Steph skrifaði:
Hi, I’m very confused about how to knit the back of the head. Do you have a picture of the back and how it’s constructed? An example of how to knit the stitches from the side threads into the midsection would be very helpful. Thank you!
27.09.2022 - 00:46DROPS Design svaraði:
Dear Steph, you will work the stitches on mid back in garter stitch, and at the same time you will work at the beginning of every row from the right side the first stitch on row + the next stitch on the side together and at the end of the same row you will work the last stitch on mid back with the next stitch on the side together. see DECREASE TIP-1:. Happy knitting!
27.09.2022 - 09:15
Wilma Vinton skrifaði:
I would like to make this pattern, but I don't quite understand what is meant by the section "Place the outer most 27... stitched on each side on separate threads/extra needles.... through to the end. Do you only knit the sides, when you are decreasing? Thanks Wilma
12.06.2022 - 09:07DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Vinton, you will now work the back of the head, so you slip the first and last 27 stitches on a thread and work now the remaining 21 stitches on needle (middle of piece), and now work garter stitch and at the same time, work the last of these 21 stiches together with the next stitch slipped on a thread at the end of every row until all the 27 stitches on each side have been worked together with the edge stitches of the middle section (and then decrease at the middle of this section) Happy knitting!
13.06.2022 - 09:28
Sweet Primrose Bonnet#sweetprimrosebonnet |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð húfa / hetta fyrir börn úr DROPS Alpakka. Stykkið er prjónað með gatamynstri. Stærð 0 – 2 ára.
DROPS Baby 43-16 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MIÐJUSTYKKI ÞANNIG: Prjónið síðustu lykkju frá þræði/hjálparprjóni slétt saman með fyrstu lykkju frá miðjustlykki. FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK Á MIÐJUSTYKKI ÞANNIG: Prjónið síðustu lykkju frá miðjustykki snúna slétt saman með fyrstu lykkju frá þræði/hjálparprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN Á MIÐJUSTYKKI ÞANNIG: Prjónið ystu lykkju á miðjustykki saman með næstu lykkju frá þræði/hjálparprjóni eins og áður, síðan eru prjónaðar næstu 2 lykkjur slétt saman. FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK Á MIÐJUSTYKKI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á miðjustykki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið síðustu lykkju saman með næstu lykkju frá þræði/hjálparprjóni eins og áður. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, frá framan á húfu og aftur að bakhlið. Lykkjur eru settar á þráð í hvorri hlið, síðan er prjónað miðjustykki sem er prjónað saman með lykkjum sem settar voru á þráðinn í hvorri hlið, þannig að húfan formast. Neðst á húfunni er prjónaður kantur með gataumferð. Að lokum er tvinnuð snúra þrædd í gegnum gatakantinn. HÚFA: Fitjið upp 75-83-91 (99) lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Alpaca. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 4 umferðir sléttprjón fyrir fald fyrir saum með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Næsat umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni (uppábrot). Prjónið 5 umferðir sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 9-10-11 (12) sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist ca 11-12-13 (14) cm frá uppábroti – endið eftir 4. eða 12. umferð í A.1. Setjið ystu 27-30-33-36 lykkjur í hvorri hlið á sitt hvorn þráðinn eða hjálparprjón. Það eru 21-23-25-27 lykkjur eftir á prjóni (miðjustykki). Klippið þráðinn. Byrjið frá réttu og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir miðjustykki – JAFNFRAMT í hverri umferð frá réttu er prjónuð ysta lykkjan í hvorri hlið á miðjustykki saman með næstu lykkju af þræði/hjálparprjóni – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Haldið svona áfram. JAFNFRAMT þegar miðjustykkið mælist 4-4-5 (5) cm fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á miðjustykki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku þegar miðjustykkið mælist 7-7-8 (9) cm og 10-10-11 (13) cm = 15-17-19 (21) lykkjur á miðjustykki. Prjónið áfram þar til allar lykkjur af þræði/hjálparprjóni í hvorri hlið hafa verið prjónaðar saman með miðjustykki. Haldið lykkjunum á prjóni. FRÁGANGUR: Brjótið inn faldinn fyrir saum framan á húfu að röngu. Saumið faldinn niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. KANTUR MEÐ GATAUMFERÐ: Byrjið frá réttu neðst á húfunni, notið hringprjón 2,5 og prjónið upp ca 28-31-34 (35) lykkjur innan við 1 lykkju í garðaprjóni frá kanti með uppábroti frá miðjustykki og prjónið upp ca 28-31-34 (35) lykkjur innan við 1 lykkju í garðaprjóni frá miðjustykki fram að kanti með uppábroti = ca 71-79-87 (91) lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 3). Byrjið frá röngu og prjónið A.2 (í 5. umferð í A.2 er táknið prjónað frá röngu, þ.e.a.s. 2 lykkjur slétt saman, 1 uppsláttur frá röngu). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 3. Fellið af. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði DROPS Alpaca ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum gataumferðina. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetprimrosebonnet eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.