Kerstin skrifaði:
Lavendel
17.01.2022 - 15:53
Victoria Thompson skrifaði:
Sweet meadow
17.01.2022 - 11:20
Ingrid skrifaði:
Provence
16.01.2022 - 15:59
Kjersti skrifaði:
Vårflørt
16.01.2022 - 12:37
Rebecca Taylor skrifaði:
Celia
16.01.2022 - 01:22
Sabine skrifaði:
Melody
15.01.2022 - 08:01
Catalina skrifaði:
Puff
14.01.2022 - 23:21
Adriana skrifaði:
Spring
14.01.2022 - 17:42
Linda skrifaði:
Womanpower
14.01.2022 - 15:19
Henna skrifaði:
Puffy dream
14.01.2022 - 15:18
Violet Meadow#violetweadowsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa / toppur úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-55 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka, á hringprjóna í stykkjum, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar fram og til baka. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 93-103-113-125-135-149 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-20-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir = 77-83-91-99-109-119 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-3-4-5-7-9 sinnum og 1 lykkja 2-2-3-4-4-4 sinnum = 59-61-63-65-67-69 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 21-23-25-25-27-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 18-18-18-19-19-19 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 93-103-113-125-135-149 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-20-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir = 77-83-91-99-109-119 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-3-4-5-7-9 sinnum og 1 lykkju 2-2-3-4-4-4 sinnum = 59-61-63-65-67-69 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, setjið miðju 15-17-19-19-21-23 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 18-18-18-19-19-19 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. STUTTAR PUFFERMAR: Fitjið upp 48-50-52-54-56-58 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 13 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: 12-13-11-12-10-11 lykkjur slétt, aukið síðan út um 12-12-14-14-16-16 lykkjur yfir næstu 36-36-42-42-48-48 lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju, endið með 13-14-12-13-11-12 lykkjur slétt = 73-75-79-81-85-87 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið. Prjónið síðan mynstur í næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-0-2-3-5-2 lykkjur sléttprjón, A.1 alls 8-9-9-9-9-10 sinnum, endið með 4-1-3-4-6-3 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með A.1 á hæðina. Þegar stykkið mælist 9 cm eru fellda af 4 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.1, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið, fækkið lykkjum í umferð frá réttu með því að prjóna 3 fyrstu og 3 síðustu lykkjur í umferð slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 8-.8.-6.-6.-6.-6. hverri umferð alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 53-55-55-57-61-63 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-20-21-22-24-25 cm prjónið 1 umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 2-4-1-3-1-3 lykkjur jafnt yfir í umferð = 51-51-54-54-60-60 lykkjur. Í næst umferð eru allar lykkjur prjónaðar 3 og 3 slétt saman = 17-17-18-18-20-20 lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 21-21-22-23-25-26 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 4 og 2 þræði DROPS Kid-Silk, byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 60 til 88 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði). Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #violetweadowsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-55
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.