DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Miss Summerbee Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og áferðamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-2
DROPS Design: Mynstur fl-075
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS Flora frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-400-400-450 g litur 22, hvít þoka

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

UPPHÆKKUN:
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan).
Byrjið frá réttu og prjónið 14-15-16-16-17-18 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-30-32-32-34-36 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-45-48-48-51-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-60-64-64-68-72 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 70-75-80-80-85-90 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 84-90-96-96-102-108 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 98-105-112-112-119-126 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 112-120-128-128-136-144 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka mitt að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 3,8.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 4. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 3. og 4. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI.
Fitjið upp 120-124-130-136-140-146 lykkjur með DROPS Flora yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 2,5 sem haldið er saman.
Dragið út stuttan hringprjón 3 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 2,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – prjónið síðan næstu umferð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-36-38-40-44-46 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 152-160-168-176-184-192 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan) – prjónamerkið er notað til að mæla frá.
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Prjónið 2-2-6-6-8-10 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir 4 umferðir garðaprjón, prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Haldið áfram með mynstur og aukið út við örvar þannig:
Ör-1: Aukið út 40-40-48-56-64-64 lykkjur jafnt yfir = 192-200-216-232-248-256 lykkjur.
Ör-2: Aukið út 48-52-60-68-64-74 lykkjur jafnt yfir = 240-252-276-300-312-330 lykkjur.

Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur. Haldið áfram með mynstur og aukið út við örvar þannig:
Ör-3: Aukið út 102-108-114-126-126-138 lykkjur jafnt yfir = 342-360-390-426-438-468 lykkjur (það er aukið út sérlega mikið þar sem næsta mynstur dregur stykkið saman).
Ör-4: Fækkið um 6-6-6-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 336-354-384-414-426-456 lykkjur.
Ör-5: Aukið út 24-30-30-30-36-42 lykkjur jafnt yfir = 360-384-414-444-462-498 lykkjur.
Ör-6: Aukið út 16-24-26-28-34-38 lykkjur jafnt yfir = 376-408-440-472-496-536 lykkjur. Útaukning hefur verið gerð til loka í stærð S, M og L.

Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 hringinn yfir allar lykkjur.
Haldið áfram með mynstur og aukið út við örvar þannig (á einungis við stærð XL, XXL og XXXL):
Ör-7 (XL, XXL og XXXL): Aukið út 16-24-24 lykkjur jafnt yfir = 488-520-560 lykkjur.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú heldur A.3 áfram eins og útskýrt er að neðan. Að auki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. Lestu því kaflann MYNSTUR og SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR áður en þú prjónar áfram.

MYNSTUR:

S og M:
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka (alls 3 umferðir á hæðina með hnútum), prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur. ATH: Stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar áður en A.3 hefur verið prjónað til loka.

L:
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið 6 fyrstu umferðir í mynstureiningu merktri með stjörnu (alls 4 umferðir á hæðina með hnútum). Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur. ATH: Stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar áður en A.3 hefur verið prjónað til loka.

