DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13310.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sailor's Knots

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Soft Tweed eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, tvöföldum kanti í hálsmáli og ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL

DROPS 233-2
DROPS Design: Mynstur st-029
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-750-800 g litur 10, gallabuxnablár

Eða notið:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-750-750-850-900-950 g litur 24, kóbaltblár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni / 34 umferðir á hæðina með mynstri A.1 = 10 x 10 cm. Mynstureining á framstykki mælist ca 34 cm á breiddina.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13310.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Sláið 1 sinni uppá prjóninn í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-----------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin.
Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring og brotinn inn svo það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 116-124-136-148-160-172 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Soft Tweed eða DROPS Daisy.
Prjónið stroff fram og til baka þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slátt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið svona stroff þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-14-18-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 100-110-118-128-140-152 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur A.1 þar til 1 lykkja er eftir og 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm, fellið af lykkjur fyrir handvegi í hvorri hlið, í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-2-3-4 sinnum, 1 lykkja 0-1-1-4-6-8 sinnum = 94-98-102-106-110-114 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, fellið miðju 38-38-40-40-42-42 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 27-29-30-32-33-36 lykkjur. Prjónið mynstur A.1 þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 116-124-136-148-160-172 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Soft Tweed eða DROPS Daisy.
Prjónið stroff fram og til baka þannig – fyrsta umferð frá réttu: : 1 kantlykkja í garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið svona stroff þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-14-10-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 128-138-146-156-168-180 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur A.1 yfir 11-16-20-25-31-37 lykkjur, prjónið A.2, A.3, A.4, A.5, A.6, prjónið 11-16-20-25-31-37 lykkjur A.1 og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm, fellið lykkjur af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-1-2-3-4 sinnum, 1 lykkja 0-1-3-4-6-8 sinnum = 122-126-130-134-138-142 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 58-60-61-63-64-66 cm, fækkið um 12 lykkjur jafnt yfir sléttar lykkjur í mynstri A.4 = 110-114-118-122-126-130 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru miðju 32 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli. Síðan eru axlir prjónaðar til loka hvor fyrir sig og lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2-2-3-3-3-4 sinnum = 35-37-38-40-41-43 lykkjur eftir í umferð. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm, fækkið um 4 lykkjur í sléttum lykkjum í hverju A.2 og A.3 / A.5 og A.6 = 27-29-30-32-33-35 lykkjur á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 62-62-66-66-70-70 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Soft Tweed eða DROPS Daisy.
Prjónið stroff fram og til baka þannig – fyrsta umferð er frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Prjónið stroff svona þar til stykkið mælist 7 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 8-6-8-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 54-56-58-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 15-15-16-19-19-21 sinnum = 84-86-90-96-98-104 lykkjur. Þegar stykkið mælist 52-51-50-49-48-47 cm, fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 2-2-3-3-4-4 sinnum, 1 lykkja 0-1-0-1-0-1 sinni. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 57 cm í öllum stærðum, fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið, síðan eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist 58 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring, byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Notið hringprjón 3,5 og DROPS Soft Tweed eða DROPS Daisy. Prjónið upp ca 96 til 108 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.10.2022
BAKSTYKKI:...Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-2-3-4 sinnum, 1 lykkja 0-1-1-4-6-8 sinnum = 94-98-102-106-110-114 lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 4 lykkjur af kaðlaprjóni framan aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt og prjónið sléttar lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt og prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt og prjónið 2 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur brugðið og prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sailor's Knots

Neulontai, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Adam Thornley wrote:

I also need an answer to Margrida's question: Hi there! In the front part "When the piece measures 58-60-61-63-64-66 cm, decrease 12 stitches evenly over the knitted stitches in A.4 = 110-114-118-122-126-130 stitches.", what does that mean? do i decrease those 12 stitches even if it is in a cable? Also: I did the back piece and the outer parts of the front piece in plain stockinet stich, instead of moss. Do i still need to decrease? Originally posted on 24.11.2023 - 13:11

15.01.2024 - 14:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Thornley, work the next row decreasing evenly 12 stitches in A.4, this means work knit 2 together a total of 12 times in the knitted sections - work the remaining sts in A.4 K over K and P over P just as before. This will allow you getting the correct width (as you required more sts for cables than for stocking/casting off). Happy knitting!

15.01.2024 - 16:30

country flag Priya wrote:

Dear Drops Team, I am a little confused with the schematic diagram measurements. Are they in inches or cm? If I wish to knit a sweater for 38 chest size, should i go for the first (S) size?

09.01.2024 - 06:41

DROPS Design answered:

Dear Priya, measurements in chart are in cm, convert into inches here; measure a similar garment you/he have /has and like/s the shape and compare these measurements to the ones in the chart, this is the best way to find the matching size. Read more here. Happy knitting!

