Flora + 2 fils Kid-Silk. Bon tricot!
06.10.2023 - 08:41
Barbara skrifaði:
Buongiorno. Io non uso i ferri circolari ma quelli lineari. È possibile seguire le vostre istruzioni per i maglioni con i ferri lineari? Grazie.
14.09.2023 - 16:34DROPS Design svaraði:
Buonasera Barbara, alcuni modelli sono lavorati in piano con i ferri circolari, per cui può usare anche i ferri normali. Questo modello ad esempio è lavorato in parti separate in piano fino al collo, che viene lavorato in tondo. Buon lavoro!
14.09.2023 - 20:08
Claudia skrifaði:
Hallo So wie ich lese kann man diesen Pullover auch mit Wolle der Garngruppe E stricken..Beispiel Andes oder Snow Liebe Grüße Claudia
12.09.2023 - 09:58DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, benutzen Sie den Garnumrechner, und wählen Sie "Air", dann das Gewicht z.B. 300 g und "2 Fäden" (da 1 Faden C = 2 Fäden A), so bekommen Sie die neue Garnmenge mit 1 Faden der Garngruppe E (und andere Alternative). Viel Spaß beim stricken!
13.09.2023 - 08:18
Iris skrifaði:
Sieht sehr gemütlich aus
06.08.2023 - 14:14
Blumstein skrifaði:
Serait il possible d'avoir les explications de ce modèle svp merci
06.08.2023 - 10:47
Eveliina skrifaði:
"Day Dream pullover"
04.08.2023 - 06:41
Ursula Werner-Betz skrifaði:
Schöner sportlicher Pullover
03.08.2023 - 17:04
Cindy skrifaði:
Looks deliciously soft, comfortable and feminine.
03.08.2023 - 16:29
Dandelion Wish Sweater#dandelionwishsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð oversized / stór peysa úr 1 þræði DROPS Air og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í perluprjóni með háu hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 243-16 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTLYKKJA: Prjónuð er 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki. Kantlykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu og slétt frá röngu (garðaprjón). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út innan við 1 lykkju í garðaprjóni. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næst umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki, bakstykki og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvert fyrir sig. Frágangur á stykki er útskýrður í uppskrift. Í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 74-78-86-92-96-104 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Air og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 KANTLYKKJA – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 12-12-14-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 62-66-72-78-82-88 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 58-62-64-70-70-76 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að fella af fyrir hálsmáli og lykkjur eru settar á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert samtímis, lestu því báða kaflana áður en þú prjónar áfram. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fellið af miðju 16-16-16-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli (fellið af 8-8-8-9-9-9 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.1 eins og áður. Setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl í byrjun á umferð frá hlið eins og útskýrt er að neðan og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli. SKÁHALLANDI ÖXL: Setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn): Setjið 6-6-6-7-7-8 lykkjur 2 sinnum og síðan 7-9-10-10-10-11 lykkjur 1 sinni. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráðinn og felldar af fyrir hálsmáli eru 19-21-22-24-24-27 lykkjur á þræði. Setjið til baka þessar lykkjur á hringprjón 8, prjónið 1 umferð sléttprjón, en til að sleppa við göt í hverri skiptingu þar sem lykkjur voru settar á þráð, sækið þráðinn í bili á undan næstu lykkju á vinstri prjón upp og setjið snúið á vinstri prjón. Síðan er lykkjan prjónuð saman með næstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm, mælt frá uppfitjunarkanti að hæsta punkti á öxl við hálsmál. FRAMSTYKKI. Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 50-52-54-55-57-59 cm. Nú á að fella af fyrir hálsmáli og lykkjur settar á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert samtímis, lestu því báða kaflana áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Setjið miðju 8-8-8-10-10-10 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og prjónið hvor öxl til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.1 eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 4 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl í byrjun á hverri umferð frá hlið á sama hátt og á bakstykki. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð og felldar af fyrir hálsmáli eru 19-21-22-24-24-27 lykkjur á þræði. Prjónið 1 umferð sléttprjón á sama hátt og á bakstykki og fellið síðan af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm, mælt frá uppfitjunarkanti að hæsta punkti á öxl inn að hálsmáli. ERMI: Fitjið upp 46-46-48-50-52-52 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Air og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 36-36-38-38-40-40 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-8-7-5½-5½-4 cm millibili alls 4-5-5-6-6-7 sinnum í hvorri hlið = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-44-42-40-40-38 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 45-46-46-44-45-43 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju – byrjið neðst og saumið upp að prjónamerkjum = klauf ca 2-2-4-4-5-5 cm efst á ermi. Saumið ermakúpu við handveg innan við 1 kantlykkju. Saumið klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. HÁR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu ca 68 til 80 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Air og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – stillið stroffið af þannig að prjónaðar séu brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur af þræði mitt að framan. Þegar kantur í hálsmáli mælist ca 11-11-12-12-13-13 cm, fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, eða fellið af með ítalskri affellingu. Ef óskað er eftir að hafa tvöfaldan kant í hálsmáli er hægt að brjóta stroffið niður að innanverðu á stykki á festa með nokkrum sporum við hvern axlasaum. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dandelionwishsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.