Nini skrifaði:
Hello, what size do model wearing?
17.02.2023 - 21:40DROPS Design svaraði:
Dear Nini, the model is wearing an M size. Happy knitting!
19.02.2023 - 19:42
Denise skrifaði:
När arbetet mäter 24-25-26-27-28-29 cm, maskas de första 4 maskorna av till ärmhål i början av nästa varv från avigsidan. Sedan maskas det av till ärmhål i början av varje varv från avigsidan så här: Maska av 3 maskor 1 gång, 2 maskor 1-2-3-3-4-6 gånger, och 1 maska 1-1-1-3-4-4 gånger = 28-29-30-31-32-33 maskor. Jag förstår inte hur jag ska maska av? Är det 3 maskor först, sedan 2 på andra varvet, 1 på tredje varvet? Vad står alla siffror för?
15.02.2023 - 10:50DROPS Design svaraði:
Hej Denise. Du maskar av till ärmhål i början av varje varv från avigsidan först 3 maskor 1 gång, sedan 2 maskor det antal gånger för den storlek du stickar (de 6 talen efter motsvarar de olika storlekarna, dvs 1 gång i storlek S, 2 gånger i storlek M osv) och sedan 1 maska det antal gånger för den storlek du stickar. Mvh DROPS Design
22.02.2023 - 11:57
Jennie skrifaði:
I mönstret för höger och vänster framstycke vore det toppen om det i mönstret står att man inte ska sticka framkantsmaskor i början på varje varv. Kanske man kan skriv in hur styckena ska stickas både från rät och avigsidan, så som det står i mönstret för bakstycket. Lite lurigt för oss nybörjare som följer mönstret exakt. Då är detaljerna viktiga 😊
06.01.2023 - 11:51DROPS Design svaraði:
Hej Jennie, det tager vi til os. God fornøjelse i strikkeverdenen :)
10.01.2023 - 11:52
Sara skrifaði:
Salve, dopo il bordo inferiore a coste ritorte e le diminuzioni è indicato di continuare a lavorare a diritto e 1 maglia di vivagno al lato, ma fino a quel punto le maglie vivagno non erano 2?
13.11.2022 - 21:06DROPS Design svaraði:
Buonasera Sara, dall'inizio del bordo la maglia di vivagno è 1. Buon lavoro!
15.11.2022 - 21:06
Ale skrifaði:
Buongiorno, non mi è chiaro questo passaggio: "Attaccare le maniche, all’interno della maglia di vivagno. Cucire le maniche e i margini laterali, all’interno della maglia di vivagno e fino alle coste, lasciando uno spacco di 6 cm" Lo spacco di 6 cm si riferisce alla manica? Sul vostro sito c'è un video sulla cucitura della manica per creare l'effetto a sbuffo? Grazie
12.04.2022 - 09:07DROPS Design svaraði:
Buonasera Ale, gli spacchi sono laterali. Buon lavoro!
01.05.2022 - 23:38
Conni skrifaði:
Desert sand
14.01.2022 - 16:56
Days to Remember Cardigan#daystoremembercardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með stuttum puffermum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-40 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 6, 13, 20, 28 og 36 cm M: 6, 14, 22, 30 og 38 cm L: 6, 14, 22, 31 og 40 cm XL: 6, 13, 20, 27, 34 og 41 cm XXL: 6, 13, 20, 27, 35 og 43 cm XXXL: 6, 13, 21, 29, 37 og 45 cm ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp í stykkjum og saumað saman. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 72-78-84-90-99-111 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkju snúna slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Frá röngu er prjónað þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkju snúin brugðið og 1 kantlykkju garðaprjón. Þegar stroffið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 10-10-10-10-11-13 lykkjur jafnt yfir = 62-68-74-80-88-98 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm = 66-72-78-84-92-102 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, fellið af fyrstu 4 lykkjur fyrir handvegi í hvorri hlið á stykki. Fellið síðan af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-3-3-4-6 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-3-4-4 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, fellið af miðju 24-26-28-28-30-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 10-10-10-11-11-11 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 40-43-46-49-55-61 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkju snúin slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 6. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-4-4-6-7 lykkjur jafnt yfir og endið með 1 kantlykkju garðaprjón = 36-39-42-45-49-54 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju í lok næstu umferðar frá réttu. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm = 38-41-44-47-51-56 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, fellið af fyrstu 4 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá röngu. Fellið síðan af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-3-3-4-6 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-3-4-4 sinnum = 28-29-30-31-32-33 lykkjur. Prjónið sléttprjón, 1 kantlykkju í garðaprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 37-39-41-42-44-46 cm, setjið síðustu 13-14-15-15-16-17 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli í næstu umferð frá röngu (þ.e.a.s. ekki er prjónað). Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, síðan 1 lykkju 3 sinnum = 10-10-10-11-11-11 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 40-43-46-49-55-61 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkja snúin slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 6. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-4-4-6-7 lykkjur jafnt yfir og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 36-39-42-45-49-54 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá réttu. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm = 38-41-44-47-51-56 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, fellið af fyrstu 4 lykkjurnar fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá réttu. Fellið síðan af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-3-3-4-6 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-3-4-4 sinnum = 28-29-30-31-32-33 lykkjur. Prjónið sléttprjón, 1 kantlykkju í garðaprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 37-39-41-42-44-46 cm, setjið síðustu 13-14-15-15-16-17 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu (þ.e.a.s. ekki er prjónað). Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, síðan 1 lykkju 3 sinnum = 10-10-10-11-11-11 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. ERMI: Fitjið upp 47-50-53-56-62-65 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 30-30-30-34-35-39 lykkjur jafnt yfir = 77-80-83-90-97-104 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 20-20-20-18-16-14 cm, fellið af fyrstu 4 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 69-72-75-82-89-96 lykkjur. Fellið síðan af lykkjur í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og síðan 1 lykkju 3-3-3-5-7-9 sinnum = 45-48-51-54-57-60 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru fyrstu 14 lykkjur prjónaðar 2 og 2 saman, næstu 15-18-21-24-27-30 lykkjur 3 og 3 saman og síðustu 16 lykkjur 2 og 2 saman = 20-21-22-23-24-25 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af frá réttu. Ermin mælist ca 31-31-31-32-32-32 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið ermasauma og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju niður að stroffi á bakstykki/framstykki (= 6 cm klauf). Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við miðju að framan og frá réttu og prjónið upp ca 86 til 95 lykkjur (deilanlegt með 3 + 2) í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum) á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja snúin brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Frá réttu er prjónað þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af þegar stroffið mælist 4 cm. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #daystoremembercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.