Francesca skrifaði:
Sarebbe possibile avere lo schema per l’unicinetto? È bellissimo!! Grazie mille!
29.11.2023 - 18:54DROPS Design svaraði:
Buonasera Francesca, questo modello è stato progettato per essere lavorato ai ferri. Buon lavoro!
30.11.2023 - 22:46
Johanna skrifaði:
Tolle Anleitung! Die Maus ist so niedlich. 🤗 Vielleicht könnt ihr ja noch ein gestricktes Lesezeichen mit Teddy-Kopf entwerfen. Das wäre toll!
19.05.2023 - 20:34
Barbara Rayner-Hersey skrifaði:
Would love the pattern in English
12.04.2023 - 20:04
Mary skrifaði:
Buongiorno, credo ci sia un'errore nella descrizione dell'orecchio, il testo dice: lavorare a diritto dal diritto del lavoro fino a quando rimangono 2 maglie, girare, tirare il filo, LAVORARE A DIRITTO DAL DIRITTO DEL LAVORO fino a quando rimangono 2 maglie, girare. La parte scritta in stampatello maiuscolo credo sia errata perché se giro il lavoro dopo aver lavorato a diritto mi trovo sul rovescio e non sul diritto spero di essermi spiegata bene
09.01.2023 - 19:37DROPS Design svaraði:
Buonasera Mary, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
09.01.2023 - 20:27
Ilse Lüppen skrifaði:
Guten Abend und ein frohes neues Jahr! Die Beschreibung des Ohres, 2. Absatz ab "In dieser Weise......" ist leider sehr unklar ausgedrückt und ich habe mehrere Versuche gebraucht um zu verstehen, wie es geht. Herzliche Grüße Ilse Lüppen
01.01.2023 - 20:34
Marie Claire skrifaði:
Bonjour, Un gros merci pour ce joli signet-souris. J’en ai fait deux pour mettre dans les bas de Noël de mes petits-fils qui ont toujours un livre dans les mains. Ils adorent! Aussi les vidéo-tuto m’ont beaucoup aidé tellement c’est bien expliqué. À tous, je souhaite une très belle Année 2023
28.12.2022 - 13:46
Undine skrifaði:
Noch ein Tipp: Da ich keine Füllwatte im Haus hatte, habe ich den Kopf der Maus einfach mit losen Wollfäden gefüllt. Das ging prima. ;-)
18.12.2022 - 16:03
Undine skrifaði:
Habe die Maus fertig, richtig niedlich... Allerdings ist der Anfang mit nur einer Masche je Nadel auch für mich als routinierte Strickerin richtig fummelig gewesen und ich wäre fast daran verzweifelt. Vielleicht fehlt in der Anleitung der Hinweis darauf daß man zu Beginn ein Nadelspiel mit extrem kurze Nadeln verwenden sollte, falls es so etwas gibt. Die normal langen Nadeln sind ständig im Weg oder fallen heraus.
18.12.2022 - 15:59
Gudrun skrifaði:
Allerliebst dieses Lesezeichen! Muss ich unbedingt nacharbeiten. Danke für die Anleitung!
13.12.2022 - 09:34
Library Mouse#dropslibrarymouse |
|
![]() |
![]() |
Prjónað bókamerki / mús með röndum úr DROPS Alpaca. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1576 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- EYRA: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* í sömu lykkju þar til alls 15 lykkjur eru fyrir eyra. Nú eru prjónaðar stuttar umferðir fram og til baka yfir eyrnalykkjurnar þannig: snúið stykkinu, prjónið brugðnar lykkjur frá röngu þar til 1 lykkja er eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 1 lykkja er eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið brugðnar lykkjur frá röngu þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 5 lykkjur eru eftir í hvorri hlið, snúið, prjónið út umferðina frá röngu, snúið stykkinu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu með tvöföldum þræði, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn dragi stykkið saman er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir annarri hverri lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) = 1 lykkja eftir. Prjónið síðan eins og útskýrt er í uppskrift. RENDUR: Prjónið rendur þannig: Prjónið * 4 umferðir með litnum dökk blush, 4 umferðir með litnum natur, 4 umferðir með litnum vínrauður, 4 umferðir með litnum natur *, prjónið frá *-* að loka máli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- MÚS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allt stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá nefi og að miðju að aftan. Höfuðið er fyll með vatti. Búkurinn er prjónaður í hring í röndum. Síðan er skottið og handleggir prjónað eins og hringlaga snúra. HÖFUÐ: Fitjið upp 4 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum