DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Kongletopp

Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð XS/S - XXXL.

DROPS 239-18
DROPS Design: Mynstur w-888
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS/S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-300-300-350 g litur 68, mandla

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður, hvort fyrir sig. Fyrst eru böndin á öxlum / hlýrar prjónað, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli á milli banda á öxlum / hlýra og bakstykkið / framstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Síða er bakstykkið og framstykkið sett saman og fram- og bakstykki er prjónað í hring að loka máli. Böndin á öxlum / hlýrar er saumað saman á öxlum.

HÆGRA BAND Á ÖXL / HLÝRI AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 9-9-11-11-13-13 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Paris. Prjónið stroffprjón fram og til baka þannig (fyrsta umferð = rétta): 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, 1 lykkja slétt, 1 lykkja í garðaprjóni.
Þegar band á öxl / hlýri mælist 5-6-7-5-6-7 cm og síðasta umferð er prjónuð frá röngu, geymið stykkið.

VINSTRA BAND Á ÖXL / HLÝRI AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á hægra band á öxl / hlýri að aftan og prjónið alveg eins og hægra band á öxl / hlýri að aftan. Þegar bandið á öxl / hlýri mælist ca 5-6-7-5-6-7 cm og síðasta umferð er prjónuð frá réttu, setjið lykkjur á hringprjón 4. Ekki klippa þráðinn frá, en fitjið upp 31-41-37-37-43-43 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar fyrir hálsmáli, síðan eru lykkjur prjónaðar frá hægra bandi á öxl / hlýra eins og áður = 49-59-59-59-69-69 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki hér – héðan er nú stykkið mælt!

BAKSTYKKI:
Prjónið stroffprjón fram og til baka eins og áður yfir allar lykkjur með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 3 cm frá prjónamerki og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjón 5.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt, 1 lykkju í garðaprjóni.
Prjónið sléttar lykkjur til baka frá röngu, en 3 ystu lykkjur í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni og stroffprjóni eins og áður.
Nú byrjar mynstrið. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið A.1A, prjónið A.1B alls 3-4-4-4-5-5 sinnum, A.1C, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt og 1 lykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, byrjar útaukning fyrir handveg.
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, A.2A, prjónið A.2B alls 4-5-5-5-6-6 sinnum, A.2C, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.2, fitjið upp 4-4-7-7-7-12 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok þessarar 2 umferða = 65-75-81-91-101-111 lykkjur. Stykkið mælist ca 16-17-18-20-21-22 cm. Geymið stykkið og prjónið framstykki.

VINSTRA BAND Á ÖXL / HLÝRI AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 9-9-11-11-13-13 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Paris. Prjónið stroffprjón fram og til baka þannig (fyrsta umferð = rétta): 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, 1 lykkja slétt, 1 lykkja í garðaprjóni.
Þegar band á öxl / hlýri mælist 9-10-11-9-10-11 cm og síðasta umferð er prjónuð frá röngu, geymið stykkið.

HÆGRA BAND Á ÖXL / HLÝRI AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á vinstra band á öxl / hlýri að framan og prjónið á sama hátt og vinstra band á öxl / hlýri að framan. Þegar bandið á öxl / hlýri mælist ca 9-10-11-9-10-11 cm og síðasta umferð er prjónuð frá réttu, setjið lykkjur á hringprjón 4. Ekki klippa þráðinn frá, en fitjið upp 31-41-37-37-43-43 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar fyrir hálsmáli, síðan eru lykkjur prjónaðar frá vinstra bandi á öxl / hlýra eins og áður = 49-59-59-59-69-69 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki hér – héðan er nú stykkið mælt!

