Gry skrifaði:
Det er en feil i denne oppskriften. Str 35/37 skal ha 48 m når en starter A1. Ved pil 1 skal en felle 8 masker jevnt, likevel står det at en har 48 masker videre. Satser på at det blir ok å strikke videre m 40 masker
30.11.2024 - 21:01
Elsebeth Knudsen skrifaði:
Jeg kan ikke forstå, at man skal slå så mange masker op til str 32/34. De bliver så store, at de passer til en voksen. Jeg gør opmærksom på, at min strikkefasthed passer.
17.10.2023 - 21:50
Elena skrifaði:
Salve vorrei sapere quando devono essere riprese le 20 maglie lasciate in sospeso per il sopra del piede. Grazie
12.01.2023 - 22:46DROPS Design svaraði:
Buonasera Elena, alla fine della lavorazione del tallone, si torna a lavorare su tutte le maglie. Buon lavoro!
21.01.2023 - 22:55
Christmas Time Socks#christmastimesocks |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í marglitu mynstri með jólasveinum, jólatrjám og hjörtum. Stærð 24 – 43. Þema: Jól.
DROPS Children 44-20 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.3). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að sokkarnir missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR-2: Hægt er að stilla mynstrið þannig að það komi jólasveinn, jólatré og hjarta yfir hvert annað mitt framan á sokknum. Ef þú hefur pláss fyrir oddatölu í fjölda mynstureininga í umferð, þá byrjar þú umferðina mitt að aftan með fyrstu lykkju í mynsturteikningu eins og vanalega. Ef þú ert með pláss fyrir slétta tölu í fjölda mynstureininga í umferð, byrjar þú umferðina mitt að aftan með 5. lykkju í mynsturteikningu og heldur áfram með mynstrið hringinn. HÆLL: Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum ljós grár þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu. Haldið áfram með snúningana alveg eins þar til 8-10-10-12-12-14-16 lykkjur eru eftir mitt á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – sokkurinn er síðar mældur frá þessu prjónamerki! Haldið áfram fram og til baka, en nú er prjónuð 1 lykkja fleiri í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) yfir hælinn. Til að koma í veg fyrir göt í öllum skiptingunum við snúningana, lyftið lárétta þræðinum á undan lykkjunni sem prjónuð er til viðbótar upp og þráðurinn er settur snúinn yfir á vinstri prjón. Prjónið þráðinn saman með næstu lykkju á vinstri prjóni (frá réttu er þráðurinn og lykkjan prjónað slétt saman og frá röngu er þráðurinn og lykkjan prjónað brugðið saman). Prjónið svona þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir allar lykkjur á hælnum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður, frá stroffi niður að tá. Lengdin á sokknum jafngildir lengd á fæti. Ef þú vilt að sokkurinn teygist aðeins þegar hann er mátaður, þá er hægt að prjóna aðeins styttri lengd áður en úrtakan byrjar fyrir tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 44-44-52-56-64-64-72 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum skógargrænn í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) jafnframt því sem prjónaðar eru rendur þannig: Prjónið 2 umferðir með litnum skógargrænn, 2 umferðir með litnum ljós grár, 4 umferðir með litnum skógargrænn, síðan heldur stroffið áfram með litnum ljós grár þar til það mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt með litnum ljós grár þar sem fækkað er um 4-4-4-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 40-40-48-48-56-56-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2 og prjónið A.1 alls 5-5-6-6-7-7-8 sinnum hringinn á leggnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör-1 er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir (á einungis við um stærð 35/37 og 41/43) = 40-40-48-48-48-56-56 lykkjur (nú er pláss fyrir 5-5-6-6-6-7-7 mynstureiningar hringinn á leggnum). Í umferð merktri með ör-2 er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir (á einungis við um stærð 38/40) = 40-40-48-48-48-52-56 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár þar til stykkið mælist 14-14-14-18-19-20-20 cm, eða þar til prjónað hefur verið minnst 1 cm með litnum ljós grár eftir A.1. Nú er prjónaður hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 10-10-12-12-12-13-14 lykkjur og haldið eftir þessum lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 20-20-24-24-24-26-28 lykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 10-10-12-12-12-13-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 20-20-24-24-24-26-28 hællykkjur á prjóni. Prjónið HÆLL með litnum ljós grár – sjá útskýringu að ofan. Þegar hællinn hefur verið prjónaður til loka, prjónið áfram eins og útskýrt er að neðan, en til að koma í veg fyrir að það komi gat í hverju horni á hælnum þegar fyrsta umferðin á eftir hæl er prjónuð, lyftið lárétta þræðinum upp á undan næstu lykkju yfir á vinstri prjón og þráðurinn er settur snúinn á vinstri prjón. Prjónið þráðinn slétt saman með næstu lykkju á vinstra prjóni. Prjónið A.2 hringinn – JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-3 er fækkað um 0-0-8-0-0-4-0 lykkjur jafnt yfir = 40-40-40-48-48-48-56 lykkjur (nú er pláss fyrir 5-5-5-6-6-6-7 mynstureiningar hringinn á fæti). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 7-9-8-10-11-12-14 cm frá prjónamerki á hæl – mælt undir fæti, prjónið A.3 alls 5-5-5-6-6-6-7 sinnum hringinn á fæti. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 11-13-14-16-18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl – mælt undir fæti. Prjónið 1 umferð sléttprjón með litnum skógargrænn þar sem fækkað er um 6-4-2-8-6-2-6 lykkjur jafnt yfir = 34-36-38-40-42-46-50 lykkjur. Nú eru eftir ca 4-4-4-4-4-5-5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd með litnum skógargrænn áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 17-18-19-20-21-23-25 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón með litnum skógargrænn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-6-6-5-5-7-6 sinnum og síðan í hverri umferð alls 0-1-1-3-3-2-4 sinnum = 10-8-10-8-10-10-10 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 15-17-18-20-22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #christmastimesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 44-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.