Mh Sailler skrifaði:
Bonjour. Comment faut-il augmenter1 maille dans 14sections ..........vu sur.......encolure dos.?.On aura plus 2 endroits et 2 envers alors?.Merci .
05.11.2022 - 18:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Sailler, c'est exact, au niveau de l'encolure dos, vous aurez 14 fois 3 mailles envers (et toujours 2 mailles endroit), mais de part et d'autre (en début et fin de rang), vous aurez toujours 2 m end/2 m env. Bon tricot!
07.11.2022 - 08:38
Julia skrifaði:
Dizewń dobry, niestety, ale instrukcja robienia kołnierza dla mnie, jako osoby początkującej jest zupewnie nie jasna:( Czy jets może jakiś filmik, który pokazuje jak dokładnie robi się kołnierz ?
03.11.2022 - 14:45DROPS Design svaraði:
Witaj Julio, niestety nie mamy video z tym rodzajem kołnierza. Nabierz oczka wokół dekoltu (jak w opisie), ale nie nabieraj oczek ponad zamkniętymi 14 oczkami na środku przodu. Dalej będziesz przerabiać w tę i z powrotem ściągaczem do odpowiedniej wysokości (podanej w opisie), w międzyczasie dodając oczka, aby kołnierz poszerzał się i dobrze układał. Na końcu układasz jedną część kołnierza na drugiej na środku przodu i przyszywasz do swetra, wzdłuż dekoltu (14 zamkniętych oczek) na środku przodu. W razie pytań pisz. Pozdrawiamy!
04.11.2022 - 09:00
Mh Sailler skrifaði:
Bonjour. Pour la taille M, après avoir terminé les cotes et diminué 12 mailles=88 mailles. A 43cm , pour les emmanchures, rabattre de chaque coté 1fois 2 mailles=84 mailles et non 78 comme il est indiqué.Merci de me renseigner.
12.10.2022 - 09:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Sailler, les emmanchures ont été corrigées en taille M, vous devez rabattre 2x 2 m et 1 x 1 m de chaque côté autrement dit 88 - 8 m - 2 = 78 m. Merci pour votre retour. Bon tricot!
12.10.2022 - 14:00
Sue skrifaði:
Hello, I'm having trouble with the maths for the armholes. I'm doing this jumper in size L for the back piece I have 94 stitches, the pattern says to cast off on each side 1x3 (=6stitches), 1x2 (=4stitches) and 4x1(=8stitches) total decrease in stitches =18. 94 stitches -18 does not =82 stitches but 76. How should I do a correct decrease so that the sleeves will fit ? Hope to hear from you soon.
01.10.2022 - 18:11
Evie skrifaði:
Het achterpand in maat M heeft 88 steken als er moet worden geminderd voor het armsgat. Volgens het patroon moet er als volgt worden geminderd: 0 keer 4 steken, 0 keer 3 steken, 1 keer 2 steken en 0 keer 1 steek aan elke kant. Dan kom ik uit op 84 steken ipv de aangegeven 78 steken. Klopt het dat er ook 1 keer 3 steken moet worden geminderd? Dan klopt het weer.
29.09.2022 - 20:24DROPS Design svaraði:
Dag Evie,
Ja, er lijkt inderdaad een fout in te zitten, ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling. Ik zou inderdaad nog 1 x 3 steken minderen.
02.10.2022 - 09:04
Evie skrifaði:
Bij de kraag moet na 5 cm bij de middelste 14 steken bij elke steek 1 steek gemeerderd worden. Betekent dit dat de boordsteek over die middelste 28 steken aan de achterkant 3r-3av gaat worden en over de overige steken 2r-2av blijft?
29.09.2022 - 20:15DROPS Design svaraði:
Dag Evie,
Je meerdert alleen in de middelste 14 averechte delen aan de goede kant gezien, dus het wordt dan 2 recht, 3 averecht, waarbij je dus 14 keer 3 averecht hebt, de rest blijft 2 recht, 2 averecht.
02.10.2022 - 09:20
Maria Ranefalk skrifaði:
Hej, jag vill gärna sticka fram och bakstycke tillsammans, går det? Till ärmhålet börjar?