FRAMSTYKKI:
Prjónið stroffprjón fram og til baka eins og áður yfir allar lykkjur með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 3 cm frá prjónamerki og næsta umferð er prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjón 5.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt, 1 lykkju í garðaprjóni.
Prjónið sléttar lykkjur til baka frá röngu, en 3 ystu lykkjur í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni og stroffprjóni eins og áður.
Nú byrjar mynstrið og útaukning fyrir handveg. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið A.2A, prjónið A.2B alls 4-5-5-5-6-6 sinnum, A.2C, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt og 1 lykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.2, fitjið upp 4-4-7-7-7-12 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok þessarar 2 umferða = 65-75-81-91-101-111 lykkjur. Stykkið mælist ca 16-17-18-20-21-22 cm. Prjónið síðan fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur frá framstykki og bakstykki á sama hringprjón 5 = 130-150-162-182-202-222 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þar sem stykkin voru sett saman. Fyrsta umferð er prjónuð þannig:

XS/S - M - XXXL:
* 2-2-0 lykkjur brugðið, A.3A, prjónið A.3B alls 5-6-10 sinnum, A.3C, 2-2-0 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur í öllum umferðum þar sem ekki er prjónað brugðið yfir allar lykkjur, prjónið 2-2-0 lykkjur hvoru megin við prjónamerki slétt.

L - XL - XXL:
* A.3A, prjónið A.3B alls 6-7-8 sinnum, A.3C *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar A.3 hefur verið prjónað 1½ sinnum á hæðina – endið eftir 1 umferð brugðið yfir allar lykkjur, stykkið mælist ca 13 cm frá þar sem stykkið var sett saman. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 13-13-14-14-15-16 cm frá þar sem stykkið var sett saman.
Nú er A.4 prjónað í hring yfir allar lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-18-22-28-28-32 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 142-168-184-210-230-254 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Fellið aðeins laust af.
Stykkið mælist ca 39-40-42-44-46-48 cm frá uppfitjunarkanti á bandi á öxl / hlýra.

FRÁGANGUR:
Saumið saman bönd á öxlum / hlýra.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = fitjið upp lykkjur fyrir handveg í lok þessarar umferðar
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Virginie GODARD wrote:

Bonjour. Jene comprends pas comment tricoter les 4 mailles que l'on monte pour les emmanchures ni comment on raccorde les 2 morceaux: je tombe sur un rang endroit et ça ne correspond pas à la grille. Merci

25.03.2024 - 12:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Godard, montez d'abord les 4 mailles en fin de rang sur l'envers (cf flèche dans A.2c) puis les 4 mailles en fin de rang sur l'endroit (cf flèche dans A.2A) et tricotez ces mailles à l'endroit sur l'endroit, à l'envers sur l'envers puis comme indiqué selon votre taille. Bon tricot!

02.04.2024 - 09:32

country flag Ulrike Romacker wrote:

Liebes Drops Team, so oft, wie dieses Top, habe ich noch nioe ein Strickstück aufgeribbelt. Die Beschreibung ist für mich zu kompliziert. Sehr schade, ich habe aufgegeben und suche mir jetzt ein einfacheres Modell :-) Es hat ja noch viele andere. Trotz allem vielen Dank für die tollen Anleitungen. Grüße Ulrike

28.08.2023 - 13:56

country flag Debora Hutchison wrote:

I have tried doing what you have suggested but the pattern comes out all wrong after joining the Front and Back pieces. Also the measurements when doing the front piece says it should be the same length as the back piece. Confusing a bit.

13.07.2023 - 10:55

DROPS Design answered:

Dear Debora, the front piece has more neck than the back piece. A difference of approx. 4cm. These 4 cm are worked in the back with A.1 (and later you work A.2). You can see that the straps at the back piece and the front piece have different lengths to compensate the difference. The pieces have to be joined in the sides; if it comes out wrong for you, you can try to see how much the pattern is displaced and adjust the pattern with the purl stitches, so that the A.3A pattern is worked over A.2A. Happy knitting!

17.07.2023 - 14:37

country flag Debora Hutchison wrote:

I am struggling now that I have done the armhole increases and joined back and front on circular needles. Where do I start doing the A3A. after first round of knit stitches. Also when doing the front it says to do diagram A2A straight away...I think this must be incorrect as measurements are wrong. This is not a very straightforward pattern at all.

