Natalia skrifaði:
This pattern is so beautiful and so easy and quick to knit. I wanted it more fit to the body so decreased 8 stitches from the S size, it is perfect in gemstone colors.
18.05.2025 - 16:59
Hanna skrifaði:
Would recommend everyone to try on the top while working on the straps and measure! I had to make mine about twice as long (13 cm instead of 7), because otherwise it wouldn't fit over my head and it pinches a lot in the arms and neck/was almost impossible to wear. My gauge on I-cord edges might have been slightly smaller but I wouldn't know how to change that easily and even then I would have needed a bit more room. Otherwise lovely pattern and I'm really happy with the result!
16.05.2025 - 19:39
Sylvie Tremblay skrifaði:
Bonjour Je ne comprends pas comment tricoter la bretelle avec le devant Merci
07.05.2025 - 01:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Tremblay, dans cette vidéo, nous montrons comment rabattre les mailles de la bretelle tout en formant la bordure I-cord; les mailles de la bretelle sont les 3 premières mailles sur l'aiguille, tricotez 2 m endroit comme avant puis tricotez la dernière maille de la bretelle avec la première maille/la maille suivante du devant, continuez ainsi jusqu'à ce que toutes les mailles du devant ont été tricotées. Bon tricot!
07.05.2025 - 09:17
Doris skrifaði:
Ich bin am ICord Rand des Rückenteils nachdem ich in der Hinreihe die letzte 2 Maschen Abnahme gemacht habe. Habe drei Maschen auf Nadel 3,5 mm angeschlagen. Ich verstehe nicht, wieso ich jetzt erst 1 Reihe links stricken soll und müssen auch die drei angeschlagenen Maschen links gestrickt werden? Wenn ich wende, verstehe ich nicht, welche letzte Masche (?) mit der ersten Masche (?) der Hinreihe zusammengestrickt wird? Muss die eine Reihe links nicht vor der 3 M Zunahme gestrickt werden?
18.04.2025 - 16:28DROPS Design svaraði:
Liebe Doris, die 1. Reihe solle eine Rückreihe sein, damit die 3. der 3 Maschen rechts zusammen (verschränkt) mit der 1. Masche vom Rückenteil gestrickt wird. Könnte Ihnen vielleicht dieses Video helfen? Viel Spaß beim Stricken!
22.04.2025 - 14:23
Greta skrifaði:
Hallo, ich frage mich ob sich die beschriebene Maschenprobe aus der nadelstärke 5 oder 3,5 ergeben soll. Vielen Dank für eine Rückmeldung Greta
08.02.2025 - 19:05DROPS Design svaraði:
Liebe Greta, die Maschenprobe stricken Sie mit den grösseren Nadeln, dh mit Nadeln Nr 5. Viel Spaß beim Stricken!
10.02.2025 - 10:06
Enriqueta Dominguez skrifaði:
Buen día . Me encanta su página . Tejer me apasiona . Pero … para hacer disminución o aumentos . No puedo y ahí queda sin terminar la prenda 🥺habrá otra manera de interpretar las instrucciones? Infinitas gracias 🙏
13.07.2024 - 22:28
Emilia skrifaði:
Witam, uprzejmie proszę o dodanie zdjęcia robótki z tyłu. Ułatwia to zdecydowanie pracę, szczególnie początkującym. Dziękuję !
16.06.2024 - 19:14
Martine PONT skrifaði:
Je tricote ce modèle pour quelqu'un d'autre que moi et je veux faire la surprise, je ne peux donc pas mesurer la bretelle. Pour une taille M de combien de centimètres dois-je tricoter les bretelles ?
16.06.2024 - 09:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pont, les bretelles mesurent 7 cm - vérifiez la hauteur totale sur le schéma (une partie de la bretelle appartient au devant, l'autre au dos). Bon tricot!
17.06.2024 - 08:48
Mathilde skrifaði:
Jeg er ikke sikker på, om opskriften siger at jeg i ribben skal strikke diagrammet på ret og vrang siden, eller kun på ret siden.?
07.05.2024 - 21:59DROPS Design svaraði:
Hej Mathilde, Hver 2.pind strikker du fra vrangen, det vil sige de sorte prikker strikker du ret fra vrangen og de hvide vrang fra vrangen (alle pinde fra retsiden strikkes ret) :)
08.05.2024 - 13:51
Clara Sofie skrifaði:
Hej. Findes der et billede af ryggen?
