Claudia skrifaði:
Guten Tag, wenn ich diesen Pullover nur mit Alpaca Puno stricken möchte, wieviel Gramm mehr benötige ich da zusätzlich? Danke + MfG
14.12.2022 - 13:48DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, bei diesem Modell stricken Sie am Besten Puna und Kid-Silk zusammen, sonnst wird Ihre Maschenprobe nicht stimmen. Hier finden Sie alle Pullover, die, mit nur Puna stricken können (Garnumrechner benutzen, wenn nötig wird). Viel Spaß beim stricken!
14.12.2022 - 15:51
Heidi skrifaði:
Hallo, kan ik deze trui ook in 1 soort garen breien? Welk garen kan ik dan kiezen en hoeveel heb ik dan nodig?
25.11.2022 - 15:41
Minke skrifaði:
Hoe wordt de mouwkop gebreid? Ik vind dit niet terug in de beschrijving.
19.10.2022 - 18:02DROPS Design svaraði:
Dag Minke,
Je breit geen ronding als mouwkop, het is alleen zo dat je een split breit midden onder de mouw. Deze split wordt in het armsgat genaaid. (Zie ook de maattekening onderaan het patroon.) Je breit dus nog een stukje heen en weer (in plaats van in de rondte) voor de 'mouwkop'
19.10.2022 - 19:50
Pia skrifaði:
Älskar den här. Fint mönster, rolig att sticka då den varierar med olika tekniker.
07.08.2022 - 09:18
Snowy Bee#snowybeesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Puna og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með býkúpumynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-30 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1: Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki (miðjulykkja). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hvor öxl er prjónuð fram og til baka hvor fyrir sig, þ.e.a.s. prjónað er yfir bakstykki/framstykki samtímis. Það eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið til að forma hálsmál. Stykkin eru sett saman og lykkjur eru auknar út á hvorri öxl. Síðan skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkjuna. Lykkja með prjónamerki er prjónuð í sléttprjóni, aðrar lykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið fram og til baka yfir þessar lykkjur, JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju – sjá ÚTAUKNING-1 og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (að miðju að aftan) = 6 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (við miðju að framan) = 9 lykkjur. UMFERÐ 3: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju = 11 lykkjur. UMFERÐ 4: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju = 13 lykkjur. Prjónið þessar 4 umferðir 4 sinnum til viðbótar. Í hvert skipti sem þessar 4 umferðir eru prjónaðar, er aukið út um 10 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið alls 20 umferðir eru 53 lykkjur í umferð í öllum stærðum. UMFERÐ 21: Prjónið 26 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju, prjónið miðjulykkju, aukið út um 1 lykkju, prjónið 26 lykkjur slétt, fitjið síðan upp 4-5-6-7-8-9 nýjar lykkjur (hálsmál á bakstykki) = 59-60-61-62-63-64 lykkjur. UMFERÐ 22: Prjónið 31-32-33-34-35-36 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju, prjónið miðjulykkju brugðið, aukið út um 1 lykkju, prjónið 27 lykkjur slétt, fitjið upp 4-5-6-7-8-9 nýjar lykkjur (hálsmál á framstykki) = 65-67-69-71-73-75 lykkjur. Geymið stykkið. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp eins og vinstri öxl og prjónið alveg eins þar til prjónaðar hafa verið 20 umferðir = 53 lykkjur í umferð. UMFERÐ 21: Prjónið 26 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju eins og áður, prjónið miðjulykkju, aukið út um 1 lykkju eins og áður, prjónið 26 lykkjur, fitjið upp 4-5-6-7-8-9 nýjar lykkjur (hálsmál á framstykki) = 59-60-61-62-63-64 lykkjur. UMFERÐ 22: Prjónið 31-32-33-34-35-36 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju eins og áður, prjónið miðjulykkju brugðið, aukið út um 1 lykkju eins og áður, prjónið 27 lykkjur slétt, fitjið upp 4-5-6-7-8-9 nýjar lykkjur (hálsmál á bakstykki) = 65-67-69-71-73-75 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu og miðju að aftan: Prjónið frá réttu yfir lykkjur frá hægri öxl, prjónið til baka lykkjur frá vinstri öxl á prjóninn, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkjur eins og áður = 134-138-142-146-150-154 lykkjur. Síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón yfir lykkjur með prjónamerki og GARÐAPRJÓN yfir þær lykkjur sem eftir eru – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvora miðjulykkju. Aukið út í 2. umferð alls 9-10-11-12-13-14 sinnum = 170-178-186-194-202-210 lykkjur. Nú eru 84-88-92-96-100-104 lykkjur á milli miðjulykkja á bakstykki og framstykki. Í næstu umferð eru felldar af báðar miðjulykkjurnar. Klippið þráðinn. Hvort stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Nú er prjónað mynstur, með byrjun frá réttu þannig: 6-8-4-6-8-4 lykkjur sléttprjón, A.1 er prjónað 12-12-14-14-14-16 sinnum, prjónið 6-8-4-6-8-4 lykkjur sléttprjón. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 108-112-120-124-128-136 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 yfir hvert A.1. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið, fækkið lykkjum með 3 cm millibili alls 3 sinnum, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 1 lykkju í hvorri hlið = 102-106-114-118-122-130 lykkjur. Prjónið svona þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá yst á öxl (þar sem miðjulykkja var felld af). Fitjið upp 2-3-4-6-9-12 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 106-112-122-130-140-154 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni, mynstur heldur áfram eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 18-18-19-19-19-20 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp. Aukið út um 1-2-1-1-0-1 lykkjur jafnt yfir 5-8-5-9-14-13 lykkjur í hvorri hlið = 108-116-124-132-140-156 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú er prjónað stroff yfir allar lykkjur frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm, mælt frá efsta punkti á öxl. FRAMSTYKKI: Prjónið alveg eins og bakstykki. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 8 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Síðan er prjónað sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 5-5-4-3½-3-2½ cm millibil alls 7-7-8-9-9-10 sinnum = 58-58-64-66-70-72 lykkjur. Þegar ermin mælist 45-45-44-43-40-38 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loknu máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 46-46-46-46-45-45 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-1-2-3-5-7 cm efst á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermakúpuna við handveg. Síðan er saumuð klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju þar til 8 cm eru eftir = klauf. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 80-100 lykkjur í kringum hálsmál á peysu á stuttan hringprjón 4,5 með einum þræði í hvorri tegund. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsamáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowybeesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.