Dawn skrifaði:
After increasing to 168 stitches, I am confused. Initially 14 stitches are for each shoulder., which then gives 70 stitches each for front and back. But when dividing for back and front it says to work 10stitches and put on a thread giving 74 each for front and back. Is this a typo? Size L.
21.03.2023 - 22:02DROPS Design svaraði:
Dear Dawn, the first 2 stitches and the last 2 stitches on each shoulder will be worked to back/front piece, so that from the first 14 sts (first shoulder) at the beginning of the round will be divided as follows: first 2 sts belong to back piece, next 10 sts belong to shoulder and are slipped on a thread, last 2 sts belong to front piece; work the 70 sts front piece and repeat: next 2 sts (first sts 2nd shoulder) belong to the front piece, slip next 10 sts for 2nd shoulder, work next 2 sts to back piece. You have now 74 sts for front piece. Happy knitting!
22.03.2023 - 08:48
Beleke Bagchus skrifaði:
Ik begrijp niet zo goed hoe ik garens kan vergelijken als ik met 2 draden moet werken. Kunt u mij doorgeven wat een goed vervanging zou zijn? Ik zou graag Drops Air gebruiken en dan 1 draad. Is dat een optie? Alvast hartelijk dank voor uw antwoord.
16.10.2022 - 15:22DROPS Design svaraði:
Dag Beleke,
In dit patroon wordt een garen uit garengroep A en een garen uit garengroep B samen gebruikt, dit resulteert in een dikte iets dikker dan garengroep C. DROPS Air valt in garengroep C. Je zou er ook voor kunnen kiezen om dan iets dikkere naalden te gebruiken zodat je op dezelfde stekenverhouding uitkomt. Via deze link kun je meer informatie vinden over het vervangen van garens.
16.10.2022 - 16:10
Ellie skrifaði:
Is it possible to knit the body in the round, instead of dividing the front and back pieces?
22.09.2022 - 11:11DROPS Design svaraði:
Hej Ellie, nej ikke i denne konstruktion, men du kan sætte forstykke og bagstykke sammen fra under ærmerne og ned :)
22.09.2022 - 14:51
Eva skrifaði:
Equestrian
04.08.2022 - 14:46
Salted Caramel#saltedcaramelsweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Puna og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-7 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir axlarsæti): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 kantlykkja garðaprjón. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður þar til útaukning fyrir axlarsæti er lokið. Síðan eru lykkjur fyrir öxl settar á þráð og framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig þar til berustykkið og fram- og bakstykki hefur verið prjónað til loka. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 66-72-72-78-78-90 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið stroff (3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 14 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt og jafnið lykkjufjöldann út til 64-72-72-80-80-88 lykkjur. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 8-12-12-12-12-16 lykkjur (ca hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur (öxl), setjið 2. prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 18-22-22-22-22-26 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur (öxl), setjið 4. prjónamerki hér, nú eru 10-10-10-10-10-10 lykkjur eftir í umferð (ca hálft bakstykki). ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og aukið út um 4 lykkjur í umferð þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á öxl verður sá sami. Aukið svona út í hverri umferð alls 20-20-24-28-32-32 sinnum = 144-152-168-192-208-216 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, mælist stykkið ca 11-11-13-15-17-17 cm mælt eftir kanti í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir öxl, framstykki og bakstykki þannig: Prjónið fyrstu 30-34-38-42-46-50 lykkjur í umferð (= ca hálft bakstykki), prjónið næstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= öxl), prjónið næstu 62-66-74-82-90-94 lykkjur (= framstykki), prjónið næstu 10-10-10-14-14-14 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= öxl), prjónið síðustu 32-32-36-40-44-44 lykkjur (= ca hálft bakstykki). Klippið þráðinn og setjið lykkjur fyrir bakstykki á þráð. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 62-66-74-82-90-94 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki ca mitt í umferð, stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni eins og áður og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju í lok fyrstu 2 umferða (= 1 kantlykkja í hvorri hlið) = 64-68-76-84-92-96 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 13-14-15-15-16-17 cm frá prjónamerki, fitjið upp 4-5-5-5-5-6 nýjar lykkjur í lok næstu 2 umferða fyrir handveg = 72-78-86-94-102-108 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni, en ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt frá hæsta punkti á öxl. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 14-20-18-22-20-20 lykkjur jafnt yfir = 86-98-104-116-122-128 lykkjur. Prjónið stroff frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið áfram með stroff með því að prjóna sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón í 3 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI. Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður frá axlalykkjum. Setjið eitt prjónamerki mitt í axlalykkjurnar. Ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki. Byrjið með 1 þræði í hvorri tegund og hringprjón 6 og prjónið upp lykkjur fyrir handveg frá réttu innan við 1 kantlykkju garðaprjón þannig: Byrjið neðst og innst í horni við handveg og prjónið upp 23-23-23-23-27-27 lykkjur upp við axlalykkjurnar, prjónið 10-10-10-14-14-14 axlalykkjur eins og áður, prjónið upp 23-23-23-23-27-27 lykkjur niður meðfram hinni hliðinni og niður að horni innst við handveg = 56-56-56-60-68-68 lykkjur. Nú er prjónað sléttprjón og stuttar umferðir fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 kantlykkja garðaprjón, prjónið sléttprjón upp að axlalykkjum, prjónið 10-10-10-14-14-14 axlalykkjur, prjónið 2 lykkjur sléttprjón. Snúið, herðið á þræði svo ekki myndist gat. UMFERÐ 2: Prjónið yfir fyrstu 14-14-14-18-18-18 lykkjur, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið yfir fyrstu 16-16-16-20-20-20 lykkjur, snúið, herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið yfir fyrstu 18-18-18-22-22-22 lykkjur, snúið, herðið á þræði. Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið 2 lykkjur fleiri í hverri umferð sem prjónuð er. Þegar 1 lykkja er eftir í hvorri hlið eru stuttum umferðum lokið. Ermakúpan mælist ca 12-12-12-12-14-14 cm. Takið prjónamerkið úr og setjið mitt á ermi. Héðan er nú stykkið mælt. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 7-7-7-7-7-8 cm frá þar sem stuttu umferðum lauk, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-5-5-4-2-2 cm millibili alls 6-6-6-7-10-10 sinnum = 44-44-44-46-48-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-37-36-35-32-32 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 6-6-6-4-8-8 lykkjur jafnt yfir = 50-50-50-50-56-56 lykkjur. Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 lykkja garðaprjón, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með stroff með því að prjóna sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón í 3 cm. Fellið af þegar stykkið mælist 40-40-39-38-35-35 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermi innan við 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið neðan frá og upp og saumið efstu 3-3-3-3-3-4 cm undir ermi að 4-5-5-5-5-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp fyrir handveg í hlið á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsauma. Endurtakið í hinni hliðinni. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #saltedcaramelsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.