15.04.2024 - 22:02DROPS Design svaraði:
Hej Clara, det har vi desværre ikke, men det strikkes som forstykket, så det skal se ud som det du ser :)
16.04.2024 - 07:25
Miss Gardener#missgardener |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með I-cord kanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-8 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 6 lykkjur eins og útskýrt er að neðan: FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið A.2, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið A.2, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.3 (1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt saman, prjónið A.3 (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp, hvort fyrir sig. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Í lokin er prjónaður I-cord kantur með bandi / hlýra á öxl í snúruprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 78-86-94-106-118-130 lykkjur á prjón 3,5 með DROPS Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 10-10-10-14-14-14 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, A.1. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með A.1 eins og áður yfir fyrstu 8-8-8-12-12-12 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 62-70-78-82-94-106 lykkjur og fækkið jafnframt um 10-12-12-16-18-20 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, endið með A.1 eins og áður yfir síðustu 8-8-8-12-12-12 lykkjur = 68-74-82-90-100-110 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 5. Prjónið síðan sléttprjón með A.1 í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir ystu 5-5-5-9-9-9 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umferðirnar í garðaprjón, eru felldar af 3-3-3-7-7-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 62-68-76-76-86-96 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón (brugðin lykkja frá röngu) þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.2, fækkið um 1 lykkju fyrir handvegi í byrjun á umferð - lesið ÚRTAKA, prjónið sléttprjón þar til 8 lykkjur eru eftir, fækkið um 1 lykkju fyrir handvegi í lok umferðar – munið eftir ÚRTAKA, prjónið A.3. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir handvegi á sama hátt, þ.e.a.s. fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 11-11-12-15-13-11 sinnum. Fækkið síðan um 2 lykkjur í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 3-4-5-3-6-9 sinnum – sjá ÚRTAKA = 28-30-32-34-36-38 lykkjur. Eftir síðustu úrtöku mælist stykkið ca 35-37-39-41-43-45 cm frá uppfitjunarkanti. Haldið lykkjunum eftir á prjóni. Nú á að fella af með I-cord kanti eins og útskýrt er að neðan. I-CORD KANTUR: Fitið upp 3 lykkjur á 1 sokkaprjón 3,5 með DROPS Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Snúið prjóni, * prjónið 2 fyrstu lykkjurnar slétt, prjónið síðustu lykkjuna snúna slétt saman með fyrstu lykkju sem situr á prjóni á bakstykki (frá réttu), lyftið lykkjunum sem voru prjónaðar til baka yfir á vinstri prjón *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur á bakstykki hafa verið felldar af og það eru 3 lykkjur eftir á hægri prjóni. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið eins og bakstykki þar til framstykkið hefur verið prjónað til loka. Haldið lykkjunum eftir á prjóni. Nú á að prjóna band á öxl / hlýra með snúruprjóni jafnframt því sem fellt er af með I-cord kanti meðfram hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. BAND Á ÖXL / HLÝRI OG I-CORD KANTUR: Fitjið upp lykkjur á 1 sokkaprjón 3,5 með DROPS Paris og prjónið snúruprjón þannig: * Færið lykkjur að byrjun á umferð, herðið á þræði og prjónið 4 lykkjur slétt frá réttu *, prjónið frá *-* þar til band / hlýri á öxl mælist ca 7 cm (bandið / hlýrinn á að liggja yfir öxlina á milli framstykkis og bakstykkis, mátið e.t.v. flíkina og stillið lengdina af). Nú eru 2 síðustu lykkjur prjónaðar slétt saman = 3 lykkjur eftir. Færið lykkjur að byrjun á umferð og herðið á þræði, ekki klippa þráðinn frá. Fellið síðan af með I-cord kanti meðfram réttu á framstykki þannig: * prjónið 2 fyrstu lykkjur frá bandi / hlýra á öxl slétt, prjónið síðustu lykkju snúna slétt saman með fyrstu lykkju sem situr á prjóni á framstykki, lyftið lykkjum sem voru prjónaðar til baka yfir á vinstri prjón *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur á framstykki hafa verið felldar af og það eru 3 lykkjur eftir á hægri prjóni, fitjið síðan upp 1 lykkju í lok þessarar umferðar = 4 lykkjur. Prjónið snúruprjón yfir þessar 4 lykkjur þar til bandið / hlýri á öxl mælist ca 7 cm (stillið lengdina af eftir hinu bandinu / hlýra). Klippið þráðinn, þræðið í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. FRÁGANGUR: Saummið hliðarsauma í ystu lykkjubogana svo saumurinn verði flatur. Saumið bönd á öxlum / hlýra við bakstykkið yst í hvorri hlið. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #missgardener eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.