09.01.2024 - 07:59

country flag Margarida wrote:

Hi there! In the front part "When the piece measures 58-60-61-63-64-66 cm, decrease 12 stitches evenly over the knitted stitches in A.4 = 110-114-118-122-126-130 stitches.", what does that mean? do i decrease those 12 stitches even if it is in a cable? Also: I did the back piece and the outer parts of the front piece in plain stockinet stich, instead of moss. Do i still need to decrease?

24.11.2023 - 13:11

country flag Frau Griesinger wrote:

Warum wird imRückenteil nach dem Rippenmuster Maschen abgenommen und im Voderteil nach dem Rippenmuster Maschen zugenommen? Zwischen Vorderteil und Rückenteil sind dann 28 Maschen Unterschied.

13.11.2023 - 22:17

country flag Frau Griesinger wrote:

Warum wird imRückenteil nach dem Rippenmuster Maschen abgenommen und im Voderteil nach dem Rippenmuster Maschen zugenommen? Zwischen Vorderteil und Rückenteil sind dann 28 Maschen Unterschied.

13.11.2023 - 22:17

DROPS Design answered:

Liebe Frau Griesinger, Rückenteil wird nur mit doppeltem Perlmuster gestrickt als Vorderteil wird mit auch Zöpfen gestrickt, um die korrekte Breite zu behalten muss man je nach Muster entweder abnehmen oder zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

14.11.2023 - 10:27

country flag Anika wrote:

Hallo liebes DROPS Team, kann ich bei dieser Anleitung das Vorder- und das Hinterteil auch zusammen in Runden auf der Rundnadel stricken? Oder ist das ein Problem wegen dem Muster auf dem Vorderteil? Vielen Dank im Voraus und viele Grüße!

31.10.2023 - 20:53

DROPS Design answered:

Liebe Anika, sicher können Sie das Rumpfteil in Runden bis Armlöcher stricken, dann sollen Sie nur die Anleitung so anpassen bzw umrechnen. Viel Spaß beim stricken!

01.11.2023 - 15:06

country flag Marilyn Marshall wrote:

Diagrams A2, A3 and A5, A6 Where does 2 end and 3 begin ? Is it after the cable stitch? Similarly where does 5 end and 6 begin?

06.07.2023 - 17:57

DROPS Design answered:

Dear Marylin, A.2 and A.5 are the whole charts, while A.3 and A.6 are a section of each of them, respectively. So, working A.2 and A.5 would mean to work a whole repeat of the chart, while working A.3 and A.6 would exclude the right part of the chart, so, if we were reading the chart from right to left, A.3 and A.6 would begin in the knit section, and exclude the initial purl section. Happy knitting!

10.07.2023 - 15:36

country flag Lucília Pessoa wrote:

Boa tarde, Tenho uma dúvida em relação às costas, o ponto utilizado é “ponto de arroz” simples ou duplo? Do lado direito tricoto uma malha meia e uma malha liga, no avesso onde está a malha liga tricoto meia e a malha meia tricoto liga, certo? Obrigada

22.05.2023 - 19:55

DROPS Design answered:

Bom dia, O ponto nas costas é o ponto de arroz duplo. C 1 (direito): 1 malha meia, 1 malha liga C2 (avesso): 1 malha liga, 1 malha meia C 3 (direito) 1 malha liga, 1 malha meia C4 (avesso): 1 malha meia, 1 malha liga. Repete-se sempre estas 4 carreiras. Bons tricôs!

23.05.2023 - 11:07

country flag Carolien wrote:

Het gekke aan dit patroon vind ik dat er voor de boord veel meer steken worden opgezet dan voor het patroondeel (rugpand en mouwen). Dan wordt de boord toch veel te wijd? (Steekproef gebreid, boord op 3 en patroon op 3,5)

05.12.2022 - 07:28

DROPS Design answered:

Dag Carolien,

Dat klopt, maar dit wordt wel vaker gedaan. Op die manier trekt de boord het werk niet samen. Als je het patroon aan wilt passen, zodat de boord strakker wordt, kun je dit natuurlijk doen door minder steken op te zetten.

07.12.2022 - 20:40

country flag Myrna Laupland wrote:

One more question, I forgot to add this on my last question. If the Drops suggested knitting needle sizes are 4.5mm and 3.5mm but I use 4mm for the body, should I use 3.25mm for the ribbing or 3.5mm? Thank you very much for your help.

27.10.2022 - 06:41

DROPS Design answered:

Hi Myrna, Would suggest that you use 3 mm needles for the ribbing. Happy knitting!

27.10.2022 - 07:53