XL, XXL og XXXL:
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, endurtakið mynstureiningu merktri með stjörnu þar til prjónaðar hafa verið alls 5-6-6 umferðir á hæðina með hnútum. Síðan er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur. ATH: Stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar áður en A.3 hefur verið prjónað til loka.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Þegar stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 56-61-65-72-79-86 lykkjur eins og áður (½ bakstykki), setjið næstu 76-82-90-100-102-108 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóni (í hlið undir ermi), prjónið 112-122-130-144-158-172 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 76-82-90-100-102-108 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 56-61-65-72-79-86 lykkjur eins og áður (½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 240-260-280-308-340-368 lykkjur. Prjónið A.3 til loka eins og útskýrt er að ofan – ATH: Eftir skiptinguna kemur mynstrið ekki til með að ganga jafnt upp í hlið undir hvorri ermi, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er í hvorri hlið undir ermum, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni (mynstrið á að halda fallega áfram á framstykki og bakstykki yfir lykkjur frá berustykki).
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka (eftir alls 3-3-4-5-6-6 umferðir á hæðina með hnútum), prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 24 cm frá skiptingu í öllum stærðum.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 48-52-56-62-68-74 lykkjur jafnt yfir = 288-312-336-370-408-442 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust.
Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 76-82-90-100-102-108 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 84-90-100-110-114-120 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem prjónaðar voru upp undir ermi. Prjónið A.3 til loka eins og útskýrt er að ofan – ATH. Eftir skiptingu kemur mynstrið ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er mitt undir ermi, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið síðan sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 4-4-4-2-3-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 8-10-14-17-18-20 sinnum = 68-70-72-76-78-80 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 39-38-36-35-33-32 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-14-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 80-84-86-90-92-96 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 43-42-40-39-37-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann svo ekki myndist gat (lykkjan snýr til vinstri)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslættinum lyft af vinstri prjóni, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni aftan í lykkjubogann þegar lykkjan er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann, svo ekki myndist gat (lykkjan snýr til hægri)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónið 3 lykkjur brugðið saman, ekki sleppa lykkjum af vinstri prjóni, prjónið sömu lykkjur slétt saman og síðan brugðið saman, lyftið lykkjum af vinstra prjóni (hnútur)
symbols = Útauknings-/úrtökuumferð
symbols = 1 mynstureining á hæðina
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Miss Summerbee Sweater

paskulls, Italy

Miss Summerbee Sweater

Handmade_pihlaja, Finland

Miss Summerbee Sweater

Kathy, Czech Republic

Miss Summerbee Sweater

Lesyona, United States

Miss Summerbee Sweater

Yuliya, Russian Federation

Miss Summerbee Sweater

Jana Kasalova, Slovakia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Hanne Vinther wrote:

Opskrift 236-2 størrelse XXL Mønster A3 strikkes 3 masker sammen. Skulle der ikķe laves et omslag før og efter? Ellers tages 62 masker ind på en omgang. Der skal ikke tages 14 masker ud før ribkant på ærme. Tværtimod skal man tage 10 masker ind, ellers bliver kanten alt for vid. Mvh Hanne

01.01.2024 - 16:35

country flag Beverly Schuman wrote:

Thank you for your timely response. I see in my original question that I said Pattern 263-1 in error. I am working on Pattern 263-2. Regarding Diagram A.1, Row 11, you explained it as: 2k, 1p, 3yhop = 1m, 1p, 1k and 2yhop = 1m, 1p. I have no idea what that means and need clarification, please. I am very sorry for referencing the wrong pattern number initially. I need help on Pattern 236-2, Diagram A.1, Row 11. I appreciate you assistance. Thank you

22.11.2023 - 17:09

Bev Schuman answered:

Good Lord, I think I got it!!!! Was not reading the chart correctly but thanks to your help I believe I figured it out. If not, I'll be back. Very best regards.

22.11.2023 - 21:48

country flag Bev Schuman wrote:

Help please. Pattern 236-1, Diagram A.1, Row 11, I see your answer of:DROPS Design answered: Hi Susanne, you knit the 8 sts like this: 2k, 1p, 3yhop=1m, 1p, 1k, 2yhop=1m, 1p I am sorry, but I do not understand it. I have no idea what "3yhop or 2yhop means. Can you please help me understand how to proceed.? Thank you in advance.

22.11.2023 - 00:12

DROPS Design answered:

Hi Bev, You knit 3, purl 1, make 1 yarn over (see diagram instructions on how to work the yarn over on the next round), slip 1 stitch knit-wise, knit 2 togetherand pass the slipped stitch over the knitted-together stitches, make 1 yarn over (see diagram instructions on how to work the yarn over on the next round as it is different from the previous yarn over), knit 1, knit 2 together and make 1 yarn over (see diagram instructions on how to work the yarn over on the next round). Hope this helps and happy knitting!

22.11.2023 - 06:33

country flag Nasri Aicha wrote:

Bonsoir, j aimerais savoir , qu'elle est l aisance préconisée dans ce modèle ?

