DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Days to Remember

Prjónuð peysa / toppur úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-39
DROPS Design: Mynstur ml-083
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
200-200-250-250-300-300 g litur 15, beige

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp í stykkjum og saumað saman. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 72-78-84-90-99-111 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkju snúna slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 6.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 10-10-10-10-11-13 lykkjur jafnt yfir = 62-68-74-80-88-98 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm = 66-72-78-84-92-102 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm, fellið af fyrstu 4 lykkjurnar fyrir handvegi í hvorri hlið á stykki. Fellið síðan af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-3-3-4-6 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-3-4-4 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, fellið af miðju 24-26-28-28-30-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 10-10-10-11-11-11 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið hina öxlina á samahátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp jafn margar lykkjur og á bakstykki og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 37-39-41-42-44-46 cm = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Setjið nú miðju 16-18-20-20-22-24 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, síðan 1 lykkja 3 sinnum = 10-10-10-11-11-11 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 47-50-53-56-62-65 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 30-30-30-34-35-39 lykkjur jafnt yfir = 77-80-83-90-97-104 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Þegar stykkið mælist 20-20-20-18-16-14 cm, fellið af fyrstu 4 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 69-72-75-82-89-96 lykkjur.
Fellið síðan af lykkjur í byrjun á hverri umferð þannig:
Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og síðan 1 lykkju 3-3-3-5-7-9 sinnum = 45-48-51-54-57-60 lykkjur.
Í næstu umferð frá réttu eru fyrstu 14 lykkjur prjónaðar 2 og 2 saman, næstu 15-18-21-24-27-30 lykkjur 3 og 3 saman og síðustu 16 lykkjur 2 og 2 saman = 20-21-22-23-24-25 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Fellið af frá réttu. Ermin mælist ca 31-31-31-32-32-32 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.
Saumið ermasauma og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju niður að stroffi á bakstykki/framstykki (= 6 cm klauf).

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við öxl, prjónið upp ca 72 til 90 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 5 með DROPS Melody (meðtaldar lykkjur af þræði mitt að framan og deilanlegt með 2). Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar kantur í hálsmáli mælist 2 ½ cm prjónið uppábrots kant þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið síðan stykkið í sléttprjóni þar til kanturinn í hálsmáli mælist 2 cm frá uppábrots kanti. Fellið af. Brjótið uppá kant í hálsmáli við uppábrots kantinn að innan verðu á stykki. Saumið kant í hálsmáli þannig að það myndist tvöfaldur kantur. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.03.2022
ERMAR:...Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 30-30-30-34-35-39 lykkjur jafnt yfir = 77-80-83-90-97-104 lykkjur...

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Michelle wrote:

Nu har jeg set flere opskrifter på pind 6 herinde, hvor efter man har strikket den nederste rib, skal tage IND. Opskriften her siger det samme. Hvorfor har man valgt det? Er der for at undgå at ribben strammer? Normalt tager man UD

17.12.2023 - 11:10

DROPS Design answered:

Hei Michelle. På 80-tallet skulle gjerne vrangborden stramme inn nederst på et plagg, nå vil man gjerne ha en pen overgang mellom bol og vrangborden. Vi mener det blir penest ved å strikke vrangborden med en pinnestr mindre en resten av plagget og ved å ta inn masker etter vrangborden. mvh DROPS Design

18.12.2023 - 09:27

country flag Julie wrote:

Hei, kan dere være så snill å rette oppskriften slik som Vigdis her har kommentert. Jeg har nå strikket hele vrangborden feil fordi jeg tolket det som at jeg skulle strikke 1 vridd rett og 2 vrang både frem og tilbake. Utrolig irriterende!

08.11.2023 - 21:01

country flag Vigdis wrote:

Når jeg strikker vrangbord; da kan jeg vel ikke strikke *1 vridd rett, 2 vrang* tilbake fra vrangsiden? Da vil det vel bli typ perlestrikk…?

