Misty Lines |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Wish eða DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 233-4 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að taka upp lykkjuna frá fyrri umferð, prjónið þessa lykkju slétt. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Lykkjur eru auknar út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum eftir mismunandi stærðum. Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 3. og 1. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki. Aukið út fyrir ermar á eftir 3. og 1. prjónamerki og á undan 4. og 2. prjónamerki. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan/eftir lykkju með prjónamerki. Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá röngu á undan og á eftir prjónamerki þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt og útauknar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstærða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan í þegar lykkjan er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar prjónað er í hring er uppslátturinn í næstu umferð prjónaður á undan og á eftir prjónamerki þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan í þegar lykkjan er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt og útauknar lykkjur eru prjónaðar í A.1. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt og útauknar lykkjur eru prjónaðar í A.1. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-64-64-68-68-72 lykkjur með DROPS Wish eða DROPS Air yfir stuttan hringprjón 6 og stuttan hringprjón 8 sem haldið er saman. Dragið út stuttan hringprjón 8 og haldið lykkjunum eftir á stuttum hringprjóni 6 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 13 cm. Nú er stroffið brotið niður þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast ca 6 cm tvöfaldur kantur í hálsmáli. STÆRÐ S, M og L: Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju, teljið 12 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 16-18-18 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 prjónamerki (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 16-18-18 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (bakstykki). Klippið þráðinn. Farðu áfram í HÁLSMÁL. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 72-76-80 lykkjur. Setjið síðan 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 20-22-24 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru 20-22-24 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (bakstykki). Klippið þráðinn. Farðu áfram í HÁLSMÁL. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 8. Nú eru prjónað hálsmál með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu – þetta er gert eins og útskýrt er að neðan. Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan lykkju með 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan miðað við þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þar til þú hefur prjónað 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki (hægri hlið á hálsmáli að framan – nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til þú hefur prjónað 2 lykkjur fram hjá þar sem stuttu umferðirnar byrjuðu við 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu þar til þú hefur prjónað 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið til baka frá röngu þar til þú hefur prjónað 2 lykkjur fram hjá lykkju með 3. prjónamerki. Klippið þráðinn. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: = 76-80-80-88-92-96 lykkjur. Byrjið umferð nákvæmlega á undan 1. prjónamerki (lykkjur með prjónamerki í eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið mynsturteikningu A.1 og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 3-6-7-7-5-6 sinnum (meðtalin útaukning í stuttum umferðum) = 84-112-120-128-116-128 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og útaukningu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri í umferð). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út alls 12-10-10-12-16-16 sinnum á fram- og bakstykki (6-5-5-6-8-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 15-16-17-19-21-22 sinnum á fram- og bakstykki og 9-11-12-13-13-14 sinnum á ermum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 156-172-180-200-212-224 lykkjur í umferð. Prjónið A.1 án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-25-26-28-30 cm mitt að framan – mælt eftir stroffi í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju slétt (tilheyrir bakstykki), setjið næstu 30-34-36-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 48-52-54-60-66-70 lykkjur (framstykki), setjið næstu 30-34-36-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 47-51-53-59-65-69 lykkjur (afgangur af bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-116-124-136-148-160 lykkjur. Haldið áfram með mynstur A.1 þar til prjónaðar hafa verið alls 7 mynstureiningar með A.1 frá byrjun á stykki, síðan er prjónað sléttprjón. Prjónið þar til stykkið mælist 32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 20-24-24-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 128-140-148-164-180-192 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 30-34-36-40-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með mynsturteikningu A.1 þar til prjónaðar hafa verið alls 7 mynstureiningar frá byrjun á stykki, síðan er prjónað sléttprjón. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-6-5-3-4-2½ cm millibili alls 5-6-7-9-8-10 sinnum = 26-28-30-30-32-32 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 41-39-38-38-37-35 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir = 32-34-36-36-38-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-46-45-45-44-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Tori Milling wrote:
Mener der er en fejl i opskrift på ærmerne. Mindste størrelse har de længste ærmer: Strik til ærmet måler 41-39-38-38-37-35 cm fra delingen..
30.11.2023 - 20:07DROPS Design answered:
Hei Tori. Jo, målene stemmer. Det er kortere mål i de større størrelsene pga bredere skuldervidde og lengre ermetopp. mvh DROPS Design
04.12.2023 - 10:53Aggi wrote:
Hallo, ich bin nun bei der Passe angekommen. Meine Maschenzahlen und Aufteilung ist richtig. Je 16 Maschen für die Ärmel, je 20 Maschen für den Rumpf und je 4 markierte Maschen für die Raglanlinie. Wenn ich nun mit Muster A.1 beginne, habe ich an der 3. markierten Masche eine LINKE Masche; das ist natürlich falsch. Wie soll ich das Muster stricken, damit die markierten Maschen immer RECHTS sind. Liebe Grüße
03.12.2022 - 11:58DROPS Design answered:
Liebe Aggi, A.1 wird nicht symmetrisch sein, da es über 2 M gestrickt wird und es sind eine gerade Mascheanzahl, aber die Raglanmaschen stricken Sie glatt rechts, und A.1 stricken Sie zwischen diese rechte Maschen. Viel Spaß beim stricken!
06.12.2022 - 08:48Martina wrote:
Grazie per la sollecita ed esauriente risposta.
11.11.2022 - 17:58DROPS Design answered:
Buonasera Martina, i ferri accorciati vengono lavorati a partire dal segnapunti-3 andando verso il segnapunti 2, quindi coprono il dietro e le maniche. Buon lavoro!
13.11.2022 - 00:10Martina wrote:
Buonasera, dalla spiegazione della scollatura con i ferri accorciati, io capisco che la cosiddetta "alzatina" venga sul davanti. Ho capito male io? Non dovrebbe essere sul dietro? Grazie per l'attenzione.
17.10.2022 - 18:02DROPS Design answered:
Buonasera Martina, i ferri accorciati vengono lavorati a partire dal segnapunti-3 andando verso il segnapunti 2, quindi coprono il dietro e le maniche. Buon lavoro!
13.11.2022 - 00:10Beatrice Mikha wrote:
What process is used for. Superwashwool and is it toxic after?
23.08.2022 - 10:06DROPS Design answered:
Dear Mrs Mikha, our DROPS Karisma is oeko tex certified (certificate number 25.3.0110), Standard 100, Class I from the INNOVATEXT Textile Engineering and Testing Institute. This means that is has been tested for harmful substances and is considered safe in human-ecological terms. Class I is the highest level, and it means the yarn is suitable for baby articles (ages 0-3). Hope it can help. Happy knitting!
23.08.2022 - 13:36