23.09.2022 - 22:08DROPS Design svaraði:
Hei MAria. Det kan du gjøre, bare juster maskeantallet (trenger ikke kantmaskene). mvh DROPS Design
26.09.2022 - 10:04
Ewa skrifaði:
Tył. Zamykanie na podkroje rękawów. Rozmiar L. Było 94 oczka. Zamykać na początku rzędu z każdej strony 0 razy 4 oczka, 1 raz 3 oczka, 1 raz 2 oczka i 4 razy 1 oczko. Ma być 82 oczka. Zamykać mam 9 a finalnie zostaje 12 mniej. Czy trzeba zamknąć 2 razy po 3 czy lepiej na koniec 7 razy po 1 ?
17.09.2022 - 10:52DROPS Design svaraði:
Witaj Ewo, ja zamknęłabym na koniec 7 razy 1 oczko. Swoją drogą nie zgadza się liczba oczek po zamknięciu oczek na podkroje rękawów w rozmiarze M i L. Zgłoszę korektę. Bardzo dziękuję za informację. Pozdrawiam!
19.09.2022 - 08:24
Blue Haze#bluehazesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 233-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN Á UMFERÐ: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni (1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermi): Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ----------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið, bakstykkið og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka og saumaður saman mitt að framan. BAKSTYKKI: Fitjið upp 90-100-108-116-128-140 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff fram og til baka í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 10-12-14-14-16-18 lykkjur jafnt yfir = 80-88-94-102-112-122 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 4 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinni, 3 lykkjur 0-0-1-0-0-0 sinnum, 2 lykkjur 1-2-1-1-2-3 sinnum og 1 lykkju 0-1-1-3-4-6 sinnum = 76-78-82-84-88-90 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, fellið af miðju 34-34-36-38-38-40 lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 20-21-22-22-24-24 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. FRAMSTYKKI. Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram! Nú á að fella af fyrir handvegi eins og á bakstykki, JAFNFRAMT því sem felldar eru af 14 miðjulykkjur í hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig, í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 kantlykkja í garðaprjóni þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli (að miðju að framan). Sjá ÚRTAKA og fellið af fyrir v-hálsmáli í hverri umferð frá réttu 9-9-10-10-10-11 sinnum, eftir það í 2. hverri umferð frá réttu 3-3-3-4-4-4 sinnum. Þegar öll affelling / úrtaka hefur verið gerð fyrir handveg og v-hálsmáli eru 20-21-22-22-24-24 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 46-46-50-50-54-58 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff svona fram og til baka í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-2-6-4-6-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-44-46-48-50 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-8-10 cm, aukið út með 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3-2½-2-1½ cm millibili alls 11-12-13-15-16-17 sinnum = 64-68-70-76-80-84 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 52-50-50-49-47-45 cm. Í næstu 2 umferðum eru felldar af 4 lykkjur í byrjun á hverri umferð. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-2-3-3 sinnum, 1 lykkja 1 sinni. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56 cm í öllum stærðum. Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist 57 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt framan í vinstri hlið við lykkjur sem felldar voru af mitt að framan fyrir v-hálsmáli. Notið hringprjón 4,5 og DROPS Air. Prjónið upp ca 46-48-50-51-54-55 lykkjur innan við 1 kantlykkju upp að öxl, síðan eru prjónaðar upp 36-36-38-40-40-42 lykkjur aftan í hnakka og að lokum ca 46-47-49-51-53-54 lykkjur innan við 1 kantlykkju frá öxl og niður að lykkjum sem felldar voru af mitt að framan = ca 128-131-137-142-147-151 lykkjur – lykkjur eru ekki prjónaðar upp þar sem fellt var af mitt að framan. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 116-124-124-128-136-140 lykkjur. Síðan er prjónað stroff þannig – fyrsta umferð er frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kraginn mælist ca 6 cm. Nú er aukið út um 1 lykkju í hverja af miðju 14 brugðnu einingunum, séð frá réttu (aftan í hnakka) = 130-138-138-142-150-154 lykkjur. Prjónið áfram þar til kraginn mælist 10-11-11-11-12-13 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR-2: Leggið kragann saman tvöfaldan þannig að vinstri hlið liggi yfir hægri hlið neðst í opi í hálsmáli. Saumið kragann fallega niður að framan, saumið í gegnum bæði lögin. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluehazesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.