svartur úr DROPS Alpaca. Skiptið 4 lykkjunum niður þannig að það verði 1 lykkja á hverjum prjóni (prjónið með 5. prjóninum). Prjónið hringinn eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 8 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat). Skiptið yfir í litinn nougat. UMFERÐ 3: Prjónið slétt. UMFERÐ 4: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 12 lykkjur. UMFERÐ 5: Prjónið slétt. UMFERÐ 6: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 20 lykkjur. UMFERÐ 7: Prjónið slétt. UMFERÐ 8: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 28 lykkjur. UMFERÐ 9: Prjónið slétt. UMFERÐ 10: Prjónið slétt. UMFERÐ 11: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 36 lykkjur. UMFERÐ 12: Í þessari umferð eru augun prjónuð, þ.e.a.s. umferðin er prjónuð þannig: 15 lykkjur með litnum nougat, 1 lykkja með litnum svartur, 4 lykkjur með litnum nougat, 1 lykkja með litnum svartur, 15 lykkjur með litnum nougat. UMFERÐ 13: Prjónið alveg eins og 12. umferð, nú hafa verið prjónaðar 2 umferðir í augum. Prjónið síðan með litnum nougat. UMFERÐ 14-16: Prjónið slétt. UMFERÐ 17: 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, 10 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt = 32 lykkjur. UMFERÐ 18: Í þessari umferð eru eyrun prjónuð, þ.e.a.s. umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 12 lykkjur slétt, í næstu lykkju er prjónað EYRA – sjá útskýringu að ofan, prjónið 6 lykkjur slétt, í næstu lykkjur er prjónað EYRA, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. UMFERÐ 19: Prjónið slétt. UMFERÐ 20: 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, 8 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt = 28 lykkjur. UMFERÐ 21-22: Prjónið slétt. UMFERÐ 23: 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, 6 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt = 24 lykkjur. Festið lausu þræðina og fyllið höfuðið með vatti. Prjónið fyrstu 6 lykkjurnar í umferð. Skiptið síðan lykkjunum á 2 sokkaprjóna, þannig að það verða 12 lykkjur á höfði og 12 lykkjur undir höfði. Prjónið 1 lykkju frá efri hlið á höfði saman með 1 lykkju frá neðri hlið á höfði þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar saman 2 og 2 = 12 lykkjur. Prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja lykkju á neðri hlið við 12 lykkjurnar = 24 lykkjur. Klippið þráðinn. BÚKUR: Skiptið yfir í litinn dökk blush. Skiptið 24 lykkjunum á sokkaprjóna og prjónið síðan hringinn með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATH! Byrjið umferð mitt undir búknum. Festið þræðina jafnóðum og prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20 cm, eða að óskaðri lengd, endið eftir heila rönd (4 umferðir með sama lit). Prjónið fyrstu 6 lykkjurnar í umferð. Skiptið síðan lykkjunum niður á 2 sokkaprjóna, þannig að það verða 12 lykkjur á búk og 12 lykkjur undir búk. Prjónið 1 lykkju frá efri hlið á búk saman með 1 lykkju frá neðri hlið á búk þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar saman 2 og 2 = 12 lykkjur. Fellið af frá röngu þannig: Fellið af fyrstu 4 lykkjurnar, prjónið 4 lykkjur brugðið, fellið af síðustu 4 lykkjurnar. SKOTT: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir 4 lykkjur með litnum nougat. * Færið lykkjurnar til að byrjun á prjóni, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir 4 lykkjurnar *, prjónið frá *-* þar til skottið mælist ca 15 cm. Fellið af. HENDUR: Fitjið upp 4 lykkjur með litnum nougat í DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir 4 lykkjurnar. * Færið lykkjurnar til að byrjun á prjóni, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu yfir 4 lykkjurnar *, prjónið frá *-* þar til stykkið mælist ca 15 cm. Fellið af. Prjónið aðra hönd á sama hátt. Saumið eina hönd í hvora hlið á neðanverðu á músinni, í skiptinguna á milli höfuðs og búks. Hnýtið hnút yst á hvora hönd. STREKKING: Til að eyrun standi fallega upp og verði stíf, þá er hægt að dýfa þeim í sykurvatn eða litlausan gosdrykk og láta þau þorna í réttu formi. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropslibrarymouse eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1576
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.