DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Miss Summerbee Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og áferðamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-11
DROPS Design: Mynstur fl-074
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS Flora frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-400-400-450 g litur 22, hvít þoka

DROPS TALA NR 503: 6-6-6-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4224.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli er lokið (þ.e.a.s. þegar stykkið mælist ca 4 cm eftir að kantur í hálsmáli hefur verið brettur saman tvöfaldur). Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-8-8½-8½ cm millibili.

UPPHÆKKUN:
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju í umferð.
Byrjið frá réttu og prjónið 14-15-16-16-17-18 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 29-31-33-33-35-37 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 43-46-49-49-52-55 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 57-61-65-65-69-73 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 71-76-81-81-86-91 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 85-91-97-97-103-109 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 99-106-113-113-120-127 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 113-121-129-129-137-145 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið og prjónið 1 umferð brugðið (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 133 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 34) = 3,6.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir ca 3. og 4. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis önnur hver og 3. hver lykkja og 3. hver og 4. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI.
Fitjið upp 121-125-129-133-139-143 lykkjur með DROPS Flora yfir hringprjón 3 og hringprjón 2,5 sem haldið er saman.
Dragið út hringprjón 3 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 2,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm. Nú eru fitjaðar upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 133-137-141-145-151-155 lykkjur. Haldið áfram með stroff eins og áður með 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan (kantar að framan) þar til stroffið mælist 8 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 6 lykkjur garðaprjón, prjónið stroffprjón eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 6 lykkjur garðaprjón.
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 lykkjur garðaprjón, prjónið brugðnar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð og aukið jafnframt út um 34-38-34-38-40-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA, endið með 6 lykkjur í garðaprjóni = 167-175-175-183-191-199 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki innan við kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan – prjónamerkið er notað til að mæla frá.
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI.

BERUSTYKKI:
Prjónið 2-2-6-6-8-10 umferðir sléttprjón með 6 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið síðan 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur.
Eftir 4 umferðir garðaprjón, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
6 lykkjur garðaprjón, A.1A, prjónið A.1B þar til 11 lykkjur eru eftir, A.1C, 6 lykkjur garðaprjón.
Haldið áfram með mynstur og aukið út við örvar þannig:
Ör-1: Aukið út 40-40-48-56-64-64 lykkjur jafnt yfir = 207-215-223-239-255-263 lykkjur.
Ör-2: Aukið út 47-51-61-69-65-75 lykkjur jafnt yfir = 254-266-284-308-320-338 lykkjur.

Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 frá réttu þannig:
6 lykkjur garðaprjón, A.2A, prjónið A.2B þar til 13 lykkjur eru eftir, A.2C, 6 lykkjur garðaprjón.
Haldið áfram með mynstur og aukið út við örvar þannig:
Ör-3: Aukið út 102-108-114-126-126-138 lykkjur jafnt yfir = 356-374-398-434-446-476 lykkjur (það er aukið út sérlega mikið þar sem næsta mynstur dregur stykkið saman).
Ör-4: Fækkið um 6-6-6-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 350-368-392-422-434-464 lykkjur.
Ör-5: Aukið út 24-30-30-30-36-42 lykkjur jafnt yfir = 374-398-422-452-470-506 lykkjur.
Ör-6: Aukið út 13-21-29-31-37-41 lykkjur jafnt yfir = 387-419-451-483-507-547 lykkjur. Útaukning hefur nú verið gerð til loka í stærð S, M og L.

Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 frá réttu þannig:
6 lykkjur garðaprjón, A.3A, prjónið A.3B þar til 13 lykkjur eru eftir, A.3C, 6 lykkjur garðaprjón.
Haldið áfram með mynstur og aukið út við örvar þannig (á einungis við stærð XL, XXL og XXXL):
Ör-7 (XL, XXL og XXXL): Aukið út 16-24-24 lykkjur jafnt yfir = 499-531-571 lykkjur.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú heldur A.3 áfram eins og útskýrt er að neðan. Að auki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. Lestu því kaflann MYNSTUR og SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR áður en þú prjónar áfram.

MYNSTUR:

S og M:
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka (alls 3 umferðir á hæðina með hnútum), prjónið sléttprjón með 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan - ATH: Stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar áður en A.3 hefur verið prjónað til loka.

L:
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið 6 fyrstu umferðir í mynstureiningu merktri með stjörnu (alls 4 umferðir á hæðina með hnútum). Prjónið síðan sléttprjón með 6 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan - ATH: Stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar áður en A.3 hefur verið prjónað til loka.