12.10.2023 - 18:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Nasri, nous n'utilisons pas ce concept, pour trouver votre taille, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma du bas de page. Choisissez ainsi vous-même l'aisance que vous aimez et qui vous correspond. Vous retrouverez plus d'infos ici. Bon tricot!

13.10.2023 - 08:33

country flag Susanne wrote:

Ich habe das Schmuckstück fertig und bin ganz begeistert. Im oberen Musterteil war das Zählen und Stricken für mich recht anstrengend- aber es hat sich absolut gelohnt! Für mich mit 1,72 m habe ich die Ärmel und den Rumpf wesentlich verlängert. Beim ersten Anziehen dachte ich dass die Größe M recht eng sitzt, aber nach Waschen und mehrmaligem Tragen sitzt er nun prima.

07.10.2023 - 23:50

country flag Pelletier Martiine wrote:

Bonjour, Je tricote la taille S du modèle Miss Summerbee Sweater. Lorsque j'ai tricoté le diagramme A3 une fois en hauteur (18 rangs), dois-je le répéter à partir du rang 7 jusqu'au rang 18 ou est-ce que cette répétition n'est valable que pour les grandes tailles ? J'espère que ma question est claire. Merci d'avance pour votre réponse. Bien cordialement. Martine Pelletier

08.09.2023 - 12:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pelletier, tout va dépendre de votre tension en hauteur, vous allez diviser l'ouvrage quand l'empiècement mesure 21 cm en taille S (à partir du marqueur, après le col), autrement dit, continuez A.3 jusqu'à atteindre cette hauteur, ou bien arrêtez avant pour éviter que l'empiècement ne soit trop long; vous terminerez A.3 (les 3 rangs de noeuds) d'abord sur le dos/devant puis sur les manches. Bon tricot!

08.09.2023 - 16:23

country flag Helle wrote:

Hvis man i A3 på str. XL skal tage masker ud , så kommer mønstret vel ikke til at passe, for så vil knuderne i de efterfølgende omgange da blive forskudt, så de ikke sidder rigtigt over hinanden. Eller har jeg misforstået?

25.08.2023 - 08:47

DROPS Design answered:

Hei Helle Jo, men det blir det på de største str. Om du syns forskyvningen blir for synlig, kan du jo fint avslutte med knutene tidligere. mvh DROPS Design

04.09.2023 - 13:22

country flag Margit Kuhn wrote:

Bei Größe ab XL soll man teilen, bevor A 3 zu Ende ist - aber am Ende von A3 nochmal zunehmen. Die Maschenzahl bei der Teilung ist aber die Maschenzahl NACH der Zunahme. Das kann nicht stimmen, man soll doch vor der Zunahme teilen !!!

09.08.2023 - 15:12

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kuhn, zuerst stricken Sie A.3 , dann wiederholen Sie die Reihen mit dem Sternch bis ingesamt 5 Runden mit Noppen gestrickt wurden dh 1 Mal A.3 + 1 Mal die Reihen mit den Sternchen; die Reihen mit den Zunahmen wird am Ende vom 1. Mal gestrickt (= nach der Runden mit den 3. Noppen). Sollte Ihre Maschenprobe in der Höhe nicht stimmen, dann stricken Sie diese Zunahme früher, damit die Zunahmen vor der Verteilung kommt. Viel Spaß beim stricken!

09.08.2023 - 17:03

country flag Sabina wrote:

Już wszystko jasne wszystko jest opisane czytelnie.:)

19.05.2023 - 19:49

DROPS Design answered:

Bardzo się cieszę. Miłej pracy!

22.05.2023 - 12:44

country flag Sabina wrote:

Dzień dobry, chce wykonać jeden ze swetrów i zastanawiam się jak zacząć. Czy mam sobie przeliczyć wg próbki ilość oczek na obwód? Przeczytałam cały opis i znalazłam niczego na czym mogłabym się oprzeć .

19.05.2023 - 19:20

DROPS Design answered:

Witaj Sabino, w następnym komentarzu widzę, że wszystko się wyjaśniło. Pozdrawiamy!

22.05.2023 - 12:45