Agnete skrifaði:
Green hills
07.08.2022 - 14:50
Le Marec skrifaði:
Un pull confortable
06.08.2022 - 17:12
Dani skrifaði:
Evergreen
05.08.2022 - 16:48
Apikin skrifaði:
Indispensable !
05.08.2022 - 14:29
Helen Balshen skrifaði:
Spruce
04.08.2022 - 22:09
Rosa skrifaði:
Zig Zag
04.08.2022 - 15:17
Appalachian Trails#appalachiantrailssweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri og tvöföldum kanti að framan. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-12 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt. FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina eins og áður. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum neðan frá og upp og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 88-100-104-112-124-132 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 13-17-17-19-21-21 lykkjur jafnt yfir = 75-83-87-93-103-111 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 alls 6-8-7-9-10-9 sinnum, prjónið næstu lykkju eins og fyrstu lykkju í A.1 (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins í báðum hliðum) og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 yfir A.1. Endurtakið A.2 á hæðina. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 1-4-4-6-7-8 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 73-75-79-81-89-95 lykkjur. Mynstrið heldur áfram eins og áður á hæðina, þ.e.a.s. prjónað er frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, hoppið yfir fyrstu 1-4-4-6-7-8 lykkjur í A.2, prjónið næstu 11-6-8-4-3-4 lykkjur af A.2, prjónið A.2 alls 4-6-5-7-8-7 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu 12-7-9-5-4-5 lykkjur af A.2 og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist ca 38-40-40-42-42-44 cm, stillið af að endað sé með 1 heilli mynstureiningu af A.2 á hæðina, prjónið A.3 yfir A.2 (þ.e.a.s. fyrsta mynstureining af A.3 á breiddina er ekki prjónuð yfir fyrstu 1-4-4-6-7-8 lykkjur í mynstri og í síðustu mynstureiningu af A.3 á breiddina eru ekki prjónaðar síðustu 0-3-3-5-6-7 lykkjur af mynstri). Prjónið síðan stykkið í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fellið af miðju 21-21-23-23-25-25 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 26-27-28-29-32-35 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA, alls 2 sinnum = 24-25-26-27-30-33 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 88-100-104-112-124-132 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 44-46-46-48-48-50 cm = 73-75-79-81-89-95 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 17 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 28-29-31-32-36-39 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fækkið um 1 lykkju í hverri umferð frá réttu – munið eftir ÚRTAKA, alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 24-25-26-27-30-33 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 50-50-54-54-58-58 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 10 cm, skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 7-7-9-9-11-11 lykkjur jafnt yfir = 43-43-45-45-47-47 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 6-4-4-3½-2½-2 cm millibili alls 6-8-8-9-10-11 sinnum = 55-59-61-63-67-69 lykkjur. STÆRÐ S: Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. STÆRÐ M-L-XL-XXL-XXXL: Prjónið áfram þar til ermin mælist 45-45-44-41-39 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkið merkir hvar botninn á handvegi byrjar. Prjónið þar til ermin mælist 48-48-48-46-45 cm (þ.e.a.s.ca 3-3-4-5-6 cm frá prjónamerki). Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í. Í stærð M-L-XL-XXL-XXXL: Saumið botninn á handvegi – prjónamerki sem var sett í ermar eiga að passa við hliðar á fram- og bakstykki. Saumið ermi- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju niður að stroffi á peysu, þ.e.a.s. það er ca 5 cm klauf á peysunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 64 til 78 lykkjur í kringum hálsmál frá réttu með stuttum hringprjón 5 og 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 12c m, prjónið 1 umferð stroff þar sem aukið er út um 1 lykkju í annarri hverri brugðinni einingu. Síðan er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #appalachiantrailssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.