XL, XXL og XXXL:
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, endurtakið mynstureiningu merktri með stjörnu þar til prjónaðar hafa verið alls 5-6-6 umferðir á hæðina með hnútum. Síðan er prjónað sléttprjón með 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan - ATH: Stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar áður en A.3 hefur verið prjónað til loka.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Þegar stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 61-67-71-77-84-92 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 77-81-89-101-103-107 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóni (í hlið undir ermi), prjónið 111-123-131-143-157-173 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 77-81-89-101-103-107 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 61-67-71-77-84-92 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 249-273-293-317-349-381 lykkjur. Prjónið A.3 til loka eins og útskýrt er að ofan – ATH: Eftir skiptinguna kemur mynstrið ekki til með að ganga jafnt upp í hlið undir hvorri ermi, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er í hvorri hlið undir ermum, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni (mynstrið á að halda fallega áfram á framstykki og bakstykki yfir lykkjur frá berustykki).
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka (eftir alls 3-3-4-5-6-6 umferðir á hæðina með hnútum), prjónið sléttprjón með 6 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 24 cm frá skiptingu í öllum stærðum.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 48-54-58-62-68-76 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 297-327-351-379-417-457 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið, 6 lykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af aðeins laust.
Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 77-81-89-101-103-107 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 85-89-99-111-115-119 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem prjónaðar voru upp undir ermi. Prjónið A.3 til loka eins og útskýrt er að ofan – ATH. Eftir skiptingu kemur mynstrið ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er mitt undir ermi, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið síðan sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4-4-2½-1½-1½-1½ cm millibili alls 9-9-13-18-19-19 sinnum = 67-71-73-75-77-81 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 39-38-36-35-33-32 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 13-13-13-15-15-15 lykkjur jafnt yfir = 80-84-86-90-92-96 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 43-42-40-39-37-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op mitt framan í kanti í hálsmáli með smáu spori.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.09.2022
Ný mynsturteikning A.1b

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann svo ekki myndist gat (lykkjan snýr til vinstri séð frá réttu)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslættinum lyft af vinstri prjóni, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni aftan í lykkjubogann þegar lykkjan er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann, svo ekki myndist gat (lykkjan snýr til hægri séð frá réttu)

symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónið 3 lykkjur brugðið saman, ekki sleppa lykkjum af vinstri prjóni, prjónið sömu lykkjur slétt saman og síðan brugðið saman, lyftið lykkjum af vinstra prjóni (hnútur)
symbols = útauknings-/úrtökuumferð
symbols = 1 mynstureining á hæðina
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Sophie wrote:

Hallo, Eine Frage zur Doppelten-Halsblende: es heißt, wenn man 8cm gestrickt hat, soll man das Rippenmuster nach innen umschlagen. Ist somit der gestrickte Anfang, wenn man ihn umschlägt, „vor“ den Stricknadeln oder „dahinter“? Also steche ich beim zusammenstricken erst in die alte Masche und dann in die auf der Nadel liegende oder anders herum. Vielen Dank schonmal und LG

05.04.2024 - 14:18

DROPS Design answered:

Liebe Sophie, in diesem Video zeigen wir, wie man eine doppelte Halsblende strickt, im Video handelt es sich um eine Halsblende für einen Pullover, für eine Jacke wird es aber genauso gestrickt, nur in Reihen und nicht in der Runde. Viel Spaß beim Stricken!

05.04.2024 - 15:07

country flag Lisbeth Nielsen wrote:

Jeg vil gerne strikke denne cardigan, men anvende alpaca og så en følgetråd Kid Silk. Kan jeg det? Jeg er normalt en str M, skal jeg måske ændre i str, hvis jeg strikker i andet garn såsom Alpaca. Alternativt tænker jeg, om jeg kan bruge Flora og så sætte følgetråd Kid Silk i? Jeg vil gerne have Kid Silk i trøjen. Venlig hilsen Lisbeth Nielsen

14.03.2024 - 15:47

DROPS Design answered:

Hej Lisbeth, får at få den rigtige størrelse i de 2 ønskede tråde kan du vælge at følge maskeantallet på en af disse cardigans (husk at overholde strikkefastheden som står i den opskrift du følger, for at få rigtig størrelse): Cardigan - rundt bærestykke - oppefra og ned

19.03.2024 - 12:09

country flag Anke Münstermann wrote:

Danke liebes Drops Team. Da hatte ich ja gleich 2 Fehler gemacht. Also danke.

22.11.2023 - 18:16

country flag Anke Münstermann wrote:

Danke liebes Drops Team. Da hatte ich gleich 1 Denkfehler und 1 Rechenfehler. Also danke.

