Caramel Macchiato#caramelmacchiatosweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í klukkuprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KLUKKUPRJÓN prjónað fram og til baka (á við um framstykki og bakstykki): UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Endurtakið umferð 3 og 4. KLUKKUPRJÓN prjónað í hring (á við um fram- og bakstykki og ermar): UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Endurtakið umferð 1 og 2. KLUKKUPRJÓNSLYKKJA: Þegar lykkjur eru taldar, þá er uppslátturinn ekki talinn sem sér lykkja. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu! FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 klukkuprjónslykkju eins og áður, lyftið yfir næstu lykkju og uppslættinum sem tilheyrir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur (uppslátturinn sem tilheyrir til sléttu lykkjunnar) slétt saman og steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman. FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið næstu 3 lykkjur (uppslátturinn sem tilheyrir þeim) slétt saman, prjónið 1 klukkuprjónslykkju eins og áður og 1 kantlykkju í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið 3 lykkjur í 1 lykkju slétt þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstra prjóni = 3 lykkjur. Aukið er út til skiptis í fyrstu og síðustu sléttu lykkjuna í umferð. Fyrsta útaukningin er gerð í fyrstu sléttu lykkjuna, önnur útaukning er gerð í síðustu sléttu lykkjuna o.s.frv. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring, neðan frá og upp. Stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki heldur áfram fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 216-228-246-270-288-312 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt). Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið * 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 144-152-164-180-192-208 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið KLUKKUPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Lesið KLUKKUPRJÓNSLYKKJA! Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, stillið af að næsta umferð sé 1. umferð í klukkuprjóni, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig: Setjið 1 merki við byrjun umferðar, fellið af 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur + 1 uppslátt slétt saman, prjónið eins og áður yfir næstu 70-74-80-88-94-102 lykkjur, setjið 1 merki, fellið af 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur + 1 uppslátt slétt saman, prjónið eins og áður yfir síðustu 70-74-80-88-94-102 lykkjur og fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar. Það eru 71-75-81-89-95-103 lykkjur á milli merkja fyrir framstykki og bakstykki + 1 kantlykkja í lok umferðar. Hvort stykki er nú prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: Nú er prjónað KLUKKUPRJÓN prjónað fram og til baka – sjá útskýringu að ofan (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar frysta umferðin hefur verið prjónuð eru 73-77-83-91-97-105 lykkjur í umferð. Prjónið klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 23-23-25-25-27-27 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (25-27-29-33-35-39 lykkjur eftir á hvorri öxl). Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA = 23-25-27-31-33-37 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjunni sem tilheyrir). Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Setjið lykkjur til baka á hringprjón 5,5, byrjið með að fitja upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (séð frá réttu), snúið stykkinu og prjónið KLUKKUPRJÓN fram og til baka á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 48-50-50-52-52-54 cm. Í næstu umferð frá réttu, setjið miðju 15-15-17-17-19-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (29-31-33-37-39-43 lykkjur eftir á hvorri öxl). Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur fyrir hálsmáli. Fækkið lykkjum svona í 8.-8.-10.-10.-12.-12. hverri umferð alls 3 sinnum = 23-25-27-31-33-37 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjunni sem tilheyrir). Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 54-54-57-60-63-66 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt). Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið næstu umferð þannig: * 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið yfir 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 36-36-38-40-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið KLUKKUPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist 20-20-18-16-14-12 cm, aukið út um 2 lykkjur í næstu umferð – sjá ÚTAUKNING. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í klukkuprjóni. Í fyrstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar án uppsláttar. Aukið svona út í 10. hverri umferð alls 7-8-9-9-9-9 sinnum = 50-52-56-58-60-62 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjunni sem tilheyrir) þegar ermin mælist 47-46-45-43-42-40 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju meðfram handveg. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 84 til 114 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Uppslátturinn sem tilheyrir klukkuprjónslykkjum frá þræði er prjónaður með lykkjunni sem tilheyrir. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið stroff (2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 4 cm. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #caramelmacchiatosweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.