Minerva skrifaði:
Tras montar los puntos, ¿se empieza directamente con el resorte o se hace una primera vuelta en punto derecho y una segunda en punto revés para seguir después con el resorte?
19.04.2022 - 02:15DROPS Design svaraði:
Hola Minerva, después de montar los puntos se trabaja una fila de revés por el lado revés. Después, se comienza con el elástico/resorte.
20.04.2022 - 19:57
Miriam Bøe skrifaði:
Feil i mønsteret, 1 og 2. rad er vel byttet om!?
10.04.2022 - 14:42
Christina Welander skrifaði:
Hur läser jag mönstret från diagram A1 7ggr och A2 5 maskor när jag stickar i small . Ska precis börja sticka mönstret. Men förstår inte hur man räknar . Har 88 maskor kvar efter maskat av 13 st. Ska börja med mönster nu….
30.03.2022 - 22:18DROPS Design svaraði:
Hej Christina. Du stickar såhär: 2 m rätstickning, 5 m slätstickning, A.1 (=10 m) x 7, A.2 (= 4 m), 5 m slätstickning, 2 m rätstickning. 2+5+70+4+5+2 = 88m. Mvh DROPS Design
31.03.2022 - 08:05
Diane skrifaði:
I'm knitting this lovely top but there seems to be a mistake in the diagram explanations. The cable needle position has been inverted. Where it says 'behind' it should be 'in front' and vice versa. I followed your explanations but it came out wrong and I had to rip back and double check.
30.03.2022 - 13:20DROPS Design svaraði:
Dear Diane, thanks for noticing, it has been now fixed. Happy knitting!
06.04.2022 - 07:39
Deborah skrifaði:
How do I down load a free pattern to phone, as I don't have a printer, your patterns look so fab regards. Deborah
27.03.2022 - 20:36DROPS Design svaraði:
Dear Deborah, if you click on the print button, it should take you to another screen, where it should give you the option to either print the document, if you have a printer associated with your phone, or save the document as a pdf. Happy knitting!
27.03.2022 - 22:56
VIVIANNE VERRY skrifaði:
SUMMER BALAD
17.01.2022 - 15:02
Au Fil De Lau skrifaði:
Oups, erreur. Nom destiné au cl121 vous l'aurez deviné ! Celui ci je l'appellerais Twin-set Meadows Le Top
17.01.2022 - 13:29
Au Fil De Lau skrifaði:
Twin-set Meadows Le Cardigan
17.01.2022 - 13:26
Elvira skrifaði:
Elegant well-fitted item
16.01.2022 - 12:46
Saara skrifaði:
Toffee
14.01.2022 - 16:45
Midsummer's Day#midsummersdaytop |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaður toppur / bolur úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-24 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um handveg): Fækkið lykkjum innan við ystu 5-5-7-7-9-9 lykkjur í hvorri hlið. FRÁ RÉTTU: FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 5-5-7-7-9-9 lykkjur í stroffprjóni eins og útskýrt er í uppskrift, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 7-7-9-9-11-11 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt saman, prjónið 5-5-7-7-9-9 lykkjur stroffprjón eins og útskýrt er í uppskrift. FRÁ RÖNGU: FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 5-5-7-7-9-9 lykkjur í stroffprjóni eins og útskýrt er í uppskrift, 2 lykkjur brugðið saman. FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 7-7-9-9-11-11 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur snúnar brugðið saman, prjónið 5-5-7-7-9-9 lykkjur stroffprjón eins og útskýrt er í uppskrift. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp í tveimur alveg eins stykkjum. Stykkin eru saumuð saman á öxlum og í hliðum eins og útskýrt er í uppskrift. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 101-109-121-133-147-161 lykkjur á prjón 3,5 með DROPS Cotton Light. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroffprjón fram og til baka í 6 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 13-13-15-17-19-21 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir ystu 2 lykkjur í hvorri hlið) = 88-96-106-116-128-140 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, 5-4-4-4-5-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 alls 7-8-9-10-11-12 sinnum, A.2, 5-4-4-4-5-6 lykkjur sléttprjón og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm, prjónið stroffprjón í hvorri hlið eins og útskýrt er að neðan áður en fellt er af fyrir handvegi – ef mynstrið kemur inn í stroffið og úrtöku fyrir handveg, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur, í stað þess að gera kaðal. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 3-4-6-6-8-8 sinnum, haldið áfram með mynstur eins og áður þar til eftir eru 8-10-14-14-18-18 lykkjur í umferð, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3-4-6-6-8-8 sinnum, 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm, fellið af 3-5-7-7-9-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 82-86-92-102-110-122 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. HANDVEGUR: Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 4-4-6-6-8-8 lykkjur stroffprjóni og 1 lykkju garðaprjóni yst í hvorri hlið (munið eftir að ef lykkjur í mynstri koma inn í stroffið við úrtöku, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur í stað þess að gera kaðal). JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) alls 0-0-3-7-11-19 sinnum, síðan er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð (í hverri umferð frá réttu) alls 7-8-6-6-4-1 sinnum = 68-70-74-76-80-82 lykkjur. Nú er prjónað stroffprjón yfir allar lykkjur, en stillið af að prjónaðar séu minnst 3 umferðir í sléttprjóni eftir umferð með mynstri og að síðasta umferð sé frá röngu – að auki er aukið út um 1 lykkju í síðustu umferð = 69-71-75-77-81-83 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 3,5. Prjónið frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið áfram í stroffprjóni fram og til baka svona í 4 cm. Fellið nú af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 12-12-14-14-16-16 lykkjur stroffprjón eins og áður, setjið síðan þessar 13-13-15-15-17-17 lykkjur á þráð fyrir bandi á öxl, fellið af næstu 43-45-45-47-47-49 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 12-12-14-14-16-16 lykkjur stroffprjón eins og áður og 1 lykkja í garðaprjóni. Prjónið síðan band á öxl / hlýra eins og útskýrt er að neðan. BAND Á ÖXL / HLÝRI: = 13-13-15-15-17-17 lykkjur. Prjónið stroffprjón fram og til baka eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm frá uppfitjunarkanti. Mátið e.t.v. framstykkið og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 9-9-11-11-13-13 lykkjur. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. Prjónið hitt bandið / hlýra á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og framstykki og prjónið á sama hátt og framstykki. FRÁGANGUR: Saumið saman bandið á öxl innan við affellingarkantinn efst á öxlum. Saumið hliðarsauma – byrjið yst við handveg og saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur, endið þegar 6 cm eru eftir neðst í hvorri hlið (klauf). |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #midsummersdaytop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.