Lilian skrifaði:
Now I get it!Thanks
20.04.2023 - 13:49
Lilianne Vranic skrifaði:
My Question is ,is the pattern right if i work two different armholes on the Back part A2c and A2a are differently shaped they are armholes right?
19.04.2023 - 08:41DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Vranic, armholes will be right when working A.2a on one side and A.2c on the other side, both diagrams are decreasing the same number of stitches on each side but due to the pattern, they are worked a different way at the beginning and at the end of the row. Happy crocheting!
19.04.2023 - 10:48
Lilian skrifaði:
How do I work A2c and A2a on Back piece .?I thought its think A2a for Back piece and A2c for front piece.2 different armholes on one piece don't make sense to me.Maybe am wrong have made my top longer where it says 34 i added 10 cm but now am stuck.
19.04.2023 - 02:58DROPS Design svaraði:
Dear Lilian, work A.2c at the beginning of the row from wrong side, then repeat A.1b as before and finish the row with A.2a - from right side work A.2a, repeat A.1b and finish with A.2c. See both diagrams appropriate to your size - are you working size S? Then you start with A.2 when piece measures 34 cm, continue with off white when piece measures 39 cm, when diagrams are done continue with A.1a, A.1b and A.1c until piece measures 41 cm. Happy crocheting!
19.04.2023 - 08:07
Silvia skrifaði:
Einfach Sommer
17.01.2023 - 15:22
Beach Glass Top#beachglasstop |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er heklað neðan frá og upp með röndum og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.
DROPS 240-9 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. A.1 sýnir mynstur með stuðlahópum. A.2 sýnir úrtöku við handveg. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. RENDUR: Sjá mynsturteikningu A.3. 1 umferð í A.2 = 1 umferð í A.1/A.2. A.3 er heklað þar til stykkið mælist ca 37-39-41-41-43-45 cm, síðan er heklað með litnum natur að loknu máli. Klippið þráðinn í lok umferðar eftir þörf, þannig að allan tímann er heklað til skiptis 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu – ATH: Passið uppá að þráðarendarnir séu nægilega langir þegar skipt er um lit til að hægt sé að nota endana til að sauma stykkið við frágang. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 stuðli í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er heklað fram og til baka, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman í hliðum og á öxlum. BAKSTYKKI: Heklið 56-64-68-72-80-88 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA að ofan, með heklunál 5 með litnum natur í DROPS Paris. Snúið stykkinu, heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 55-63-67-71-79-87 fastalykkjur (þessi umferð er frá röngu). Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1a í fyrstu fastalykkju, heklið A.1b alls 13-15-16-17-19-21 sinnum, heklið A.1c í 2 síðustu fastalykkjurnar. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar heklaðar hafa verið 4-4-4-5-6-6 umferðir með stuðlahópum í litnum natur, heklið RENDUR – sjá útskýringu að ofan (stuðlahóparnir halda áfram eins og áður). Þegar stykkið mælist ca 33-34-35-36-37-38 cm og næsta umferð er hekluð frá röngu, fækkið lykkjum fyrir handveg þannig - ATH: Byrjið í 2. umferð í mynsturteikningu! Heklið A.2c, haldið áfram með A.1b þar til 2-3-3-3-4-4 stuðlahópar eru eftir í umferð, heklið A.2a yfir síðustu lykkjurnar. Heklið síðan eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ XS: Haldið svona áfram með úrtöku fram og til baka þar til 2 síðustu umferðir í A.2 eru eftir. Skiptið yfir í litinn natur og heklið 2 síðustu umferðir í A.2, stykkið mælist ca 39 cm og það hefur fækkað um 2 stuðlahópa í hvorri hlið fyrir handvegi. Klippið þræðina og festið. STÆRÐ S - M - L - XL - XXL: Haldið svona áfram með úrtöku fram og til baka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 39-41-41-43-45 cm, enda rendurnar og heklað er með litnum natur að loka máli. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 40-41-42-45-46 cm og fækkað hefur verið um 3-3-3-4-4 stuðlahópa í hvorri hlið fyrir handvegi. Haldið áfram fram og til baka með stuðlahópa eins og áður, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1a í fyrstu lykkju, heklið A.1b alls 9-10-11-11-13 sinnum, heklið A.1c yfir síðustu lykkjur. Heklið þar til stykkið mælist 41-43-45-47-49 cm. Klippið þræðina og festið. FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og bakstykki. Þegar framstykkið hefur verið heklað til loka á sama hátt og bakstykkið, mælist stykkið ca 39-41-43-45-47-49 cm. Ekki festa þræðina. Nú er heklað BAND Á ÖXL / HLÝRI í hvorri hlið eins og útskýrt er að neðan. BAND Á ÖXL / HLÝRI: Byrjið frá réttu og heklið þannig: EF UMFERÐIN BYRJAR FRÁ RÉTTU: Heklið A.1a, heklið A.1b alls 2-2-2-2-2-3 sinnum, heklið A.1c. EF UMFERÐIN BYRJAR FRÁ RÖNGU: Heklið A.1c, heklið A.1b alls 2-2-2-2-2-3 sinnum, heklið A.1a. Haldið svona áfram fram og til baka þar til bandið/hlýrinn mælist ca 20 cm í öllum stærðum (bandið/hlýrinn á öxlinni á að liggja yfir öxlina og er saumað við bakstykkið – mátið e.t.v. toppinn og stillið lengdina af). Klippið þráðinn. Heklið alveg eins band/hlýra í hinni hliðinni. FRÁGANGUR: Saumið bandið á öxlinni / hlýrann við bakstykkið yst í hvorri hlið. Saumið hliðarsauma – saumið ofan frá og niður kant í kant og saumið með litnum í hverri rönd. Endið sauminn þegar ca 14 cm eru eftir neðst í hvorri hlið (klauf). KANTUR Í KRINGUM HÁLSMÁL: Byrjið fyrir miðju á annarri öxlinni og heklið með heklunál 5 með litnum natur þannig: 1 fastalykkja um fyrsta stuðul, * 4 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul/stuðlahóp (ca 2 cm), 1 fastalykkja um næsta stuðul/loftlykkju *, heklið frá *-* meðfram bandi á öxl / hlýra og í kringum hálsmál og endið umferð með 4 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið þráðinn og festið. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Byrjið í hlið undir ermi og heklið með heklunál 5 með litnum natur þannig: 1 fastalykkja í hliðarsaum, * 4 loftlykkju, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fastalykkja um næsta stuðul/loftlykkju *, heklið frá *-* í kringum allan handveginn og endið umferð með 4 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið þráðinn og festið. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #beachglasstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.