10.07.2023 - 14:44

DROPS Design answered:

Dear Debora, A.1 is only worked in the back piece because it's a longer/higher piece. In the front piece you will only work A.2. Also, after joining the piece to work in the round we usually start the round in the middle underarm of the left sleeve. Happy knitting!

10.07.2023 - 18:03

country flag Emma Owen wrote:

Thank you for the reply to my other question .O have another query when it says knit in the round does that mean that only one side will be joined together as you continue the pattern then you will have to sew together the other side when finished .Or should it be all joined together .I’m new to understanding the pattern when knitting in the round Iv just been going back and forth with the pattern is it any different when working it in the round thank you

30.06.2023 - 18:00

DROPS Design answered:

Dear Emma, when working in the round you will join the work at the end of the round, so you will be working everything together, like a tube. Since you aren't working in rows and turning on every row, you don't need to sew it together after finishing the piece; it will be joined together already. You can see how this works in the following video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=44&lang=en. When knitting in the round, you will be working always on the right side so, if you are reading a chart, you will always read it in the same direction (right to left) and work the symbols as explained for the right side. Happy knitting!

30.06.2023 - 21:10

country flag Emma Owen wrote:

Hello I’m stuck on section A3a Iv put all my stitches on the circular needles 150 stitches and where it says 2purl or knit each side of the stich markers ,would I still be doing the kkp and either end as well as the 2 stitches each side of the markers ,beginning ,either side of the joins ,end ie ppkkp,ppkkp,ppkkp,ppkkp so 4 times or is this wrong thank you

25.06.2023 - 23:52

DROPS Design answered:

Dear Mrs Owen, you will start with purl 2 then work A.3A, repeat A.3B and then finish before the next side with A.3C and purl 2; work diagram just as before; knit the new stitches on the sides on every round except when you have to purl all stitches in A.3, you will then purl all stitches on the round. Happy knitting!

26.06.2023 - 09:04

country flag Ann-Charlotte wrote:

I andra delen av diagram A3A i storlek L-XL-XXL så blir det en ökning varje rät varv. Den håller sig inte på 9 maskor hela tiden. Är det ett fel på diagrammet?

04.06.2023 - 11:52

DROPS Design answered:

Hei Ann-Charlotte. Du strikker A.3A og A.3C etter hverandre (sidene av plagget) og disse flettes/henger sammen og holder maskeantallet jevnt. mvh DROPS Design

05.06.2023 - 06:47

country flag Viviana wrote:

Buonasera, per quanto riguarda il davanti, quando si parla delle prime tre maglie e ultime tre, nel giro a rovescio le lavoro come si presentano o sempre allo stesso modo? Ovvero: diritto del lavoro: prime tre maglie 1 legaccio, 1 dir, 1 rov. Ultime tre 1 rov, 1 dir, 1 leg. Giro e lavoro 1 leg, 1 dir, 1 rov oppure 1 leg, 1 rov, 1 dir? Grazie.

26.05.2023 - 21:01

DROPS Design answered:

Buonasera Viviana, deve mantenere 1 maglia a maglia legaccio e lavorare 2 maglie a coste. Buon lavoro!

28.05.2023 - 21:05

country flag Asia wrote:

Jedno oczko ściegiem francuskim oznacza oczko na prawo? more complicated nie mogliście tego napisać...

09.05.2023 - 18:49

DROPS Design answered:

Witaj Aniu, jedno oczko ściegiem francuskim w robótce przerabianej w tę i z powrotem (w rzędach) oznacza oczko na prawo na prawej stronie robótki i na lewej stronie robótki. Pozdrawiamy!

09.05.2023 - 20:47

country flag Silvia wrote:

En l pieza de frente ,creo q falta tejer A1 pone tejer A2 me imagino q será como la parte espalda primer9 A1 y luego A2 .?

09.05.2023 - 12:23

DROPS Design answered:

Hola Silvia, el patrón es correcto. A.1 se trabaja junto en la parte que está más elevada en la espalda que en el delantero. A.2 se trabaja igual en ambas partes.

14.05.2023 - 19:39