10.04.2023 - 16:03

DROPS Design answered:

Hei Vigdis, På vrangen strikker du 2 rett, 1 vridd vrang, slik at du fortsetter vrangborden. God fornøyelse!

11.04.2023 - 06:44

country flag Justyna wrote:

Czy na pewno ściągacz jest robiony wzorem francuskim? Na zdjęciu jest pokazany zwykły ściągacz.

01.01.2023 - 20:31

DROPS Design answered:

Witaj Justyno, w ściągaczu powtarzamy sekwencję *1 oczko przekręcone na prawo, 2 oczka lewe*, ściegiem francuskim tylko wykonujemy po 1 oczku brzegowym z każdej strony (na szew, ponieważ sweterek jest przerabiany w częściach i zszywany na końcu). Pozdrawiamy serdecznie w Nowym Roku!

02.01.2023 - 12:25

country flag Monika Engström wrote:

Varför rundstickor när beskrivningen är för stickning fram och tillbaka? Hur ska man tex maska av i början av varje varv när man stickar ärmar på rundsticka? Mönstret förutsätter avmaskning på varje sida av ärmen.

07.11.2022 - 10:54

DROPS Design answered:

Hei Monika. Du kan fint strikke for-og bakstykket og ermene på lange parpinner, men vi syns det er mer behagelig å bruke rundpinner. Det står ingen steder at du skal strikke ermene rundt, de strikkes frem og tilbake på rundpinne 5, og det felles av akurrat som om du bruker lange parpinner. mvh DROPS Design

07.11.2022 - 14:18

country flag Friedy wrote:

Hoe brei ik een gedraaide rechte boordsteek? En hoe doe ik de samengebreide steek met daarna een omslag bij het boordje?

07.09.2022 - 22:40

DROPS Design answered:

Dag Friedy,

In deze video kun je zien hoe je 2 steken recht samen breit. Daarna maak je gelijk een omslag.

08.09.2022 - 16:55

country flag Friedy wrote:

Hoe brei ik een gedraaide rechte boordsteek?

07.09.2022 - 22:30

DROPS Design answered:

Dag Friedy,

Dit doe je door bij het breien van de rechte steek, de rechter naald in de achterste lus te steken en dan de steek recht te breien.

08.09.2022 - 16:51

country flag Michelle wrote:

Bonjour je ne comprends pas les diminutions des manches les mailles a tricoter ensemble les 14 1eres mailles 2 par 2 puis rangs suivants les 18 mailles 3par3 mais c'est pas possible il nous reste pas assez de mailles il y aurais pas une erreur. Merci pour votre aide

29.06.2022 - 19:29

DROPS Design answered:

Bonjour Michelle, en taille M il vous reste 48 mailles, vous allez procéder ainsi: tricotez les 14 premières mailles ensemble 2 par 2 (= il reste 7 mailles), tricotez les 18 mailles suivantes ensemble 3 par 3 (= il vous reste 6 mailles) et tricotez les 16 dernières mailles ensemble 2 par 2 (il vous reste 8 mailles) vous avez tricoté 14+18+16=48 mailles et il vous reste maintenant 7+6+8=21 mailles. Bon tricot!

30.06.2022 - 08:58

country flag Zuzanna wrote:

Is this cardigan made with 5mm and 6mm needles or size 5 and six? if it's the size number is it the UK or US notation?

12.04.2022 - 18:36

DROPS Design answered:

Hi Zuzanna, If you are using the UK English pattern, the needle sizes are 5 mm and 6 mm. Happy knitting!

13.04.2022 - 09:00

country flag Susanne Gustafsson wrote:

Hej! Jag saknar det här mönstret på svenska - det blir 404, brusten länk, när jag klickar på det. Hjälp! :) --Susanne.

31.03.2022 - 18:21

DROPS Design answered:

Hej Susanne, Nu ligger det svenska mönstret ute :)

04.04.2022 - 11:38