22.11.2023 - 13:18

country flag Anke Münstermann wrote:

Liebes Drops Team. Wo ist mein Fehler ? Ich stricke gr. Xl. Die Zunahme Pfeil 6 ergibt 483 M. Plus Pfeil 7 ergibt 499M. Die Aufteilung in 2 mal Vorderteil je 77 M. plus 2mal Ärmel je 101 M. Plus Rückenteil 143M. sind 489 M. Und weiter nach Abzug der Ärmel 202 M. Ergeben 287 M. Für das Rumpfteil soll ich aber mit 317 M. weiterstricken. Mit freundlichen Grüßen Anke Münstermann

21.11.2023 - 20:04

DROPS Design answered:

Liebe Frau Münstermann, bei der Verteilungsreihe wird man 10 Maschen über die stillgelegten Maschen für jede Ärmel anschlagen, so hat man 77+10+143+10+77=317 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

22.11.2023 - 08:54

country flag Wendy Palin wrote:

I still don't understand the instruction for the stitches on rows 9 and 11. I am following the written instructions rather than the chart and I need to lnow exactly what to do as a1. A3 doesn't make sense to me. Could you please explain further.

09.08.2023 - 15:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Palin, Imagine that all these 3 A.3 diagrams are together; you just make knots after every 5 stitches and repeat after every 5 rows. On row 9, start (after the front band stitches) after the first 6 sts and work *a knot over the next 3 sts, knit 5*, ending with knit 7 at the end of the row (inside front band stitches). On row 15 (edit), knit 2, then work *1 knot, knit 5*,, repeat from *-* ending with knit 2 (remember front band sts on each side). Happy knitting!

10.08.2023 - 11:36

country flag Wendy Palin wrote:

When working pattern A, rows 1,3,5 7 and 13 are worked over 8 stitches with 25 repeats. When working rows 9 and 11, the pattern is only over 6 stitches with 25 repeats. Therefore, there are more stitches left at the end of the repeats. Please advise as there appears to be an error in either number of stitches used or number of repeats.

09.08.2023 - 00:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Palin, when working 9th row, you will work the last 2 sts A.3A together with the first stitch A.3B (you work these 3 sts together 3 times - no decrease, just a small bobble); then work B the same way, ie work the last 2 sts A.3B together with the first stitch next A.3B and then with the first stitch A.3C. Happy knitting!

09.08.2023 - 08:30

country flag Diane wrote:

I really want to try this but I cant understand the ref to A1,A2 and A2- the website refers to diagrams - but there arent any on the page? What am I missing please? Gorgeous pattern, never tried top down so excited to get started - once I understand the pattern- I will neeed new circular needles as I dont have any this size - would you recommend the interchangeable sort with different length cables? Thanks!

02.06.2023 - 18:40

DROPS Design answered:

Dear Diane, you can find all of the charts after the pattern written instructions. A.1, A.2 and A.3 are shown separated in 3 parts each (A, B and C). We don't have yet any interchangeable circular needles in DROPS, but you could use them if you have them. Happy knitting!

04.06.2023 - 19:16

country flag Anna wrote:

Dit patroon wordt gebreid met Drops Flora. Naalden 2.5 en 3 mm. Stekenverhouding is 26 steken op tien cm, gebreid in tricotsteek. Bij de productinformatie van Drops Flora staat echter dat tien cm tricotsteek gebreid met nld van 3 mm een stekenverhouding heeft van 24 steken. Is het dan niet handiger om dunnere wol te kopen, dat een stekenverhouding heeft van 26 st per tien cm?

20.04.2023 - 22:26

country flag Géraldine wrote:

Bonjour, je ne comprends pas les centimètres pour les diminutions des manches : XXL = 4 1/2 cm ou 1 1/2 cm, car pour un XXL diminuer tous 1,5 cm et bien le haut de la manche sera plus serré que pour que pour les hauts de manche en taille s, donc oui là je ne comprends pas du tout il doit y avoir une erreur ? Merci à vous

10.11.2022 - 18:02

DROPS Design answered:

Bonjour Géraldine, en taille XXL vous diminuez pour les manches 19 fois tous les 1,5 cm, il vous restera 77 mailles (en taille S, vous diminuez uniquement 9 fois donc moins souvent = tous les 4 cm). La manche est ensuite plus courte en taille XXL (33 cm) qu'en taille S (39 cm) car l'empiècement est plus long - cf schéma - ajustez les longueurs si besoin en essayant le gilet et tricotez jusqu'à ce qu'il reste 4 cm avant la longueur souhaitée. Bon tricot!

11.11.2022 - 08:39